Vikan

Tölublað

Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 15

Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 15
nema hvað maður er að sjálfsögðu í samstarfi við ábyrga aöila. I Pakistan voru það Norömenn sem við vorum I samstarfi við. Þeir þekktu vel til og hefðu aldrei farið að senda okkur út í einhverja vit- leysu. Konan min gerði sér auövitaö grein fyrir þessu en ég held að henni hafi nú þótt ágætt þegar ég var kominn aftur." ögmundur brosir. — Aldur, menntun, fyrri störf? ,,Ég hef starfað við sitt af hverju. Ég hef kennt sagnfræði í Háskólanum, hef gert það meö frétta- mennskunni flest árin síðan ég kom heim. Ég er sagnfræðingur frá Edinborg I Skotlandi. Fæddur 1948, giftur Valgerði Andrésdóttur líffræðingi og við eigum þrjú börn, tvær stelpur og einn strák." — Ertu þá af '68-kynslóöinni? ,,Já, ég er '68-kynslóðin. Nú er að renna upp sá timi þegar hugsjónir '68-kynslóðarinnar fara að rætast. Þær hafa ræst að hluta til því ef þú lítur til baka þá er ýmislegt sem breyttist vegna umrótsins sem varð '68 og '69. Um þetta mætti taka mörg áþreifanleg dæmi. öldungadeildin I Hamrahlíð og opinn skóli eru dæmi um þetta. Grunntónninn í '68 —'69 er lýöræöisbaráttan og ég hef þá trú að þjóöfélagið sé að umskapast í þá mynd sem er mjög i anda þess- arar kynslóöar. Frjálshyggjan er að renna sitt skeið 6 enda. Hún hafði fimm, sex ár og hristi upp í mörgum. Það sem gerði hana svo spennandi fyrir mörgum var að menn þóttust greina þarna einhvern lýðrœðis- tón, „burt með alla fjötra", „hver er sinnar gœfu smiður" og allt það. Siðan kemur bara á daginn að frjálshyggjan nssr alltof skammt, hún getur aldrei svarað þeim væntingum sem fólkið hefur. Til dæmis er atvinnulýðræði sam- kvæmt frjálshyggjunni einhver „funkti- on", eitthvert tæki til að bæta framleiðsl- una og frelsið samkvæmt kenningu frjálshyggjumanna felst i þvi að velja milli Sparr og Omo úti i búð. Það er bara ekki nóg, þú vilt vera frjáls á meöan þú ert að framleiða Sparr og Omo. Þú vilt þess vegna hafa svigrúm, atvinnulýðræði á vinnustaönum, þú lítur á það sem rétt þinn. Og það er i þessari réttindabaráttu sem fólk er að rísa upp. Þetta gerist smám saman, tekur langan tima en þessi tími er að renna upp," segir ögmundur sannfærandi á svip. — Þú sérð fram á betri tíð en þá dettur mér Sigtúnshópurinn í hug. „Já. Sigtúnshópurinn er einmitt dæmi um það að fólk ris skyndilega upp. Fólk tekur sig saman á óskipulegan hátt og myndar svona grasrótarsam- tök til þess að leita réttar síns. Barátta þessa hóps miðar ekki aðeins að því að bæta hlut húsnæðis- kaupenda, sem farið hefur verið illa með á undan- fömum árum, heldur ekki síður að því að reyna að breyta áherslupunktunum i umræðunni. Við viljum skoða heiminn út frá forsendum launafólks sem stendur í sinni lifsbaráttu en ekki bara út frá for- sendum fyrirtækjanna. Fyrir nokkrum misserum var ákveðið að nú skyldi gefa atvinnurekendum sjans svo þeir gætu sýnt hvað i þeim býr. Teknir voru peningar frá launamönnum og færðir i hendur þeirra. Þetta tókst nú ekki betur en svo að helm- ingurinn fór að blanda ajús og hinn helmingurinn fór út I okurlánabransann. Þessi tilraun reyndist þjóðinni dýrkeypt. Nú held ég að tími sé kominn til þess að taka tillit til fólksins og gefa okurbransan- um fri. Annars eru menn alltaf að skoöa það sem er, setja meira að segja upp ráðgjafarþjónustu til að kenna fólki að laga sig að veruleikanum, en við vilj- um breyta veruleikanum, laga veruleikann og breyta hugsunarhættinum. Sigtúnshópurinn berst fyrir því að fjölmiölar og stjórnmálamenn sjái stærðarhlutföllin í nýju Ijósi. Nú kemur til dæmis upp mál eins og þetta Hafskipsmál. Þar er verið aö tala um upphæðir sem hefðu sennilega dugað til aö leysa vanda allra húsbyggjenda á Islandi slö- ustu árin." — En þessar hótanir, ögmundur, sem þið I Sigtúnshópnum sendiö stjórnmálamönnum um þaö aö nú fái þeir á baukinn ef þeir geri ekki neitt í húsnæðismálunum. Hefur þú sem frétta- maöur trú á því að svona hótanir virki? „Þegar til langs tima er litið þá gera þær það. I rauninni erum við ekki að hóta neinu. Við erum að minna menn á þau loforö sem þeir sjálfir hafa gef- ið. Við höfum viljað taka þessa menn alvarlega þvl ef viö geröum það ekki þá ræddum við náttúrlega ekkert viö þá. En við tökum þá alvarlega og við er- um að spyrja hvort þeir hafi ekki þá sjálfsviröingu að þeir taki sjálfa sig alvarlega líka. Loforðin hafa flest veriö svikin og viö viljum vekja athygli á þvl. Ég held líka að barátta af þessu tagi veröi til að bæta pólitískt siðgæöi I landinu þegar til lengri tíma er litiö, það er aö segja að menn fari að taka sjálfa sig alvarlega." — Nú ertu kominn að pólitíkinni. Þú hefur starfað mikiö í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, og á sinum tíma var mikiö talaö um að þú værir væntanlegur arftaki Kristjáns Thorla- cius. Félagar þlnir á fréttastofum útvarps og sjónvarps stofnuðu slðan félag fréttamanna og gengu I Bandalag háskólamanna. Sumir sögöu aö með því heföu þeir eyðilagt möguleika þinn á að taka við forystu I BSRB? ,,Nei, ég er ennþá I BSRB og það er vegna þess að ég vildi ekki afsala mér verkfallsrétti. Mér finnst ég eiga samleið með þeim sem vilja byggja kjarabaréttu é verkfalls- róttinum. Varðandl formennsku i BSRB þé voru ýmsir sem vöktu móls é þessu við mig og í fjölmiðlum voru einhverjar vangaveltur en það iéðist bara alltaf að spyrja einn mann. Það var ég. Og þetta voru ekki áform sem ég hafði á prjónun- um." — En hvað með félag fréttamanna, starfarðu í því? „Nei. Ég er ekki I þvl." — Fannst þér rangt af félögum þínum að gera þetta, nú er þetta launaspursmál, skilst mér? „Fréttamenn hækkuöu eitthvað örlítið I launum við þetta miðað við aöra fyrst I stað en ekki að neinu marki svona ef til lengri tíma er litiö. Ég var andvigur þessari ákvörðun á sínum tíma, en þetta var lýöræðislega tekin ákvörðun. Þeir gengu i fé- lagiö sem töldu hag sínum betur borgið með því. Ég gerði það ekki og það er mitt mál, hitt er þeirra mál. Hérna áður fyrr átti ég þess kost að vera félagi i BHM og á þeim tíma voru einhverjir sem voru það meðan meirihlutinn var í starfsmannafélögum út- varps eða sjónvarps sem eru I BSRB. Nú er dæmið snúiö viö, meirihlutinn er I BHM en minnihluti upp á einn mann er í BSRB, og það er ég." — Skiptir verkalýðsbaráttan þig miklu máli? „Já, mér finnst verkalýösbaráttan skipta mjög miklu máli. Ég vil leggja þessari baráttu lið eftir megni, svo lengi sem hún snýst um það að hrinda þeim hugsjónum I framkvæmd sem mér finnst skipta mestu, atvinnulýöræöi og launajöfnuöi." — Nú ert þú formaöur í starfsmannafélagi sjónvarpsins. Er þaö virkt félag eöa bara skemmtinefnd? „Það er geysilega virkt fólag og llka skemmti- legt. Þaöerekkertathugavertviöskemmtanir, þær verða til þess að efla félagsandann og tengsl milli fólks, þess vegna eru skemmtinefndir mjög þarfar. En skemmtanir eru bara einn liður I starfi starfs- mannafélags sjónvarpsins, einn af mörgum. Félag- ið hefur veriö mjög virkt I kjarabaráttunni til dæm- is.” Margir fréttamenn sjónvarpsins hafa fariö út I flokkspólitiska baráttu og fariö inn á þing. Hefur þú áhuga á þvl? „Nei, ég hef ekki áhuga á þvl. Það sem ég hef veriö að berjast fyrir hef ég haft ágætis svigrúm fyrir innan verkalýðshreyfingarinnar og á mlnum vinnustaö. En fyrst þú minnist á pólitlk þá finnst mér allt of mikiö gert að þvl að segja að allir stjórn- málamenn séu eins og jafnvel aö allir stjórnmála- flokkar séu eins. Ég held að þetta sé ekki rétt, stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar berjast fyrir óllkum hugmyndum og ólíkum stefnum og mér finnst það raunverulega skipta máli hverjir stjórna landinu. Ég finn þaö meira að segja á skrokknum á mór hverjir fara með völdin. Það er gengið of langt í þvl að segja aö þetta sé allt sama tóbakið. Hins vegar þarf eitt að gerast I öllum stjórnmálaflokkum sem öörum stofnunum, það þarf að verða ákveö- inn hristingur og titringur I þeim, lýöræöisbaráttan þarf aö ná þangaö inn llka, vegna þess aö frelsið byrjar ekki á morgun, það byrjar ekki þegar þú kemsttil valda. Þú getur ekki búlð tll elnhverja stofnun og sett svo frelslð ofan f hena. Frelslð byrjar núna, það byrjar f dag og það þurfa allir stjórnmélaflokkar að hafa f huga. Flokkar sem segjast tll deamis vera é mótl miðstýringu þurfa að hyggja að þvf f öllu starfl sfnu núna, ekki é morgun eöa þeffar þeir komast f stjórn. Annars er svo margt nýtt I pólitlkinni núna. Það leika lýöræðisstraumar um þjóðfélagiö og fólk læt- ur ekki lengur bjóða sér það sem það lét gera fyrir bara tíu, tuttugu árum. Þá göptu menn upp I for- ingja og báru viröingu fyrir valdastofnunum. Fólk gerir þaö ekki lengur, það virðir vissulega marga einstaklinga sem standa framarlega I stjórnmálum en þaðgerir haröar málefnalegar kröfur til þeirra." — Hvernig list þér á frjálsar útvarpsstöðvar, afnám einkaréttar Ríkisútvarpsins? „Ég er með frelsinu og ég er með samkeppninni. En," segir ögmundur og leggur mikla áherslu á slðasta orðið, „við megum aldrei gleyma aö spyrja um hvað viö viljum samkeppni. Það þýðir ekkert að pumpa þessu orði út I loftiö hugsunarlaust. Við er- um með ákveöið fjármagn til ráðstöfunar I þessu ágæta samfélagi okkar. Hluti af þessu fjármagni, slfellt stærri hluti að sönnu, gengur til fjölmiölun- Vikan 4. tbl. 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.