Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 24
Slúður
Hin guðdómlega Divine
Þessi kostulega mannvera kallar sig Divine (hin guðdómlega)
og er leikari og söngvari — karlkyns. Hann heitir réttu nafni Glen
Milstead. Hún/hann er 40 ára gamall, sköllóttur og lágróma og
segist vera íeiminn og hlédrægur. „Divine er bara gervi sem ég
fel mig á bak við. Sjálfur er ég ekki vitund líkur henni,” segir
Glen Milstead.
Hann hefur leikið Divine síðan hann var unglingur og John
Waters, sem gert hefur allar Divine-myndirnar, var nágranni
hans og leikfélagi í Baltimore í Bandaríkjunum. Þeir tóku myndir
á 8 mm vél til að byrja með og urðu brátt þekktar fígúrur í undir-
heimamenningu stórborganna. Meö myndunum Pink Flammingo
og Polyester (myndinni fylgir lyktarspjald) sem báðar hafa verið
sýndar hérlendis (við mismikla hrifningu) urðu þeir John Waters
og Divine heimsfrægir.
Nú hefur Divine fengið hlutverk í sinni fyrstu Hollywoodmynd.
Hún nefnist Lust in the Dust og er kúrekamynd með söngvum í
gamansömum stíl. Þar leikur Glen Milstead konu að nafni Rosie
Divine á sviði i fullum skrúða.
og er öllu blíðari og viðkunnanlegri en Divine en lætur sér samt
ekki allt fyrir brjosti brenna. Glen Milstead er einnig búinn aö fá
hlutverk í kvikmynd sem karlmaður. Það er í glæpamynd sem
nefnist Trouble in Mind og eru mótleikararnir Kris Kristoferson,
Keith Carradine og Lori Singer.
Þetta merkir þó ekki að Glen Milstead hafi sagt skilið við
Divine. Vinsældir hennar fara hríðvaxandi þótt kvikmyndagagn-
rýnendur hafi látið hana hafa það óþvegið og fjöldi fólks hrist
hausinn af hneykslan og viðbjóði. Foreldrar Glen Milstead voru
meðal þeirra síðastnefndu. Hann hafði verið fyrirmyndarungl-
ingur þar til hann tók upp á aö leika Divine. Hann talaði ekki við
þau í heil níu ár. Eitt sinn hringdi hann í þau um jól og þau vildu
fá hann í heimsókn en hann mátti ekki koma fyrr en eftir myrkur
svo nágrannarnir sæju ekki til hans. Hann lét ekki sjá sig. En ári
síðar veiktist faðir hans og Glen sneri heim og kærði sig kollóttan
um allt. Faðir hans fyrirgaf honum um síðir. „Ef ég fengi svona
mikla peninga fyrir að fara í pils myndi ég gera það líka,” sagði
pabbi gamli.
Kúrekaskvisan Rosie.
24 Vikan 2. tbl.