Vikan

Tölublað

Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 15

Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 15
„Kannski hef ég stundum brugðið yfir mig kápu fíflsins" lllugi Jökulsson talar við Flosa Ólafsson Ljósm.: Ragnar Th. ,,Fæ ég mynd af mér á forsíð- una?" spurði Flosi Ólafsson þegar ég hitti hann á Lækjartorgi. ,,Já," svaraði ég. ,,Ekki veit ég betur." ,,Fínt!" sagði Flosi ánægður. ,,Þá skal ég koma í viðtal. Ég er nefnilega svo mikill exibisjónisti að ég geri hvað sem er til að fá mynd af mér í blöðin!" Og svo skellihló hann og bætti því við að við skyld- um tala um konur. Eg hermdi það upp á hann þeg- ar viö vorum sestir niður í stof- unni heima hjá honum með kaffi- krúsir ogtóbak. „Konur? Sagöi ég það? Það má anijars vel vera. Sannleikurinn er sá að ekkert hefur spilað stærri rullu í mínu lífi en konur. Eg á það sameiginlegt með flestum öðrum að hafa verið getinn í móðurkviði og síöan hefur líf mitt snúist meira eða minna um konur. Eg hef til dæmis verið ástfanginn svo lengi sem ég man eftir mér, venjulega þó aðeins af einni konu í senn. Ég minnist þess að þegar ég var átta eöa níu ára grét ég mig í svefn allar nætur vegna ástar á kaupa- konu í Borgarfirðinum þar sem ég var í sveit. Ég dansaði við hana á einhverju balli; hélt um hnésbot- ina á henni með hendinni. aðrir herrar héldu um mittið, og lagði vangann þétt að skauti hennar! Við dönsuðum djúpan tangó og ég vissi að þarna var komin konan sem ég myndi deila lífinu með. Seinna á sama ballinu sleit hún þessari trúlofun okkar; ég sá hana hverfa út í nóttina — með vega- vinnuverkstjóranum! Eg var óhuggandi lengi vel en það bjarg- aði mér að skólinn var á næstu grösum og þá sneri ég mér að því að elska bekkjarsysturmínar.'' — Og var ástin alltaf jafnheit? ,,Já, já, þetta var alltaf geysi- mikil ást. Það var ekki fyrr en ég var orðinn rúmlega tvítugur að ég vaknaði upp viö þann vonda draum að ég elskaði enga konu. Það var hryllileg tilfinning og miklu verri en allar þær ástar- sorgir sem ég hafði þá þegar geng- ið í gegnum. Þetta stóð í heila þrjá mánuöi en svo rættist sem betur fer úr þessu og til frambúðar, skulum við segja þegar ég hitti Lilju.”' Og Flosi skimaði fram í eldhúsið þar sem Lilja kona hans var eitthvað að sýsla. Hann hélt svo áfram: „Ætli ég sé ekki með kvenna- fóbíu? Ég held að eiturfíkn sé litið mál miðað við þaö hversu háður og undirseldur maður getur orðið kvenfólkinu. . .” — Þú ert nú samt oft sakaður um að vera mesta karlrembusvín, ekki síst vegna greina þinna í Þjóðviljan- um. „Já, fólk sem ekki kann að lesa milli línanna viröist álíta það. Sjálfur set ég aldrei stafkrók um konur á blað öðruvísi en í þeim einlæga ásetningi að leggja þeim liö í þeirra erfiðu kvennabaráttu — sem þær virðast aldrei ætla að sigra í.” — Ertu hissa á þvi að fólk mis- skiiji greinarnar þínar? „Svolítið. Mér finnst skrýtið ef fólk áttar sig ekki á því að ein að- ferð til þess aö leggja málstað lið Vikan 2. tbl. 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.