Vikan


Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 59

Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 59
Vinsældir golfíþróttarinnar hafa aukist mjög ört á undanförnum árum og er hún nú ekki lengur íþrótt ,,riku" mannanna, heldur almenningsiþrótt, íþrótt ungra sem aldinna, karla og kvenna. Golfiþróttin er kannski fram- ar öllu fjölskylduíþrótt. Golfíþróttin hefur nú verið stunduð á islandi i 50 ár. Þann 14. desember verður Golfklúbbur Reykjavíkur 50 ára, en hann er sá elsti á íslandi. Næstelsti klúbburinn er Golfklúbbur Akureyrar en hann verður fimmtugur á næsta ári. Á íslandi eru nú um þaö bil 25 golf- klúbbar vítt og breitt um landið og er það vafalaust heimsmet, miðað við fólksfjölda. Eins og annars staðar á landinu á golfíþróttin vaxandi gengi að fagna á Akureyri. Golfbakterían hefur gagntekið starfsmenn heilu fyrirtækj- anna, svo sem Slippstöðvarinnar, Landsbankans, Útvegsbankans, Mjólkurstöðvarinnar, SiS og Híbýla, svo nokkur stórfyrirtæki séu nefnd. Fyrirtæki á Akureyri hafa löngum verið mjög velviljuö í garð Golfklúbbs Akureyrar og stutt við bakið á starf- semi hans. Tilefni þessara skrifa er þaö að á liönu hausti var í annað sinn haldiö svonefnt Bautamót á Golfvellinum að Jaðri. Til þessa móts var boöið starfs- fólki í veitingahúsum á Akureyri og í Reykjavik, starfsfólki ferðaskrifstofa og blaðamönnum. Eins og flestir vita er Bautinn einn vinsælasti matsölustaður á Akureyri, en eigendur hans eru þeir félagarnir Stefán Gunnlaugsson og Hallgrímur Arason en þeir reka einnig veitinga- staöinn Smiðjuna I sömu húsa- kynnum og Bautinn er. Báðir þessir veitingastaöir njóta vinsælda bæjar- búa, ekki siöur en feröamanna. Eins og fyrr segir var þetta annað áriö í röð sem Bautamótið var haldiö og hafa forráöamenn fullan hug á að gera mótið að árvissum viðburði. Til mótsins að þessu sinni komu u.þ.b. 30 manns, ámóta margir að sunnan og noröan. Verðlaunagripur sá sem keppt er um er einn sá glæsilegasti sem um getur í íþróttakeppni hérlendis. Gripurinn er veittur þeim sem bestum árangri nær með forgjöf. Sigurvegari varð að þessu sinni Birgir Viðar Hall- dórsson, veitingamaður og fyrrum landsþekktur rallari. Birgir lék Jaðars- völlinn á 64 höggum nettó. I ööru sæti með-forgjöf varð Hallgrímur Ara- son (Bautinn), en í þriðja til fjórða sæti urðu jafnir þeir Ragnar Lár (Vikan) og Kjartan Bragason (Bíla- leigan Geysir). Ragnar vann hlutkesti og hlaut því þriðju verðlaun fyrir hönd Vikunnar. Án forgjafar sigraði Baldur Svein- björnsson (Islendingur) glæsilega, en hann lék á 73 höggum. I ööru sæti varð Sigurður Runólfsson (Hótel Saga) á 83 höggum en í þriöja sæti varð Þorbergur Ólafsson (Borgar- salan) á 85 höggum. Þess skal getiö að leikiö var af fremstu teigum (rauðum). Aukaverðlaun, eitt dúsín af John Letters golfboltum, gaf Heildverslun- in Tak hf. og voru þau veitt þeim sem næstur var holu eftir upphafshögg á 18. og siðustu braut. Lengst af átti Þorbergur Ólafsson besta upphafs- höggið en sá sem sló siöasta höggið á brautinni ,,stal" verðlaununum frá Þorbergi meö því aö komast ennþá nær holunni. Þessi „síðasti" kepp- andi var fulltrúi Vikunnar, Ragnar Lár. Mótsslit og verðlaunaafhending fór fram að kvöldi keppnisdags í Smiðj- unni. Var þar haldið veglegt hóf með veitingum góðum í mat og drykk. Þar voru haldnar ræður ágætar og lýstu menn yfir ánægju sinni með fram- kvæmd mótsins og óskuöu þess að Bautamótiö yrði fastur liöur ár hvert. Frá vinstri: Ragnar Lár, Hallgrimur Arason og Birgir Viðar. Guðrún Ófeigsdóttir var ein af þeim heppnu og hlaut vinning i happ- drættinu, máltíð fyrir tvo í Smiðjunni. Hér þakkar hún Hallgrimi Arasyni fyrir vinninginn, en svo skemmtilega vill til að hún er eiginkona hans og var mönnum skemmt er hún hlaut þennan vinning. Hallgrímur Arason óskar Baldri Sveinbjörnssyni til hamingju með frammi- stöðuna. Á milli þeirra tveggja eru þeir Þorbergur Ólafsson, t.v., og Sig- urður Runólfsson, formaður Nesklúbbsins. í hófinu var dregið í happdrætti, en happdrættismiði fylgdi hverju sæti við veisluborðið. Það er Súsanna Möller sem dregur vinningsnúmer úr bikarn- um góða. Hallgrímur fylgist með. 18. tbl. Vikan 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.