Vikan - 02.05.1985, Page 60
Popp
Umsjón: Halldór R. Lárusson
Nokkrir
punktar
um
Duran
Duran
Simon Le Bon hefur unniö sem
tré-skurðlæknir.
Lagið RIO hét upphaflega See
me, Repeatme.
Roger Taylor mun vera hvað
hárprúðastur á fótleggjunum af
þeim félögum.
Þegar Simon var fimm ára lék
hann í þvottaefnisauglýsingu.
Andy kynntist konu sinni, Tracy, á
hárgreiðslustofunni sem hún vann
á.
Uppáhaldstónlistarmaöur
Simons heitir Chopin og mun hann
lítið hafa fengist við popptónlist
meðan hann var og hét.
Uppáhaldseign Johns Taylor
mun vera leikfangaljón sem hann
fékk að gjöf frá aðdáanda sínum.
Simon Charles Le Bon og Roger
Andrew Taylor munu vera þeir
einu sem ekki hafa á einhvern hátt
breytt nafni sínu síðan þeir voru
skíröir. John var skíröur Nigel
John Taylor, Nick var skíröur
Nickolas James Bates og Andy
bætti eftirnafni konu sinnar við
nafn sitt þegar hann giftist í júlí
1982 og heitir því fullu nafni Andy
Wilson Taylor.
Andy Taylor er frá litlu fiski-
þorpi sem heitir Cullercoast.
Faðir hans og afi voru (eru) báðir
fiskimenn og klósett heimilisins
var utandyra og baðkarið eitthvað
í átt við það sem sést í kábojmynd-
um.
Simon Le Bon er kominn af
frönskum húgenottum. Simon á
hund sem heitir Sam, Nick á kött
sem heitir Sebastian og Andy á
hund sem svarar nafninu Charley.
Simon er sá eini af hljóm-
sveitarmeðlimum sem ekki á
rauðar rósir sem uppáhaldsblóm.
Innan hljómsveitarinnar er
Simon kallaður Charley, John er
nefndur JT, Roger er kallaður
Froggy Barnacle, Andy er kallað-
ur Sniffer og loks er Nick kallaður
Ringo og mun honum vera mjög í
nöp við það.
Furðulegasta gjöf sem Simon
hefur fengið frá aðdáanda mun
vera askja, full af sandi.
mmm
Mick
Jagger:
She's
the
Boss
Það fór aldrei svo að Mick Jagg-
er, söngvari Rolling Stones, gæfi
ekki út sólóplötu og kannski ekki
seinna vænna; hann hefur verið í
bransanum í meira en tuttugu ár.
Það hefur alltaf komið upp sá orö-
60 Vikan 18. tbl.