Vikan - 02.05.1985, Síða 34
aldrei hafa viljað gifta sig, það
hafi veriö Bianca sem þröngvaöi á
hann hnappheldunni á sínum
tíma. „Mér leiðast lagalegar
skuldbindingar. Hjónaband er
eins og aö skrifa undir 356 blað-
síðna samning án þess að hafa
hugmynd um hvað stendur í
honum. Mér finnst þaö tóm vit-
leysa — ég er ánægöur með gang
mála eins og hann er.”
En Jerry?
„Ég er viss um að hana langar
að gifta sig einhvern tíma en hún
biður ekki svo oft um þaö nú orö-
ið.”
Að mati Mick Jagger virðist það
alltaf vera konan sem vill giftast
þó að sú sé ekki endilega alltaf
raunin. „Margar þeirra eru aldar
upp meö rómantískar grillur um
hvíta kjólinn, kirkjuna og mesta.
sæludag lífsins og myndaalbúmið.
Þær viröist enn vera við lýði, þess-
ar rómantísku miðaldahug-
myndir, ekki þó alltaf og ekki hjá
öllum konum en þessi goösögn lifir
enn.”
En Jerry lætur afskaplega vel
að vera móðir, segir hann, og
sjálfur segist hann elska börn.
Honum þykir afar vænt um dætur
sínar en hefði gjarnan viljaö
eignast son, þó svo að sú löngun
hvíli ekkert þungt á honum. Hann
leikur sér mikið viö Elizabeth
Scarlett, matar hana og svæfir.
„Þaö er mjög mikilvægt aö börn á
þessum aldri finni öryggi,” segir
hann.
Hinar dæturnar eru Karis, 14
ára, dóttir Marsha Hunt, og Jade,
13 ára, dóttir Bianca Perez, fyrr-
um eiginkonu kappans. Karis
hefur ekki veriö mikið með fööur
sínum en hann kostar nám hennar
og sýnir henni nú meiri áhuga en
áður. Jade er í heimavistarskóla.
Pabbi vill ekki leyfa henni að vera
á Manhattan sem hann segir ekki
stað fyrir ungling að alast upp á.
Jagger átti sjálfur að fara í
heimavistarskóla þegar hann var
strákur en hann kom sér undan
því með því að gera samning viö
föður sinn. Ef hann fengi hæstu
einkunnir í öllu á prófunum í
gamla skólanum mátti hann vera
þar áfram og stráksi gerði sér lítið
fyrir og fékk A í öllu. Jagger bauð
Jade upp á sömu býti en henni
tókst ekki aö uppfylla kröfurnar.
I ástarmálunum segist Mick
Jagger vera bæði rómantískur og
ástríðufullur en ekki alltaf jafn-
heppinn í ástum, eins og gengur.
Hann heldur enn góðu sambandi
við sumar gömlu kærusturnar, til
aö mynda þá frægustu þeirra,
MarianneFaithful.
Jagger segist þarfnast stöðug-
leikans sem samband hans viö
Jerry Hall gefi sér en hann vill
ekki láta njörva sig niður. Hann
segir: „Það er ekki hægt að vera í
föstu sambandi og eltast jafn-
framt við hvaða stelpu sem á vegi
manns verður. En ég hef útskýrt
þaö fyrir Jerry að ég vilji samt
ekki láta útiloka mig frá öðrum
helmingi mannkynsins. Henni
finnst þaö ekkert tiltökumál.
Henni þykir gaman aö rabba við
myndarlega menn í samkvæmum
á meðan ég tala við sætar stelpur.
Það eiga allir í lauslegum sam-
böndum, sérstaklega í borgum.
Ég er mikill borgarbúi og lendi oft
í svona lausasamböndum. Maður
getur ekki hætt að standa í öllu
svona á meðan þaö heldur áfram
að koma upp á, en það er ekki þaö
sama og að vera með hvaða stelpu
sem maöur hittir.
Jagger virðist ekki setja órofa
tryggð neitt sérlega ofarlega á
blað og heldur því fram að þaö
reynist sér mjög erfitt að vera
konu sinni trúr ef hann sé í
burtu frá henni til lengdar. „Ég
held aö þaö sé frekar sjaldgæft,
Charlie Watts (trommuleikarinn í
Stones) er sá eini sem ég veit
um.”
En Mick Jagger er ekki bara
aðlaðandi í augum kvenna, hann
fellur líka í kramið meðal margra
karlmanna. í viötalinu ýjar hann
að því aö hann hafi átt vingott við
karlmenn en þegar blaðamaður-
inn gengur á hann segist hann ekki
hafa átt í neinu alvarlegu slíku
síðan hann var í skóla og reyndar
ekki einu sinni þá, og svo vill hann
eyöa talinu. Hann segist þekkja
marga homma og einu sinni á
„tvíkynja tímabilinu” á sjöunda
áratugnum hafi hann haft mjög
gaman af því að vita að hann gekk
í augun á karlmönnum líka en
hann líti á sig sem algjörlega
neterosexual.
Jerry Hall er hálaunuð ljós-
myndafyrirsæta og hefur nóg að
gera utan heimilisins. Jagger
hefur ekkert á móti því að hún
vinni sitt starf og dragi í búið en
hann er ekki jafnhress með
eyðslusemina í henni og hégóma-
girndina. „Mér finnst þetta kjána-
legt, allir þessir pelsar og skart-
gripir. Ég er alltaf að reyna að
segja henni það. Mér þykir ekkert
gaman að fara með henni út í ein-
hverjum þessara rándýru loðfelda
sem hún hefur fengið fyrir ein-
hverja auglýsingu eða keypt fyrir
eigin peninga vegna þess að ég hef
ekki viljaö gefa henni fyrir
honum. Mér finnst þaö afkáralegt
og ég þoli reyndar ekki pelsa yfir-
leitt. Mér finnst það vanþroska-
merki aö hafa gaman af slíku. En
ég var líka vanþroska lengi. Svo
maöur verður bara aö vera þolin-
móður.”
Hvernig líður Mick Jagger 41
árs? „Æ, ég veit þaö eiginlega
ekki. Ég þekki engan sem er 41
sem segði ekki aö hann vildi
frekar vera 31 eða 21. . . En það er
ekki hægt að gera mikið í málinu,
maður verður bara að sætta sig
viö það.”
Mick Jagger er ekkert að hætta í
bransanum þó kominn sé á
fimmtugsaldurinn — þaö eru fleiri
að gera þaö gott — en hver veit
nema einhverra breytinga sé að
vænta hjá honum á næstu árum?
Um það vill hann þó ekkert
upplýsa að svo stöddu.
(Þýð. og samantekt ÞE)
34 Vikan 18. tbl.