Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 42
Vídeó-Vikan
Umsjón: Hilmar Karlsson
Vinsælir leikarar:
Kathken Tumer
Stutt er síðan íslenskir kvik-
myndaáhorfendur sáu Kathleen
Turner í síðustu kvikmynd sinni,
Prizzi's Honor. Þar leikur hún
svipaða konu og hún hefur gert
nokkrum sinnum áður, eitil-
harða þrátt fyrir fegurð og
yndisþokka.
Turner sló í gegn í sinni fyrstu
mynd, Body Heat, þar sem hún
lék á móti William Hurt. I hlut-
verki Matty Walker í þeirri
mynd varð hún á einni nóttu ein-
Hún valdi því næst að leika í
The Man with Two Brains þar
sem hún lék gamansama glæpa-
konu á móti Steve Martin. Þessi
mynd varð það sem þeir fyrir
vestan kalla „flop”, gekk ekk-
ert, með öðrum orðum.
Þriðja myndin, Romancing the
Stone, þar sem hún lék hikandi
kvenhetju á móti Michael
Douglas, varð fyrsta sölumynd-
in sem hún lék í, halaði inn tæpa
hver mest spennandi og kynæs-
andi „femme noire” síðan
Lauren Bacall lék á móti
Humphrey Bogart á sjötta ára-
tugnum.
Body Heat varð henni þó ekki
til mikils framdráttar og hún
vann ekkert í átta mánuði að
henni lokinni. Tilboðin streymdu
þó inn, ákaft og reglulega.
Vandamálið var hins vegar, að
mati Turner, að allir vildu fá
hana í svipað hlutverk og Matty
Walker.
þrjá milljarða í íslenskum
krónum á Bandaríkjamarkaði
áður en hún var sýnd annars
staðar í heiminum.
I fjórðu myndinni, A Breed
Apart, leikur hún einfalda
sveitakonu en í þeirri fimmtu,
Crimes of Passion, telja margir
að hún hverfi aftur í Matty
Walker gervið.
Söguþráður þeirrar myndar
gefur slíkt sterklega í skyn.
Turner leikur þar Joanna/China
Blue, konu sem er tískuhönnuð-
ur á daginn en gleðikona á
næturnar. Hins vegar ber að
geta þess að leikstjóri Crimes of
Passion er Ken Russell, einn
umdeildasti kvikmyndaleik-
stjóri sem um getur.
Þegar veriö var að ráða leik-
ara í Body Heat hringdi umboðs-
maður Kathleen Turner þrisvar
sinnum í skrifstofuna í New
York til að fá prufu fyrir hana.
Honum fannst hún sniðin í hlut-
verk Walker. Þaö gekk hins
vegar ekkert og ekki fyrr en leik-
stjórinn, Lawrence Kasdan, sá
prufu af henni í Los Angeles, þar
sem hún hafði verið að gera aðra
prufu fyrir mynd Peter Falk, All
That Marbies.
Kasdan var stórhrifinn, hún
var sú fyrsta sem fór með
línurnar sínar nákvæmlega eins
og hann vildi að þær væru.
Er Body Heat var frumsýnd
gátu gagnrýnendur vart haldið
vatni af hrifningu. Andrew
Sarris í Village Voice sagði:
„Segja má að stjarna sé fædd
þegar maður fer að sjá hana
fyrir sér í öllum hlutverkum í
sjónmáli. Þannig lít ég á Kath-
leen Turner á þessu augnabliki í
kvikmyndasögunni. ’ ’
ÞÓtt The Man with Two Brains
hafi ekkert gengiö var það
myndin sem vakti áhuga Ken
Russel og handritahöfundarins
Barry Sandler á Turner. Þeir
vildu fá hana og enga aðra í
aðalhlutverk Crimes of Passion.
„Hún var langefst á listanum,”
segir Sandler. Hún var aftur á
móti hrifin af hlutverkinu vegna
fjölbreytileika þess.
„Joanna/China Blue er furðu-
leg persóna. Þaö sem vakti
áhuga minn eru allir leikirnir
sem þessi kona leikur,” segir
Turner, „öll ólíku hlutverkin,
reiðin, örvæntingin, eins og hún
telji sig alltaf hafa tök á öllu en
hafi það ekki. Hún gerir sig að
meira fórnarlambi en nokkur
maður sem hún hefur lagst
með.”
Turner var einnig hrifin af
hugmyndinni að vinna með Ken
Russell: „Fyrst hann hafði
áhuga á handritinu var athug-
andi að líta á það.” Þau hittust
og ræddu saman um hvernig þau
mundu meðhöndla efnið áður en
hún skrifaði undir samninginn.
Turner fékk að ráða því hvernig
kynlífssenurnar voru teknar. I
samningnum stóð að hún þyrfti
ekki að koma fram allsnakin. I
einu atriðinu vildi Sandler að
hún kæmi fram nakin en hún
neitaði: „í fyrsta lagi munu allir
vera að velta því fyrir sér
hvenær ég fari í fötin aftur svo
að enginn hlustar á það sem ég
segi. Og í öðru lagi er nekt merki
um traust og vinskap eftir því sem
ég hef heyrt hjá gleðikonum og þær
bara leyfa það ekki. Ef þær fara úr
fötunum eru þær bara eins og
næstakona.”
Ekki eru allir sammála um
gæði Crimes of Passion. En það
gegnir öðru máli um nýjustu
kvikmynd Kathleen Turner,
Prizzi’s Honor. Gagnrýnendur
hafa hafið þetta nýjasta
meistaraverk hins aldna leik-
stjóra, John Huston, til skýjanna
og þrátt fyrir að Kathleen
Turner falli aðeins í skuggann
fyrir meðleikara sínum, Jack
Nicholson, þá má hún vera
ánægð með sinn hlut í myndinni.
Síðustu fréttir herma að nú sé
verið að ljúka við framhald
hinnar geysivinsælu myndar
Romancing the Stone og er búist
við að sú mynd verði jafnvinsæl
og fyrri myndin. Kathleen
Turner er því leikkona sem svo
sannarlega er á uppleið.
Þær fáu kvikmyndir með Kahhleen
Tumer, sem fáanlegar em á videóleig-
um, em:
Body Heat,
The Man with Two Brains,
Romancing the Stone.
42 Vikan2. tbl.