Vikan - 09.01.1986, Blaðsíða 22
FIAT CROMA
EINN MEÐ
ÖLLU
„Það er aðeins einn galli við þennan bíl," sagði danskur
starfsbróðir minn. Við sátum á hljóðskrafi á Ciampiano flug- Texti: Sigurður Hreiðar
velli við Róm, eftir sólarhrings viðdvöl þar um mánaðamótin Myndir: Höfundur Og Fiat
nóvember-desember. ______________
Þarna i Róm voru komnir saman
bilaáhugamenn og skrifarar frá 15
þjóðum að skoða nýja flaggskipið frá
Fiat, fyrsta stóra bilinn sem þeir láta
frá sér fara með þverstæðri vél og
framhjóladrifi, Fiat Croma. Menn
voru yfirleitt harla dulir á niðurstöður
sínar. Þær voru atvinnuleyndarmál og
máttu ekki leka út fyrr en þær birtust
svart á hvítu í viðkomandi blaði. Við
Daninn urðum ásáttir um að islensku
blöðin væru þó lítið lesin i Danmörku
og amtstiðindin hans sjaldséð uppi á
íslandi.
,,Einn galli?" spurði ég og hugs-
aði: Ætli það geti verið hvað hann
sleppir viðnáminu við götuna pegar
rifið er harkalega af stað í krappri
Rennilegar línur,
low profile
dekk.
beygju? Eða hvað hann er lágur á
low profile dekkjunum?
,,Já, aðeins einn galli," hélt Dan-
inn áfram. ,,Það er nafnið. Það er
alveg sama hvað þú kemur með
góðan bil undir nafninu Fiat, kaup-
endur tengja það undir eins við
týpurnar sem hafa reynst illa. Og eins
og þú veist eru þær orðnar æði
margar gegnum árin. Taktu 128 til
dæmis. Og við getum lika litið á 127,
sem i rauninni er listabill i sínum
flokki. Framan af ryðgaði þetta eins
og ég veit ekki hvað. Samt var þetta
svo vel lukkaður bill að hann er enn
að seljast, að visu framleiddur i
Brasilíu núna, og þeir eru búnir að
laga ryðsæknina i honum heil ósköp.
En Ameríkanar, til dæmis, þeir bara
gúddera ekki Fiat, og Sviar svo sem
ekki heldur."
Lítil hætta
á ryði
Hér verður þó að skjóta þvi inn i að
Fiat Croma er árangur af samvinnu
nokkurra bilaframleiðenda, meðal ann-
ars SAAB. Að visu slitnaði upp úr
þessari samvinnu en upp úr þessu
kom annars vegar SAAB 9000 en
hins vegar Fiat Croma. Það verður
lika að koma fram að þessi sólar-
hrings kunningi minn trúir á SAAB og
er búinn að eiga fjóra SAABa núna i
runu. Þvilikt tilbreytingarleysi þykir
mér aldrei góðs viti hjá manni sem
hefur atvinnu af þvi að prófa bíla og
skrifa um þá.
,,En littu til þess," svaraði ég, ,,að
i Krómunni hafa ítalirnir hugsað sér-
staklega um ryðsæknina. Það eru
færri samsetningar á honum en gerist
— hann er með 30% færri boddihluti
en almennt er á svona bíl. 43% þess-
ara 321 boddihluta eru úr galvanis-
eruðu stáli og billinn auk þess allur
varinn með sérstökum ryðvarnarefn-
um, undirvagninn allur húðaður með
PVC. Það eru plasthlífar innan i brett-
unum. Lokuð hólf eru ryðvarnarhúð-
uð og loftræst svo ekki komi i þau
þétting. Og burðarbitarnir eru innan í
botnplötunni svo þeir verði siður fyrir
hnjaski."
Þægindi í
fyrirrúmi
,,Já, vist," sagði Daninn. ,,Það er
sem ég segi. Þessi bill er að öllu leyti
mjög vel úr garði gerður. Taktu bara
eftir þvi hvað það fer vel um mann
22 Vikan 2. tbl.