Vikan

Tölublað

Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 48

Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 48
Vonbrigói. . . bollana fimm, einn af öðrum, og tæmdi þá i rusla- skálina. ,,Þetta te er kalt," sagöi hann hranalega. ,,Hit- aöu meira, mamma. Vertu svo væn." Frú Dinsmead spratt upp og flýtti sér burt meö teketilinn. Mortimer fékk það á tilfinninguna aö hún vaeri fegin að sleppa út úr herberginu. Nýja teiö barst brátt og óvænti gesturinn fékk ómældar veitingar. Dinsmead talaöi og talaöi. Hann var málglaöur, vinsamlegur, hnyttinn. Hann sagöi ókunnuga manninum allt um sjálfan sig. Hann var nýhættur I byggingariönaöinum — já, hafði gengiö prýöilega þar. Þeim frúnni korri til hugar aö þau heföu gott af svolitlu sveitalofti — þau höföu aldrei fyrr búiö í sveit. Þetta var auövitað rangur árstlmi aö velja sér, október og nóvember, en þau vildu ekki blöa. „Llfiö er óöruggt, eins og þú veist, herra Cleve- land." Þess vegna leigöu þau kofann hérna, átta mllur frá næsta mannabústaö og nltján mllur frá nokkru þvl sem mátti nefna þorp. Nei, þau voru ekki aö kvarta. Stúlkunum fannst þetta svolltiö leiöinlegt, en þau mamma nutu þess hvaö var ró- legt. Þannig þusaöi hann, dáleiddi Mortimer nærri þvl meö oröaflaumnum. Þaö gat naumast veriö nokk- uð hér annað en ósköp venjulegt heimilisllf. Og þó, þegar hann sá fyrst þangað inn haföi hann gert sér grein fyrir einhverju ööru, einhverri spennu, ein- hverri streitu sem stafaöi frá einni manneskju af þessum fjórum — hann vissi ekki hverri. Þetta var bara kjánaskapur — taugar hans voru I ólagil Þeim brá þegar hann birtist svona skyndilega, þaö var allt og sumt. Hann nefndi hvort hann mætti gista þarna um nóttina og fékk greitt svar. ,,Þú veröur aö dvelja hjá okkur, herra Cleveland. Þaö er enginn staöur I margra mllna fjarlægö. Vlö getum lánaö þór svefnherbergi og þó aö náttfötin mln séu kannski heldur rúmgóö, jæja, eru þau þó betri en ekkert og fötin þln verða oröin þurr á morgun." „Þetta er ákaflega fallegt af ykkur." „Hreint ekki," sagöi hinn maöurinn vingjarn- lega. „Eins og ég var aö segja rétt áöan er ekki hundi út sigandi I þessu veðri. Magdalena, Char- lotte, fariö og lagiö til I herberginu." Stúlkurnar tvær fóru fram. Skömmu slöar heyröi Mortimer aö þær voru aö bjástra uppi. „Ég skil vel aö tveim aölaöandi, ungum stúlkum eins og dætrum þlnum kunni aö finnast dauflegt hérna," sagöi Cleveland. „Þær eru fallegar, finnst þór ekki?" sagöi Dins- mead meö fööurlegu stolti. „Þær llkjast ekki mikiö mömmu sinni eöa mér. Viö erum ófrltt par en þykir ákaflega vænt um hvort annaö, þaö skal ég segja þér, herra Cleveland. Ha, Maggie, er það ekki rétt?" Frú Dinsmead brosti svolítiö. Hún var aftur byrj- uö aö prjóna. Þaö glamraöi I prjónunum. Hún var hraövirk prjónakona. Fljótlega var tilkynnt aö herbergiö væri til reiöu og Mortimer þakkaði aftur fyrir sig og tilkynnti aö hann væri aö hugsa um aöfara I háttinn. „Settuö þiö hitapoka I rúmiö?" spurði frú Dins- mead, minntist skyndilega húsmóöurstolts síns. „Já, mamma. Tvo." „Þaö var gott," sagöi Dinsmead. „Fariö upp meö honum, stúlkur, og aögætiö hvort þaö er eitt- hvað annaösem hann vanhagar um." Magdalena fór á undan honum upp stigann og hólt á kerti. Charlotte gekk á eftir honum. Herbergiö var ósköp notalegt, litið og undir súö, en rúmiö virtist þægilegt og þeir fáu húsmunir, sem þarna voru, voru úr gömlu, rykugu mahónii. Stór krús meö heitu vatni stóö I þvottaskálinni, bleik náttföt af stærri geröinni lágu á stól og þaö var búiö aö búa um rúmið. Magdalena gekk yfir aö glugganum og gætti aö hvort festingarnar væru á. Charlotte yfirfór þvotta- aðstööuna. Svo dokuöu báöar viö hjá dyrunum. „Góöa nótt, herra Cleveland. Ertu viss um aö þetta sé allt og sumt?" „Já, þakka þér fyrir, ungfrú Magdalena. Ég blygöast mln fyrir að hafa valdiö ykkur þessum vandræöum. Góöa nótt." „Góöa nótt." Þær fóru fram, lokuðu á eftir sór. Mortimer Cleveland var einn. Hann háttaöi sig hægt og hugsandi. Þegar hann var kominn I bleiku náttfötin hans Dinsmeads tók hann saman blautu fötin sín og setti þau fyrir utan dyrnar eins og gestgjafi hans haföi sagt honum aö gera. Hann heyröi óminn af rödd Dinsmead aö neðan. Mikiö gat maöurinn talaöl Hann var vissulega einkennilegur maður — en raunar var eitthvað ein- kennilegt viö alla fjölskylduna, eöa var hann að Imynda sér þaö? Hann gekk hægt aftur inn I herbergiö sitt og lok- aöi. Hann stóö djúpt hugsi viö rúmiö. Og svo hrökk ■ hann I kút. . . Mahónlboröið viö rúmiö var þakiö ryki. I rykiö voru skrifaðir þrír stafir, mjög glöggt, S.O.S. Mortimer starði likt og gæti hann naumast trúaö eigin augum. Þetta var staöfesting á öllum hans óljósu hugdettum og kenndum. Hann haföi þá á réttu aö standa. Þaö var eitthvaö I ólagi i þessu húsi. S.O.S. Hjálparbeiöni. En hvaöa fingur haföi skrifaö þetta I rykiö? Fingur Magdalenu eöa Char- lotte? Hann mundi aö þær höfðu báöar staöið þarna. Hvor átti höndina sem skrifaöi stafina þrjá? Andlit stúlknanna tveggja stóöu honum fyrir hugskotssjónum: Magdalena, dökk og upphafin, og Charlotte eins og hann haföi sóö hana fyrst, opineygö, skelfd, með eitthvaö óumræöilegt I augnaráöinu. . . Hann fór aftur til dyra og opnaöi. Drunurnar af rödd Dinsmeads heyrðust ekki lengur. Húsiö var hljótt. Hann hugsaði meö sjálfum sér: „Ég get ekkert gert I kvöld. A morgun — jæja, viösjáum til." III Cleveland vaknaöi snemma. Hann gekk niöur í stofuna og út I garöinn. Morgunninn var ferskur og fagur eftir rigninguna. Það var annar kominn snemma é fætur auk hans. Neöst i garöinum hall- aöi Charlotte sór fram á giröinguna og staröi út yfir heiöina. Hjartsláttur hans varö heldur örari þegar hann gekk til hennar. Allan timann haföi hann ver- iö sannfæröur um þaö meö sjálfum sér aö Char- lotte heföi skrifað skilaboðin. I þvi aö hann kom til hennar sneri hún sér viö og bauö honum góöan dag. Augnaráð hennar var opinskátt og barnalegt, vottaði ekki fyrir neinu leyndu samkomulagi i því. „Innilega góöan dag," sagöi Mortimer og brosti. „Veöriö i dag er harla ólíkt þvi sem var i gaer." „Þaðervist og satt." Mortimer braut grein af tré skammt frá. Hann byrjaöi aö teikna meö henni á sléttan sandinn viö fætur sér. Hann teiknaöi S, svo 0, síöan S og fylgdist grannt meö stúlkunni meöan hann var aö þessu. En hann sá engan skilningsvott frekar en áður. „Veistu hvað þessir stafir standa fyrir?" sagði hann upp úr þurru. Charlotte hnyklaöi svolítiö brýnnar. „Er þetta ekki þaö sem bátar — sem skip senda út þegar þau eiga I erfiðleikum?" spuröi hún. Mortimer kinkaöi kolli. „Það skrifaöi einhver þetta á náttborðiö mitt I gærkvöldi,” sagði hann lágt. „Mér datt i hug að það heföi kannski veriö þú." Hún horföi á hann og glennti upp augun af undr- un. „Ég?Ö, nei." Þá skjátlaðist honum. Hann fann fyrir hvössum vonbrigöasting. Hann hafði verið svo viss — svo viss. Þaö var ekki oft sem eölishvöt hans leiddi hann villur vegar. „Ertu alveg viss?" þráöist hann viö. „Já, já." Þau sneru sér viö og gengu hægt saman upp aö húsinu. Charlotte virtist vera að brjóta heilann um eitthvað. Hún svaraöi út í hött þeim fáu athuga- semdum sem hann geröi. Allt I einu fór hún að tala lágtog hraðmælt. „Þaö — það er skritið að þú skulir hafa spurt um þessa stafi, S.O.S. Ég skrifaöi þá auðvitað ekki en — ég heföi auðveldlega getaö gert þaö." Hann stansaöi og leit á hana og hún flýtti sér aö halda áfram. „Ég veit aö þetta hljómar kjánalega en ég er búin aö vera svo hrædd, svo skelfilega hrædd, og þegar þú komst I gærkvöldi virtist þaö vera — vera svar viö einhverju." „Viö hvaö ertu hrædd?” spurði hann ákafur. „Ég veit þaö ekki." „Þú veist þaö ekki." „Ég held — aö þaö sé húsiö. Alveg siðan viö komum hingaö hefur þaö vaxiö og vaxiö. Þaö eru einhvern veginn allir ööruvisi. Pabbi, mamma og Magdalena, þau viröast öll önnur." Mortimer tók ekki þegar til máls og áöur en hann gat gert þaö hélt Charlotte áfram. „Veistu aö þaö á að vera reimt í þessu húsi?" „Hvaö segiröu?" Áhugi hans vaknaöi. „Já. Maöur myrti konuna sína hérna, æ, það eru nokkur ár síöan. Viö komumst ekki að því fyrr en við komum hingaö. Pabbi segir aö draugar séu eintóm vitleysa en ég — er ekki viss." Mortimer hugsaöi hratt. „Segöu mér," sagöi hann ábúöarmikill, ,,var moröið framiö I herberginu sem ég svaf i síðustu nótt?" „Þaö hef ég ekki hugmynd um," sagöi Char- lotte. 48 Vikan 4. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.