Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 37
1
Fashion Aid
Það þykir kannski flestum eins og að bera í bakkafullan laekinn að fara enn einu
sinni að skrifa um Live Aid, þó svo að það sé eitthvert merkilegasta afrek poppara
sem um getur, enda ætla ég ekki að skrifa um Live Aid en þess I stað um Fashion
Aid sem sömu samtök stóöu að I London nú I haust.
Það var ungur maöur að nafni Jasper Conran, góður vinur Bob Geldof, sem fékk
þá hugmynd að safna fé til hjálpar bágstöddum með þvi að halda heilmikla tísku-
sýningu þar sem sýnd yrðu föt frá öllum helstu tískunöfnum heimsins. Takmarkið
var að safna einni milljón punda.
Það sem gerði þessa sýningu sérstæða var þátttaka fjölda poppstjarna sem sýndu
hinar ýmsu flíkur og það er bara best að vinda sér í létta upptalningu: Madness,
Boy George, Freddy Mercury, Spandau Ballet, Whaml, Eurythmics, Grace Jones,
King, Nick Heyward, Mick Jagger og Jerry Hall, Simon le Bon og fleiri og fleiri og
þar fyrir utan var flogiö með um tvö hundruð tískusýningarstúlkur frá New Vork og
hana nú.