Vikan


Vikan - 21.11.1985, Page 49

Vikan - 21.11.1985, Page 49
um? Hakem herforingi fylgir þér þangað. ’ ’ Lilí fann silkimjúkt yfirskegg- ið á handarbakinu og þegar Abdúllah gekk í burtu var Suliman kominn fyrir framan hana og hneigði sig. ,,Ég held að mig langi ekki til þess að dansa,” sagði Lilí. Hún var föl og fann dúndrandi æða- slátt á gagnaugunum. ,,Það má ef til vill bjóða þér að setjast út í jasmíngarðinn?” Hann leiddi hana gegnum langa, hvíta marmaraganga og út í stjörnubjarta nóttina. Gulur máninn hékk á himninum yfir litla garðinum sem baðaður var daufri birtu. Hvít jasmínblóm hrundu niður frá háum veggjun- um og fylltu loftið höfugum ilmi. Hakem herforingi klappaði tvisvar saman lófunum og hvít- klæddir þjónar birtust með kaffi og krapís á silfurbakka. Lilí sneri sér að herforingjan- um en hann hvarf út í buskann og í hans stað var Abdúllah kom- inn, óstjórnlega myndarlegur í tunglskininu. Hann lyfti fingur- gómunum á henni upp að vör- unum og hún fann fyrir tönnun- um í honum á nöglunum á sér, hvernig svart hárið straukst blíð- lega við handarbakið á henni. ,,Mér fínnst ég þekkja þig nú þegar, að ég hafi alltaf þekkt þig,” hvíslaði hún. ,,Mér finnst það líka,” hvísl- aði hann um leið og varirnar á honum strukust yfir hálsinn á henni, ,,eins og við tilheyrum hvort öðru.” Lilí mundi ekkert af því sem gerðist þar á eftir nema skin tunglsins eins og kynjabirtu í flauelsmjúkri nóttinni, jasmin- blómin, ævintýralegan óraun- veruleikann í hálfrökkvuðum garðinum og hvernig legubekk- urinn gaf eftir um leið og hún teygði hvíta armana upp um hálsinn á honum. Það var næstum komið hádegi þegar Lilí opnaði augun og horfði upp í skrautlegt loft sem hún kannaðist ekki við og bláan himin fyrir ofan þak- glugga. Hún •settist í snarhasti upp í rúminu og dró mjúkar rekkjuvoðirnar yfir nakinn líkamann. Hún var ein. En hún hafði ekki verið ein. Hún hallaði sér hægt aftur á bak á koddana og mundi hvernig það hafði verið að snerta hann. Minningin var óljós. Það hafði verið dimmt í garðinum og síðar, þegar hann fylgdi henni upp í herbergið hennar, var mynd hans ekki heldur skýr. En hún myndi aldrei gleyma því sem gerðist inn á milli jasmínblóm- anna. Það sem hún átti eftir ólifað myndi sætur, æsandi ilmurinn af þessum blómum flytja hana óravegu í tíma og rúmi aftur í litla, svarta og silfur- hvíta garðinn þar sem hún upp- lifði í fyrsta sinn heita ástríðu. Snemma um kvöldið söfn- uðust gestirnir saman í ytri hall- argarðinum. Þar beið þeirra heill floti Land Rover bifreiða til að aka þeim meðfram ströndinni til Dinada hallarinnar og út í eyði- mörkina þar sem halda átti veislu undir tunglskinsbjörtum himni. Abdúllah gekk hægt niður marmaraþrep hallarinnar. Eng- inn mátti koma opinberlega fram við Abdúllah eins og jafn- ingja og fáir reyndu það heldur þegar þeir voru einir með hon- um. Gestirnir beygðu sig og bugt- uðu fyrir Abdúllah sem leit á Lilí án þess að virðast kannast við hana. En þegar búið var að vísa Þaðerkominn vetur Kuldafatnaður í úrvali Loðfóðraðir samfest- ingar. Kuldaúlpur. Kapp-klæðnaður. Peysur, buxur og skyrtur í miklu úrvali. Still-long-uliarnærföt, þessi bláu norsku til. Utiveru- hlýirsokkar. 47- tbl. Vikan 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.