Vikan - 02.05.1985, Síða 40
VÍDEÓ— VIKAIM
Vídeó-Vikan er þáttur fyrir þá sem áhuga hafa á myndböndum og þeim kvikmyndum
sem unnt er að verða sér úti um hjá myndbandaleigum til afnota I heimahúsum.
Við leggjum áherslu á að ekki er ætlunin að gagnrýna
þætti og kvikmyndir heldur kynna þær sem á boðstólum eru
og við teijum óhætt að mæla með.
Framleiðandi:
Mike Wise og Franklin R. Levy.
Handrit:
James Prideaux.
Tónlist:
Arthur B. Rubinstein.
Leikstjórn:
Joseph Hardy.
Leikendur:
Elisabeth Taylor, Joseph Bottoms,
Allyn Ann Mc Lerie, Peter Donat og
James Ray.
íslenskur texti.
Einkaréttur á Íslandi:
JS Video.
Endurkoma
Emely Hillman
Þessi mynd með Elisabeth
Taylor í aðalhlutverki fjallar um
miðaldra kennara, dr. Loomis
(Elisabeth Taylor), og ungan
nemanda hennar, Andermann
(Joseph Bottoms). Nemandinn er
á höttunum eftir herbergi utan
heimavistar skóla þess sem hann
stundar nám við og þar sem dr.
Loomis kennir.
Honum er bent á að leigja hjá
dr. Loomis sem hefur laust her-
bergi. Andermann á við sam-
skiptaörðugleika aö stríða og hon-
um er hálfvegis troðið upp á dr.
Loomis sem finnst nemandinn
ekki beint samvinnuþýður, við
fyrstu kynni.
Hann fer sínu fram í hinum nýju
heimkynnum, hjá dr. Loomis.
Hann setur upp sjónvarpsloftnet
á þakinu, í trássi viö húseig-
andann, Loomis, og hann hefur
allt of hátt í sjónvarpstækinu og
útvarpinu. Og umvandanir dr.
Loomis bera ekki árangur.
Meö þeim takast samt góð kynni
að öðru leyti og þau rabba saman
þegar tóm gefst. — Andermann
kemst að því að dr. Loomis var áð-
ur frægur skemmtikraftur. Hann
hafði fundið minnisbók dr. Loomis
í einum skápnum í herbergi sínu.
Honum tekst með brögöum aö
lokka hana til að koma fram á
skemmtun í skólanum. En við
þetta allt tekur líf hinnar virðu-
legu kennslukonu miklum stakka-
skiptum.
Samkennarar dr. Loomis höfðu
auðvitað tekiö eftir því að hún
gjörbreyttist eftir að Andermann
settist að hjá henni. En vinkona
hennar, einn kennarinn, verður til
þess að komast að því hvað það er
sem veldur breytingunni.
Það er nýtt umhverfi og nýjar
aðstæður sem Elisabeth Taylor
sést í þegar horft er á þessa mynd.
Og mynd með henni er alltaf
nýstárleg. — Mynd fyrir alla fjöl-
skylduna.
<g
IAL V
MURDER
HRISTOPHER I’LL
NGIE DICKINSON
,,Þú hringir, við myrðum"
Mynd byggð á
leikriti Frederick Knall.
Framleiðandi:
Peter Katz.
Leikstjóri:
Boris Sagal.
Aðalleikarar:
Christopher Piummer og
Angie Dickinson.
Einnig:
Antony Quayle,
Michael Parks, Ron Moody.
Einkaréttur á íslandi:
JS Video.
Sýningartími er 90 minútur.
íslenskur texti.
Dial „M"
For Murder
Myndin gerist í London árið
1963. Þaö er verið að taka kvik-
mynd í kvikmyndaveri. — Auðug
kona, Margot að nafni (leikin af
Angie Dickinson), býr ásamt
eiginmanni sínum, Tony
(Christopher Plummer), í Lond-
on.
Margot kemur í kvikmynda-
verið þar sem verið er að kvik-
mynda eftir einni af sögum Max
Halliday. Margot hafði um tíma
haldið við Max þennan. Hún
kemur til að segja honum að nú
verði þau að hætta að hittast.
Bréf sem farið höfðu á milli
þeirra hafði Margot nú brennt, að
undanskildu einu sem hún segist
hvergi geta fundið, það hafi horfið
á dularfullan hátt. í stað þess hafi
hún móttekiö miða þar sem hún er
beitt fjárkúgun, gegn hótun um
að manni hennar verði afhent
bréfið.
Max Halliday vill ólmur
komast að því hvaðan þessi
hótunarmiði er upprunninn. Þau
fara heim til Margot og hún
kynnir Max fyrir eiginmanni
sínum, Tony.
En Tony hefur í millitíðinni
komist að ástarævintýri konu
sinnar með Max Halliday. Tony
leitar uppi gamlan tennisfélaga
með vafasama fortíð og kúgar
hann til að gangast við kröfum
sínum um að ráða Margot, konu
sina, af dögum. . .
Þetta er ein þessara vönduðu
sakamálamynda sem allflestir
hafa gaman af að horfa á, undir-
búningur að morði, vandlega svið-
settur, spenna á „klassíska” Vísu
— eða breska ef menn vilja frem-
ur orða það þannig — mynd sem
orðið hefur þekkt um allan heim —
ekki síst eftir að hún komst á
myndbönd. — Bönnuð börnum
yngri en 16 ára.
40 Vikan 18. tbl.