Vikan


Vikan - 21.11.1985, Page 7

Vikan - 21.11.1985, Page 7
Kraftur — ástrfða — styrkur Sagan segir afi sporðdrekinn hafi komið úr jörðinni til að ráðast á Órion að undirlagi Júnóar. Fleiri goðsagnir tengjast einnig sporðdrekanum þar sem hann er í hlutverki eyðandans. En í rauninni er sporðdrekinn alveg indæll, að minnsta kosti að eigin áliti. Hann getur verið erf- iður en yfirleitt er hann sjálfum sár verstur. Helstu kostir hans eru krafturinn, tilfinninga- næmi og innsæi, hann vinnur yfirleitt markvisst og hefur skapandi og frjótt imyndunarafl, hann á létt með að sundurgreina smáatriði og það sem meira máli skiptir, hann er afskaplega ákveðinn ef þvi er að skipta, jafnvel harðfylginn, þyki honum það vænlegt til árangurs. Gallarnir eru þá frekar neikvæðari hliðar þess- ara eiginleika þegar ákveðnin verður að þver- móðsku, imyndunaraflið hleypur með sporðdrek- ana í gönur og gerir þá afbrýðisama, tortryggna og óhreinskilna og svo eiga þeir til að hlaupa i fýlu af litlu tilefni. Helsta einkenni sporödrekans er barátta hans við eigin skapgerð og tilfinningar. Hann hefur þróttmikla framkomu og er ekkert sérlega gjarnt að leyna sínum innri manni. Hann vill njóta allra lystisemda lifsins til fulls, helst straxl Kynlif ekki undanskilið, fá stjörnumerki eru eins mettuð af ástleitni og einmitt sporðdrekinn. Yfirleitt hafa sporðdrekar það seiðmagn sem opnar þeim þær leiöir í ástum sem þeir kjósa, en þeim getur veist erfiðara að vinna úr þvi sem þeir hafa komið af stað. Þeir eru afbrýðisamir en ekki alltaf reiðu- búnir að sýna öðrum sömu tryggð og þeir ætlast til að þeim sé sýnd. Best vegnar þeim sporðdrek- um i ástum sem geta leynt afbrýði sinni því sjald- an tekst þeim að stilla hana innra með sér. Ein- staka sinnum sækjast sporðdrekar eftir pislar- vætti sem hæfir illa kröftugri framkomu þeirra, oftar eru þeir aðgangsharðir við aðra án þess að vera illgjarnir. örninn hefur stundum verið tákn sporðdrekamerkisins og þau persónueinkenni sem eignuð em ömum eiga þá eins við um sporð- dreka, þótti, þokki og stórlæti. Jafnframt geta sporðdrekar hafið sig yfir veraldlegt þras, þyki þeim það eftirsóknarvert og aðrir geta þá tæp- lega komið þeim inn í það á nýjan leik ef þeir taka þann pól i hæðina. Það vill sporðdrekum stundum til að þeir eiga létt með að aðlaga sig breyttum aðstæðum því sviptingar eru óhjákvæmilegar i lifi þeirra. Það kemur mörgum á óvart hvað þeir hafa mikið þol þegar þeir eru undir álagi og hvað þeir eru fljótir að komast yfir erfiðleika í lifinu. Náttúran hefur fært þeim lífsþrótt í vöggugjöf og meðan þeir fara vel með hann þola þeir vel það álag að vera sporðdrekar. Sporðdrekar þykja oft á tíðum leyndardóms- fullir og i kringum þá geta myndast sögusagnir, sumir verða jafnvel goðsagnir i lifanda lífi. Þeir eru þó blátt áfram i viðkynningu og skemmtilegir félagar en geta verið vinum sínum erfiðir því óneitanlega eru þeir skapstórir. Innsæi og skipulagsgáfa eru óneitanlega gott veganesti þeim sem hasla sér völl á andlega svið- inu og það gera sporðdrekar oft á tíðum. Þeir eru meira fyrir að vera eigin herrar, hvort sem er i námi eða starfi, heldur en að lúta leiðsögn ann- arra og skapið, afbrýði og þrjóska staðfestir það enn frekar. Sporðdrekar eru miklar tilfinninga- verur en þeir eru jafnframt afskaplega mikið fyrir holdsins lyst og það kemur best fram i ástum þeirra. Þeir sætta sig yfirleitt aldrei við ófullnægj- andi ástalíf. Þeir vilja helst að ástin sé þunga- miðjan i tilverunni og gera sitt til að svo geti orð- ið. Í starfi reynist sporödrekum best að hasla sér völl þar sem innsæi þeirra og mannþekking nýtur sín. Þeir eru oft góðir sálfræðingar og læknar. í viðskiptum gengur þeim best við stórverkefni sem krefjast áræðni, þeir fara stundum út i lögreglu- störf og hafa þá ekkert á móti þvi að komast í rannsóknarlögreglu þvi hið óþekkta heillar þá mjög. Í sporðdrekamerkinu fæðast margir með miðilshæfileika og áhuga á alls konar yfirskilvit- legum efnum. Athygli og hrós er sporðdrekanum lifsnauðsyn. Þeim nægir ekki að finna sig sjálfa vinna vel, þeir verða að heyra aðra segja þeim það. Þeir leggja sig fram i vinnu og þeir leggja sig ekki siður fram, um að töfra samstarfsfólkið. Þeir eiga yfirleitt létt með að læra og hafa gaman af að rannsaka mál eða aö velta þeim fyr- ir sér. Þeir stefna oft hátt í námi og er meinilla við að ganga illa þó þeir geti gleymt sér um stund og slakað á sjálfsaganum þegar tilfinninga- málin eru að erta þá. Sem foreldri hættir sporðdrekanum til að vera fullkröfuharður og ráðríkur en börn fædd i þessu merki eru á hinn bóginn kölluö þrjósk og mikil fyrir sér. Þau þola illa að vera annað en miðdep- illinn i systkinahópi og þurfa talsverða athygli um- fram flest önnur börn ef æskan á að verða þeim þægileg. Tilfinningamálin eru viðkvæmust á bernsku- skeiði. 47. tbl. Vikan 7 24. OKTÓBER— 22. NÓVEMBER

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.