Vikan - 18.04.1985, Side 25
MATSEÐILL VIKUNNAR
Fiskréttur
feita mannsins
Þessi fiskréttur er frekar við hæfi þess sem er í megrun. Gott er
að bera fram með þessum rétti ávaxtasalat úr appelsínum,
eplum og banönum með nokkrum rúsínum.
1. Hitið ofninn í 250 gráður. Sjóðið kartöflur.
2. Sneiðið sítrónuna í smáskífur og setjið eina skífu á
málmpappírsbút. Leggið fiskflakið, sem ætlað er hverjum
og einum (150—200 g), ofan á sítrónuna. Ofan á fiskinn er
svo sett önnur sítrónusneið og rifin gúrka. Þetta er kryddað
með salti og sítrónupipar eftir smekk.
3. Málmpappírnum er vafið utan um allt saman og pakkarnir
settir í ofninn og látið bakast í 15—20 min.
Steikt lúða
að hætti Jóhönnu
Við Brunnparkinn í Gautaborg er frægasti veitingastaður Sví-
þjóðar,, Jóhanna". Til merkis um frægð þessa staðar má nefna
að hann er eini veitingastaðurinn á Norðurlöndum sem hefur
hlotið stjörnu í svonefndum Michelin-bæklingi, en það er stór
og mikil bók sem út kemur ár hvert og gefur veitingastöðum
stjörnur og einkunnir. Nýja lúðu er yfirleitt hægt að kaupa allt
árið og lúðuflök fást hjá flestum góðum fisksölum.
FYRIR FJÓRA:
4 lúðubitar (ca 250 g stykkið)
1 gulur laukur
2 dl af hvitvini eða vatni mað smásítrónusafa
2 dl af fiskisoði (annaðhvort soðið úr fiskbeinum eða af fiskteningi
(fœst i flestum búðum)
4 dl rjómi
3 matskeiðar smjör
2 matskeiðar af matarolíu
1 matskeið af frönsku, gulu sinnepi
2 matskeiðar af brauðmyslnu
(helstán krydds)
steinselja
dragon, salt og pipar.
1. Hakkiö laukinn.
2. Hellið saman víninu (eða vatninu með sítrónusafanum),
fisksoðinu og lauknum í pott og látið krauma án loks
þangað til um það bil helmingurinn er eftir í pottinum. Þá
hellir maður rjómanum í og lætur krauma án loks þangað
til 4 dl eru eftir i pottinum.
3. Hakkið steinseljuna.
4. Blandið saman hveiti og brauðmylsnu og smáögn af salti
og veltið lúðubitunum upp úr blöndunni.
5. Hitið smjörið á pönnu þar til það er vel brúnað. Hellið auk
þess olíunni í. Með því að nota bæði smjör og olíu verður
steikingin bæði jafnari og fallegri. Steikið svo lúðuna þar til
flökin eru Ijósbrún. Varist að ofsteikja. Steikingartíminn er
um það bil 3 — 4 min. á hvorri hlið eftir þykkt.
6. Blandið svo sinnepinu og steinseljunni í sósuna og saltið
og piprið eftir smekk.
Með þessum mat ber ég annaðhvort fram soðin hrísgrjón
eða kartöflustöppu.
Oft er fallegt að blanda tveimur eggjarauðum í kartöflu-
stöppuna. Þá fær stappan fallegan gulleitan lit og verður auk
þess mun bragðbetri.
Þorsk- eða ýsuflök, 150 — 200 g á hvern og einn
hálf sítróna
rifin gúrka
sítrónupipar
salt.
Annar möguleiki er að gufusjóða fiskinn í kartöflupott-
inum og er það líka mjög gott. Auk þess má bæta við eftir
smekk grænmeti í hvern pakka, til dæmis gulrótum, lauk
og fleira.
16. tbl. Vikan 25