Vikan


Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 48

Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 48
\Tpó sturinn A I R M A I L PAR AVION Við erum svo feitar og aldrei boðið í partí Kœri Póstur. Vid erum hér þrjár niður- brotnar manneskjur. Þannig er mál með vexti ad vid erum /neð svo hrœðilega minni- mállarkennd af því að við erum svo feitar. Okkur er lil dœmis aldrei boðið í partí. Við regndum einu sinni að lialda partí en þaö kom enginn. Svo fáum við ,,aldrei” að vera lengur úti en til ,,hálf- tólf”, ekki einu sinni um helgar. Síðan er það aðalvanda- málið: enginn strákur lítur við okkur. Hvað eigum við að gera? Elsku Póstur, hjálpaðu okkur, við getum ómögulega lifað þetta af lengur. Með fgrirfram þökk fgrir birtinguna. Þrjár. Þið skuluð gera ykkur grein fyrir því, stúlkur mínar, aö þið eruð ekki nokkurn hlut verri manneskjur en aðrir þótt þið séuð í feitara lagi. Það eru margir sem þurfa að stríða við einhvers konar útlitsvandamál og þá er um aö gera aö horfast í augu við það og bera sig vel í staö þess að fyllast minnimáttarkennd og feimni. Fita er einnig nokkuð sem vel er hægt að ráða við meö góöum megrunar- kúr og sjálfsaga. Hættið aö borða allt sælgæti og kökur, boröiö minna smjör og sleppiö öllu mæjónesi, skerið fituna af kjötinu, borðið mikið af fiski án feiti, græn- meti og ávöxtum, létt- mjólkurvörum, notiö gervisykur í staö sykurs ef þið verðið að hafa sætt. Borðiö yfirleitt minna í öli mál en áður, hættið öllu áti milli mála og drekkið mikið af vatni. Fariö út að hlaupa, synda og hjóla og hamist í leikfiminni í skólanum. Þetta var nú bara svona heilræöi ef þið viljið fækka aukakílóunum. Aðalatriöið er þó að vera hressilegar og glaðlegar í framkomu og elskulegar við alla sem eiga það skilið. Þið ættuð ekki að vera alltaf saman eins og lagkaka heldur vera meira með krökkum hver í sínu lagi annað slagið. Hvað þýöir „aldrei” innan gæsalappa? Póstinn grunar aö þið séuð frekar ungar og þykir því ekkert skrítiö þótt þið fáiö ekki að vera lengur úti á kvöldin. Það er líka hægt að gera margt og mikið til hálftólf. Þegar þiö takið að hressast og blómstra í stað þess að sitja heima í fýlu yfir því hvað þiö séuö feitar og fara sjálfar út á meðal fólks í stað þess aö hanga bara saman þrjár líður örugglega ekki á löngu áöur en strákarnir koma í búntum til ykkar. Te ogjohn Taylor Kœri Póstur. Ég œtla að biðja þig að svara þessum spurningum fgrir mig. 1. Er koffín í tei? 2. Er mikil tedrgkkja hœttuleg fgrir tennurnar? 3. Geturðu gefiö mér upp- tgsingar um John Taglor í Duran Duran ? Eg vona að þú getir svarað þessum spurningum fgrir mig. Bœbœ. Ein forvitin. Já, það er koffín í tei og meira aö segja í mun meira mæli en í kaffi. Te er alls ekkert hættulegt fyrir tennurnar ef þaö er drukkið sykur- laust. Te inniheldur hins vegar flúor og er því fremur hollt fyrir tennurnar en hitt, það er enn og aftur ef það er drukkiö sykurlaust. John Taylor heitir víst fullu nafni Nigel John Taylor og er fæddur 20. júní 1960 í Birming- ham. Hann eignaðist sinn fyrsta gítar þegar hann var 15 ára en byrjaði ekki að leika á hann að ráði fyrr en hann var 17 ára og sneri sér svo aö bassanum þegar hann varð 19 ára. Hann var ásamt Nick Rhodes einn af stofnendum Duran Duran. Hann er sagöur vera hreinskilinn, ófeiminn og skap- góður. Honum þykir gaman að slappa af með James Bond í myndbandstækinu. Hann á einn gylltan Aston Martin og VW Golf og er að spá í aö fá sér Mercedes Benz af sportgerðinni, enda segist hann vera með brjálaöa bíladellu og dreymir um að eiga nýjan bíl fyrir hvern dag vikunnar. Flasa Hœ, kœri Póstur. Þú ert nú alltaf svo ráða- góður og þess vegna leita ég til þín í þeirri von að þú svarir þessu bréfi mínu. Viltu vera svo vœnn, kœri Póstur, að láta Helgu alls ekki komast í það. Ég er 14 ára og á við vandamál að stríða. Þannig er að ég er með svo mikla flösu. Það hreint og beint hj'gnur stans- laust úr hárinu þannig að fötin mín eru alltaf öll í flösu. Ég hef prófað flösu- sjampó en mér finnst það ekki gera neitt gagn. Er þetta einhver sjúkdómur sem ég get alls ekki losnað við ? Flasa er ekki sjúkdómur. Margir halda að flasa stafi af því að það séu of margar bakteríur í hárinu. Þetta er ekki rétt og flasa veldur ekki hárlosi eins og sumir halda. Flasa er ósköp eðlilegt fyrirbæri og er meira áberandi hjá sumum en öðrum. Flasa er flögur sem losna úr hornhúðinni og stundum flagnar hornhúðin meira en ella og silfurhvítar flögur falla. Flasa er algengust á yngri árum en minnkar venjulega um þrítugt eða hverfur jafnvel að mestu. Þetta getur auðvitað líka gerst miklu fyrr. Venjulegri flösu, eins og þú virðist eiga við að stríða, er hægt að halda í skefjum með því að þvo hárið á venjulegan hátt þrisvar í viku með hárþvottaefni sem inniheldur seleníum súlfíö (selsun). Við það flagnar minna úr hornlagi húðarinnar. Þetta skalt þú athuga í apóteki og jafnvel tala við sérfróða á hár- greiðslustofu. Þú getur svo hugg- að þig við það að flösumyndun minnkar venjulega þegar líður á vorið og á sumrin. Og þaö er nú að koma sumar. 48 Vikan 18. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.