Vikan - 23.01.1986, Side 8
höfðu lánað hana á Kjarvalssynincjuna á Kjarvals
stöðum.
..ömmusystir Halldórs, Guðrún i Melkoti, fékk
hana í brúðargjöf og hún hefur fylgt fólkinu hans.
Líklega hefur hún einhvern tima verið hærri en ver
ið lækkuð. Græni liturinn er upprunalegur en gyll-
ingin, sem liklega hefur verið á henni, er horfin." Á
málmplötu, sem fest er við skifuna, má lesa nafnið
James Cowan, nafn úrsmiðsins, svo hun er skosk,
smíðuð i Edinborg í kringum 1700. Við vegginn
andspænis klukkunni stendur stór eikarkista, ís-
lensk smiði, járnslegin af föður Auðar, Sveini
Guðmundssyni, en hann var listasmiður. Eftir hann
eru lika veggljósin i anddyri og stofum. A veggnum
yfir kistunni hangir málverk eftir Kristján
Davíðsson. ,,Þetta er negri sem Kristján málaði í
Ameriku, hann er ekki beint smáfriður, en
ágæt mynd." Alla jafna hangir á þessum stað
altaristafla eftir meistara Kjarval en taflan var að
þessu sinni réít ókomin, þau Halldór og Auður
Eikarkistan góða i anddyr
inu er járnslegin af Sveini
föður Auðar. Málverkið er
eftir Kristján Daviðsson.
Gúmmítré, pálmar og
hawaiirósir
Yfir dyrunum inn i stofuna hangir rúmfjöl
frá árinu 1713 en þegar inn i stofuna er komið blasir
við að því er virðist heilt gróðurhús inni i sjálfri stof-
unni.
,,Þessi gluggi var teiknaður sem blómagluggi og
upprunalega var glerveggur milli gluggans og
stofunnar sem við létum taka niður. Það er ein af
fáum breytingum sem við höfum gert hér."
Gróskan I plöntunum hennar Auðar er hreint
ótrúleg, stærðar burknar, gúmmitré, pálmar,
hawaiirósir og blómstrandi jólakaktus loka úti
dimman og kaldan vetrardaginn. Þegar Auður er
spurð í hverju kúnstin sé falin brosir hún bara og
segist eiginlega ekki gera neitt.
,,Eg læt blómin mikið til í friði á veturna, vökva
lítið en færi þau til svona annað slagið vegna birt-
unnar."
Stofan er öll klædd viði, bæði veggir og loft, á
gólfinu er parket en á öðrum gólfum í húsinu er
korkur. I enda stofunnar stendur stór Steinway
flygill. Halldór er pianistinn á heimilinu. ,,Hann
spilar mikið,” segir Auður, ,,ég held ég megi segja
á hverjum degi." Á veggnum hjá flyglinum hangir
stórt og alveg einstaklega skemmtilegt veggteppi.
Teppið er eftir Halldóru Jónsdóttur, móður Auðar.
Halldóra var mikil hannyrðakona, hrein listakona á
sínu sviði. „Mamma teiknaði upp munstrin á
Þjóðminjasafninu. Ég .eit ekki hvað hún hefur
saumað mörg svona veggteppi, ég gæti trúað að
þau væru ekki færri en tuttugu. Munstrið á þessu
teppi er að visu teiknað af Ingu Láru Lárusdóttur
eftir íslensku teppi á safni I London.
Steinbítsroð í stað spanish
leather
Við vegginn gegnt flyglinum er arinninn og
hjá arninum eitt stykki leðurklædd útgáfa af
,,egg-stólnum" eftir Arne Jacobsen. Saman er
þetta eins og punkturinn yfir i-ið, til að skapa það
hlýlega og persónulega andrúmsloft sem hér rikir,
reyndar ekki bara i þessari stofu heldur í öllu hús-
inu. A öðrum vegg í stofunni hangir forkunnar-
fallegt veggteppi sem Auður saumaði. ,,Eg
teiknaði það upp þegar ég var i handíðaskólanum
1947. Eg vissi af þvi uppi á Þjóðminjasafni en
Matthiasi þjóðminjaverði fannst það svo Ijótt að
hann lokaði það niðri i kistu. Á þeim tíma fékk ég
ekkert sem ég þurfti i teppið en ég hafði komist yfir
nokkrar rúllur af steinbitsroði sem ég klippti niður
og notaði i stað þess sem kallað var spanish leather
og hefði með réttu átt að nota. Reyndar fékk ég
ekki það sem ég þurfti i teppið fyrr en mörgum
árum seinna.”
^»að er orðið áliðið og nýja gesti hefur borið
að garði. Auður er aftur komin á stað að hella upp
á könnuna. Þau hafa i ýmsu að snuast, Halldór og
Auður. Við þökkum þeim hjónum góðar viðtökur,
drifum okkur út i myrkrið og lúsumst i fyrsta og
öðrum gir aftur i bæinn.
8 Vikan4. tbl.