Vikan


Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 46

Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 46
i eftir, þegar ljósin höfðu verið slökkt, allt sem hafði verið gefið í skyn í hundr- uðum ástarsagna í tíma-l ritunum? Þetta raka, blóðflekkaða lak undir olnboganum á henni, þessi ókunnuglega lykt af sveittum líkömum, súr þefurinn, klístruð bleytan sem vætlaði yfír lærin á henni. Það eina sem hún þráði var að verða hrein, að liggja í sínu eigin rúmi í sínu eigin herbergi þar sem sólin skein inn um gluggana gegnum blúndu- tjöldin. Það sem hún þráði mest af öllu í veröldinni var bað. Hún hlaut að hafa gert þetta eitthvað vitlaust.... Eða þá að hann hafði ekki farið rétt að einhverju. ,,I æfingu fyrir sumt, ekki í æfingu fyrir annað,” sagði Pierre um leið og hann lyfti höfðinu syfjulega og leit á hana. ,,Ó, Maxín, þú hefur alveg yndisleg brjóst.” Hann greip um þau hugfanginn. Brátt varð Maxín léttara í skapi, síðan greip hana heit vellíðunarkennd. Líkami henn- ar hreyfðist í takt við hans; hún gat ekki að þvt gert, henni fannst eins og hún væri að bráðna saman við hann eða var hann að bráðna saman við hana? Hún teygði handleggina utan um hann og þrýsti hörð- um sterklegum þjóhnöppun- um á honum upp að sér. ,,Ekki hætta, gerðu það, ekki hætta, ekki hætta,” stundi hún í ákafa. Henni fannst hún vera í kyrrstöðu eins og foss í klakaböndum, síðan skrapp hún aftur og aftur saman og fann til undarlegrar gleði. Þetta var svo sannarlega eins gott og hún hafði heyrt af látið — satt að segja enn betra. rsmíðarnar á hurð- inni urðu enn ofsalegri. Maxín vaknaði með andfælum, fann hlýjan, nakinn líkamann við hlið sér og hrökk aftur í kút. ,,Maxí, Maxí!” Hún kann- aðist við ákafann í rödd Heiðnu. Hún staulaðist fram úr rúminu, þreifaði sig fram eftir ókunnugu tunglbjörtu herberginu að dyrunum. Hún opnaði þær varlega og skýldi nekt sinni. Þar stóð Heiðna í allt of stóru grænu tvídkápunni sinni. „Gerirðu þér grein fyrir því að það er næstum komið mið- nætti? Þú sagðir að Pierre myndi fylgja þér heim fyrir kvöldmat en við fórum samt ekki að hafa verulegar áhyggjur fyrr en kom að háttatíma. ’ ’ „Guð minn góður,” stundi Maxín. ,,Ég meina, fjandinn sjálfur, þá vita þau að ég er ekki komin inn!” ljósum frá bíl sem kom á hægri ferð. Síðan nam hann snögg- lega staðar og þeim til skelfing- ar var háu ljósunum varpað beint á þær. Þegar dró saman var gluggarúðunni rennt niður og maður teygði sig út. ,,Hvað er að sjá?” sagði hann hressilega. „Hafið þið verið að kíkja á næturlífið? Þetta var Paul, bílstjóri skólastjórans. „Komið ykkur aftur í,” sagði hann hörkulega. Þær skreiddust inn. Síðan sneri Paul sér við og setti annan handlegginn á aftursætið og „Nei, þegar ráðskonan slökkti ljósin sagði Kata að þú værir inni á baðherbergi. Síðan biðum við þar til allir voru farnir í háttinn og köstuðum upp franka til þess að ákveða hvor ætti að fara að leita að þér. Ég tapaði svo Kata læddist inn á skrifstofu og lyfti bakdyra- lyklinum af króknum og hún bíður eftir okkur til þess að hleypa okkur inn. Fjögur þung högg á eldhúsgluggann er merkið. í almáttugs bænum, flýttu þér! Maxín klæddi sig skjálfandi í skíðafötin án þess að vekja Pi- erre. Stúlkurnar læddust á tán- um eftir ganginum, niður brakandi tréstigann og út á götuna. Þær þögðu, settu hendur í vasa og hlupu þung- lamalega í snjónum eins hratt og þær komust, stundum skrik- aði þeitn fótur og stundum skripluðu þær á svelli. rjl ,, dimma skólabygginguna var vegurinn skyndilega baðaður í glotti að náfölum stúlkunum sem vissu að þeirra beið brott- rekstur. „Hvers vegna að snúa við núna? Af hverju komið þið ekki með mér á ekta nætur- klúbb? Ég veit um einn þar sem enginn ber kennsl á ykkur og ykkur er alveg óhætt með mér.” „Nei, við lendum bara í enn meiri vandræðum,” tautaði Maxín og minntist þess sem Nick hafði sagt um Paul. En það fyrsta sem Heiðnu datt í hug var að ef hún færi með Paul þá yrði hann vitorðsmaður þeirra; þá gæti hann ekki kjaft- að í Chardin. Þær yrðu ekki reknar. Hún safnaði kjarki. „Það er best að Maxín fari inn því það er beðið eftir okkur. Ég skal koma með þér, en hvernig kemst ég aftur til baka? ,,Auðvitað er ég með lykil. ’ ’ Með áhyggjusvip stökk Max- ín út úr bílnum og hljóp yflr snjóinn að bakdyrunum. Blái jagúarinn bmnaði burtu. En Paul ók ekki að nætur- klúbbi. Hann ók gegnum bæ- inn og út fyrir hann hinum megin. „Heyrðu mig!” sagði Heiðna og sat þráðbein í sæt- inu þegar þau óku upp að yfir- gefnu húsi. „Er þetta nætur- klúbbur?” „Nei, ég á heima hérna,” svaraði Paul. „Það er ömggara en næturklúbbur. Við fáum okkur bara eitt glas, svo ek ég þér aftur í skólann. fj/l^- eiðn æiðna leit út úr bíln- um. Hún sá ekki lengur ljósin í Gstaad og hafði ekki hugmynd um hvar hún var. Því fylgdi hún Paul hlýðin inn í litla bjálkahúsið og inn í ótrúlega nýtískulega stofu. Þar voru nokkrir lágir krómstólar, af- strakt málverk héngu í þungum silfurrömmum og hvíta marmarastyttu bar við svarta veggina. Heiðna deplaði augunum í undmn sem yfirvann þreytuna. Hún stóð þögul á miðju gólfinu, enn í kápunni, en Paul tók til við silfraðan kokk- teilhristara. Hann hristi hann, hellti innihaldinu í glas og rétti Heiðnu. Lyktin var eins og af sápu og hreingerningarlegi þó svo Paul segði það vera koníak og vodka með skvettu af ein- hverju. Eins gott að halda hon- um góðum, hugsaði Heiðna — en eina leiðin fyrir hana til þess að drekka sullið var að halda niðri í sér andanum og skella því í sig. Hún gerði það. Hún fmssaði, fann hvernig fæturnir sviku, síðan leið hún út af. y/^ fj/t^iðní ;iðna óskaði þess að maginn í henni róaðist. Hún bjóst ekki við að geta nokkm sinni lyft höfðinu aftur. Var- lega opnaði hún augun. Bjart ljós steyptist yfir hana. Hún lokaði augunum. Hana svim- aði, henni var að verða óglatt, hún virtist ekki hafa neina stjórn á útlimunum. Hún fann kalt stál koma við úlnliðina á sér og heyrði smell . . . Hvað hélt maðurinn að hann væri að gera? 4<> Víkan 18. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.