Vikan


Vikan - 02.05.1985, Side 14

Vikan - 02.05.1985, Side 14
Texti: Þórey Myndir: RagnarTh. ,,Þó maður segi nú EINN & EINN vafasaman brandara. . Jón Ólafsson á sprettinum Það heyrist ekki eins oft í Jóni Ólafssyni á rás 2 og áður. Starfs- aldur hans þar er jafnhár aldri rásarinnar. Hann steig sín fyrstu spor í umdeildum morgunþætti fjórmenningaklíkunnar svokölluðu. í þeim þætti voru menn frjálslegri og óþvingaðri en vaninn var til á Skúla- götunni og virtust skemmta sér hið besta sjálfir. Það fór fyrir brjóstið á sumum hlustendum en aðrir létu sér það vel líka. Eftir að veldi fjórmenninganna leið undir lok var Jón um tíma með morgunþátt en stjórnar nú þættinum Léttir sprettir á föstudögum síðdegis, tónlistarþætti þar sem oftar en ekki eru leikin gömul góð lög. Þaö er meö ólíkindum hvaö maðurinn hefur mikiö að gera. Fyrir utan starf sitt hjá rásinni spilar Jón Ólafsson í hljóm- sveitinni Töfraflautunni meö nokkrum vinum sínum, er að læra útsetningar í tónlistarskóla FlH, spilar jass á Hrafninum, semur tónlist og spilar inn á auglýsingar, samdi tónlistina fyrir Grænu lyftuna hjá Revíu- leikhúsinu, er skráöur í íslensku í Háskólanum (þótt honum hafi ekki gengiö vel aö mæta í vetur), vasast í blaöamennsku, æfir fót- bolta meö knattspyrnudeild Glímufélagsins Víkverja, er aö kaupa sér íbúö með kærustunni — og er svo hálfhissa á því aö hann skuli ekki hafa meiri tíma aflögu! „Ég veit ekki hvort ég lít á mig sem útvarpsmann fremur en annað. Ég er alltaf að vesenast í svo mörgu aö ég var alveg í vand- ræöum þegar átti að setja nafnið mitt í símaskrána. Ég er í svona fjórum fimm störfum, svo ég lagði bara saman tekjumar og fann út hvar ég heföi mest laun og þá skrifaöi ég Jón Olafsson tónUstarmaður.” .. .og lofaði sjálfan mig í hástert Jón er 22 ára Reykvíkingur og útskrifaöist sem stúdent úr Versló 1982. Hann hefur fengist viö tónUst frá því aö hann var smápatti, lært á píanó, spUað í hljómsveitum, veriö stjómandi Verslunarskólakórsins, en aldrei fyrr veriö plötusnúöur. Hvemig atvikaöist þaö aö hann réöst til rásarinnar í upphafi? „Ég skrifaöi Þorgeiri bréf, þekkti hann ekki neitt, sumariö ’83, áöur en rásin byrjaði og lof- aði sjálfan mig í hástert. Ég bauð fram aöstoð mína ef hann vantaöi fólk og heföi áhuga. Þaö var aldrei auglýst neitt opinber- lega og ég held að ég hafi verið einn sá fyrsti sem skrifaði hon- um. Svo fór ég í prufu í október eða nóvember og síðan var hringt í mig og ég tekinn í morgunþátt- inn með PáU, Ásgeiri og Am- þrúði. Þaö var mjög gaman. Viö vorum aUt upp í f jögur í einu í út- sendingu og þaö fór voöalega í taugamar á mörgum þegar við vorum aö gantast og spauga. Þaö var skrifað í blöðin og kvartaö 14 Vikan 18. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.