Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 33
á korseletti — bæði sem efri hluti á
samkvæmiskjólum og fínni blúss-
ur. Þetta er strax farið að birtast á
forsiðum flestra tímarita sem fylgj-
ast með nýjustu straumunum. Og i
lokin kom Mounia í brúðarklæðum
með Yves Saint Lauront sjálfan sór
við hlið og lófatakinu ætlaði bók-
staflega aldrei að linna. Á leiðinni
út heyrði ég að fullorðið par —
sennilega um sextugt — var að
ræða sýninguna með andakt.
„Ohhh, hann er einstakur — dá-
samlega óhræddur við liti," sagði
konan og maðurinn samsinnti
ákveðinn. Hún var með Ijósfjólu-
blátt hár, skreytt eiturgrænum
djásnum, i legghlífum i sömu eitur-
grænkunni og stórir hnappar,
svartir og fjólubláir, þöktu hlifarn-
ar. Allt annað var i sama dúr — en
sá gamli hafði þó aðra liti, bleikt og
fjólulitt, i fötum og legghlifum
og blóröndótt hár i sömu
tónbrigðum. j
Hver hannaði fötin þeirra Æk
or ekki gott að vita — en sá 1
hinn sami hefur líklega verið Jjl
ennþá minna hræddur
við liti en YSL.
Hún gekk inn með reisn, sópaði af henni í hvert
skipti. Einmana lófaklapp var áberandi undir-
leikur og kom frá ungum, frakkaklæddum
manni sem stóð fyrir aftan stólinn minn. Hann
hamaðist alltaf eins og óður maður þegar í hana
sást — og eftir sýninguna voru þau það fyrsta
sem sást víð innganginn i innilegum faðmlög-
um. Skyldu allir unnustar styðja svo einlæglega
við bakið á sinum heittelskuðu í framabröltinu?
Yves Saint Laurent
beygir sig niður að
heiðursgestunum,
Catherine Denevue,
Palomu Picasso og
Sonyu Rykiel. Að þvi
loknu hófst undanhald-
ið, hann næstum hljóp
til baka eftir borðunum.
Meistarinn er ekki mik-
ið fyrir að koma fram
opinberlega að sögn
þeirra sem til þekkja —
þjóist ennþá af illvigri
feimni.
16. tbl. Vlkan 33
Texti: Borghildur Anna