Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 27
Höfundur við matarborðið:
,,Milli rétta var borin fram
smáklípa af ís, svona til að
hreinsa bragðið af undan-
gengnu kryddi á bragðlauk-
unum, og á meðan hlupu
drengirnir milli borðanna og
hreinsuðu af dúknum með litl-
um silfurburstum og rúllum."
kvöldiö og hlupu til með munnþurrkur,
eldspýtur, drykkjarföng og hvaðeina
á ótrúlegum hraða. Yfir þeim vöktu
svo yfirþjónar, vinmeistarar og brytar
og einhverjir fleiri ábúðarfullir yfir-
menn staðarins sem sáu til þess að
allt gengi fyrir sig eins og samrýmdist
þeim kröfum og þeim staðli sem gest-
urinn borgaði fyrir. Mér fundust þess-
ir drengstaular skemmtilega tauga-
veiklaðir og ákafir að gera sitt besta i
byrjun en þegar til lengdar lét fannst
mér þeir ærið hjákátlegir og undir lok-
in var yfirmáta fágað og kurteislegt
yfirbragðið farið að fara í mínar fín-
ustu taugar. Þeir voru eins og einu
sinni var sagt um góðan lækni, hann
var of þægilegur. Á Lúðvik XIII. pönt-
uðum við i forrétt innbakaðan humar í
ravioli með mintusósu. I aðalrétt
fengum við okkur annars vegar kálfa-
bris (konanl og hins vegar villiönd og
dúfu. i eftirrétt fengum við ostabakka
með hnetubrauði og kaffi og rjóma-
karamellur á eftir. Þetta var ótrúlega
gott, hver einasti réttur var skemmti-
lega fram borinn, hver diskur upplifun
fyrir augað enda öllu raðað saman
eftir litum og formi. Réttirnir voru í
anda nýja franska eldhússins, engar
þungar og feitar sósur, lítið um
kartöflur en þeim mun meira af
fersku og léttsoðnu grænmeti. Allur
matur var ákaflega lítið saltaður.
Aðalkokkur á þessum stað er ungur
maður sem heitir Manuel Martines og
mun hann vera einn yngsti meistara-
kokkur Parísar, aðeins 29 ára gamall.
Smáklípa af ís milli rétta
Milli rétta var borin fram smáklípa
af is svona til að hreinsa bragðið af
undangengnu kryddi á bragðlaukun-
um og á meðan hlupu drengirnir milli
borðanna og hreinsuðu af dúknum
með litlum silfurburstum og rúllum.
Þegar upp var staðið kom yfirþjónn-
inn með reikninginn i leðurslegnum
kistli svona til að minna á andrúms-
loftið við hirð Lúðviks XIII. sem
staðurinn heitir eftir. Við greiddum
það sem upp var sett fyrir þetta kvöld
og héldum á braut sammátn um að
þennan mat hefðum við ekki getað
gert betur heima þó við hefðum lagt
okkur öll fram.