Vikan - 18.04.1985, Qupperneq 27
21. apríl:
Hér er Júpíter farinn að milda
áhrifin frá Mars. Fólk, fætt í dag,
er gjarnan afar fjölhæft en stund-
um reikult í ráöi. Það er glaðlynt
og kemur sér vel við flesta og þótt
stundum þyki skorta á festu í
skapgerðinni bæta viðmótiö og
gæðin það gjarnan upp. Afmælis-
barn dagsins hefur sterka réttlæt-
iskennd en ekki alltaf framtak til
þess að fylgja henni eftir.
Afmælisbarn dagsins á góða
möguleika á að komast langt í við-
skiptalífinu vegna innsæis og
góðra gáfna en stundum takmark-
ast möguleikarnir af skorti á
skipulagsgáfu. Einnig eiga þeir
sem fæddir eru í dag vísa framtíð
á sviði bókmennta og lista ef þeir
geta hamist til mikillar vinnu.
Raunar þurfa þeir sem fæddir eru
þennan dag alltaf að hafa talsvert
fyrir hlutunum og ekkert kemur
upp í hendurnar á þeim fyrirhafn-
arlaust. Þaö getur lærst með tím-
anum. Best er að treysta á sjálfan
sig og reiða sig ekki um of á aðra.
Astalíf og samskipti við hitt kyn-
iö mótast af fjölbreytni. Þeim sem
fæddur er í dag reynist stundum
erfitt að binda sitt trúss við sömu
manneskjuna alla tíð. Hjónaband-
ið getur reynst afmælisbarninu
örðugt og hnúskótt. Makavalið er
reyndar afar mikilvægt til þess að
afmælisbarnið nái aö þroska hæfi-
leika sína.
Heilsufar er almennt gott fram-
an af ævi en um miðjan aldur fara
ýmsir streitusjúkdómar að hrjá
afmælisbarniö og veröur að bregð-
ast við þeim af einurð.
Happatölur eru 3 og 9.
* * * * * 22. apríl: * + + + +
Ekki verður þeim sem fæddur
er í dag brugöið um hugleysi en
meðfædd tflhneiging til hóglífis
kann að valda því að stundum er
eins og afmælisbamið þori ekki að
taka neina áhættu. Það er einhver
værö yfir deginum og fólki, sem
fætt er í dag, hættir til að láta
dumma og gera ekki nákvæmar
áætlanir um framtíðina. En já-
kvætt viöhorf einkennir persónu-
leikann og glaðværð.
Þessu fylgir líka þolinmæöi til
þess að heyra skoðanir annarra og
stundum eru þeir sem fæddir eru í
dag eins konar sálusorgarar allra
sem þekkjaþá.
Varast ber tilhneigingu til hjá-
trúar þótt ekki skuli hinu óþekkta
meö öllu afneitað. Listir liggja vel
viö afmælisbarni dagsins og
reyndar öll áhættusöm viðskipti
líka. Þaö veröur þó allt að vera
innan takmarka hóglífisins. En
skynsamlegt mat á peningum og
heimsins gæðum fylgir þessum
degi.
Fólki, sem fætt er í dag, hættir
til þess að bindast snemma. Þótt
það myndi sterk tilfinningatengsl
er það dálítið óöruggt með maka
sína og hættir til afbrýðisemi.
Helstu kvilllar, sem hrjá afmæl-
isbarn dagsins, eru þrálátur höf-
uðverkur.
Happatölur4og6.
+ * * * * 23. apríl: + + + * *
Þeir sem fæddir eru í dag eru
talsvert sundurleitir enda togast
ólíkar höfuðskepnur á um að móta
persónuleika þeirra. Afmælisbarn
dagsins er í senn blítt í lund og
hvers manns hugljúfi og ráðríkur
stjórnandi sem gerir miklar kröf-
ur til þeirra sem vinna hjá honum.
Þeir hneigjast til mannaforráða
en í brjósti þeirra er blíður streng-
ur sem stundum nálgast við-
kvæmni. Öðrum kann að finnast
þetta væmni. Annars er sá sem
fæddur er í dag yfirleitt fremur ró-
lyndur, seiglast áfram þolinmóður
og ákveðinn. Undir niðri eru stríð-
ar tilfinningar en undir góðri
stjórn.
Afmælisbarni dagsins hættir til
íburðar og hóglífis og mótast
gjarna af góðum smekk á listum.
Listirnar eru þó aldrei eigin
verk; afmælisbarninu er betur
gefið að meta verk annarra en
skapa þau sjálft. Oll störf, sem eru
í kringum skapandi listir, eiga vel
viö og einnig öll almenn stjórnun-
arstörf.
Sá sem fæddur er í dag gengur
snemma til verks og velur sér lífs-
förunaut. Það er farsælt samband
yfirleitt átakalítið en stundum
virðast þó búksorgirnar ná að
varpa á það skugga. Það lagast þó
aftur.
Heilsan er góð. Þó er hætt við
höfuðóþægindum og hálsbólgum
en ekki er það neitt sem þarf að
óttast.
Happatölur 6 og 5.
-¥ ■¥■ 24. apríl:
Bjartsýnin einkennir þennan
dag öðrum fremur. Það er eigin-
lega allt bjart í lífinu og stundum
finnst öðrum afmælisbarnið vera
ótrúlega bláeygt. En þetta er bara
eðlislægt glaðlyndi. Einlægni og
hreinskilni eru kannski bestu kost-
ir þeirra sem fæddir eru í dag. Að
vísu eru bæði flóð og fjara í fram-
kvæmdaviljanum en samt er fólk,
fætt í dag, öðrum betur fallið til
forystu í félagsmálum. Stundum
er ákefðin þó þaö mikil að hún
spillir fyrir frama. Það jaörar við
að rétt sé aö kalla þetta ofurkapp
eða eldmóð.
Fólk, fætt í dag, velur sér gjarn-
an vini af sama sauðahúsi, er gef-
ið fyrir bóklestur og hefur háleitar
hugsjónir, fylgir málum sínum
eftir af einurö og er vinur vina
sinna. Afmælisbarninu hættir því
nokkuð til að dragast inn í deilur
sem eru því eiginlega óviðkom-
andi og ætti að reyna að vera ekki
að blanda sér of mikið inn í mál
sem ekki snerta þaö. Það getur
líka orðið fólki til þroska að fylgj-
ast með úr fjarlægð en reyna ekki
endilega að leysa hvers manns
vanda.
Astalífið mótast eðlilega nokkuö
af ákefðinni og tilfinningahitan-
um. Makinn, sem afmælisbarnið
velur sér, er ekki endilega jafn-
aldra en það er ofurheit ástin sem
skiptir máli en ekki aldurinn.
Kynni kunna að takast snögglega
en það hefur engin áhrif á ham-
ingjuna.
Fólk, sem fætt er i dag, sinnir
gjarnan einhverjum störfum í við-
skiptalífinu, til dæmis í tengslum
við fatnað eða húsbúnað. Það er
vel fallið til stjórnunar.
Heilsan er yfirleitt góð en þó eru
augun viðkvæm.
Happatala er6.
16. tbl. Vikan 27