Vikan - 18.04.1985, Page 54
m
Barna—Vikan
Barna-
Viku-
föndur
Okkur hér á Barna-Vikunni datt í
hug að breyta dálítið til og koma
með nokkrar föndurhugmyndir.
Kannski fáið þið einhverjar hug-
myndir að afmælisgjöfum eða
þið búið til eitthvað handa ykkur
sjálfum.
Bama-
smekkur
Hér er aldeilis fín hugmynd að afmælisgjöf handa þeim allra
minnstu. Það sem þið þurfið er þvottaklútur úr frottéefni,
bómullarband og gam. Þiö brettið upp á efst og saumið breiðan
fald þannig að þið getið þrætt bómullarband þar í gegn. (Þið gerið
það með því að festa nælu í annan endann á bandinu og draga í
gegn.) Þeir sem vilja geta saumað eitthvað fallegt í smekkinn.
Kanntu á klukku?
Ef þið eigið lítil systkin sem langar til að læra á klukku er
upplagt að búa til þessa fínu pappírsklukku handa þeim. Svo er
þetta líka ágæt gjöf handa litlum vinum ykkar.
Þið byrjið á því að verða ykkur úti um pappírsdisk. Finnið
miðjuna á diskinum og merkið beint fyrir ofan hana og neðan og
til hliðanna punkta sem eiga að vera fyrir ofan tölumar 12,6,3 og
9. Næst er að finna gamalt almanak og klippa út tölumar 1 til 12.
Vísana búið þið til úr þykkum pappa. Lengdin á öðrum vísinum á
að vera frá miðpunkti og að tölunni 12 en hinn á að vera aðeins
styttri. Nú leggið þið þá saman og gerið gat í gegn. Að lokum
verðið þið að útvega ykkur pappírsklemmu (sem lítur út eins og
hnappur með tveimur endum neðan úr), ýta endunum í gegnum
gatið í miðjunni og beygja þá til beggja hliða — og klukkan er til-
búin. Svo má líka lita klukkuna og jafnvel líma litlar myndir fyrir
ofan hverja tölu.
Púsluspil
Það er alltaf gaman að eignast nýtt púsluspU. Hér er eitt af
ódýrari gerðinni. Það er búið tU úr mynd sem má klippa í sundur
(athugið vel að taka ekki næstu mynd sem þið komið auga á).
Myndin getur verið faUegt lok af konfektkassa eða stórt og
skrautlegt afmæliskort. Það sem þið gerið er að snúa myndinni
við og teikna á bakhlið hennar eins og þið vUjið hafa Utlu stykkin í
púsluspilinu. Ef þið ætlið að gera púsluspU handa Utlum bömum
verða stykkin að vera stór. Nú klippið þið stykkin vandlega út og
púsluspiUð er tUbúið.
54 ViKan 16. tbl.