Vikan - 23.01.1986, Síða 42
Vinsælir leikarar:
Jeff Bridges
Ef einhver ætti aö gera lista yfir þá ungu
leikara í Hollywood sem mesta hæfileika
hafa væri næstum öruggt aö nafn Jeff
Bridges yröi á þeim lista þótt ferill hans
hingað til þyki nokkuð skrykkjóttur.
Hann vann til óskarsverðlaunatilnefn-
ingar í einni af fyrstu myndum sínum,
hinni rnjög svo gÓÖU The Last Picture
Show. Síöan hefur hann verið mjög
framarlega þótt annað slagiö hverfi hann
af sjónarsviöinu í eitt og eitt ár. Hann er
samt alltaf kominn á toppinn aftur eftir
smátíma.
I dag er hann kannski á hátindi ferils síns
og má hann þakka það frammistöðu sinni í
hinni ágætu mynd John Carpenters, Ster-
man. I fyrra var hann tilnefndur til óskars-
verölauna fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd.
Var þetta þriöja tilnefning hans. Eins og
áöur sagði fékk hann tilnefningu fyrir The
Last Picture Show. I millitíðinni fékk hann
tilnefningu fyrir hlutverk sitt í Thunderbolt
and Lightfoot þar sem hann lék á móti
Clint Eastwood.
Jeff Bridges er ekki eini leikarinn í fjöl-
skyldunni. Faðir hans er Lloyd Bridges
sem hefur veriö þekktur leikari síðan á
fimmta áratugnum og eldri bróðir hans er
Beau Bridges, einnig mjög þekktur kvik-
myndaleikari.
Jeff er fæddur 4. desember 1949. Hann
var aðeins nokkurra mánaða þegar hann
kom fyrst fram í kvikmynd. Var það í The
Company She Keeps. Aðalleikkonan í
þeirri mynd var Jane Greer. Svo
skemmtilega vill til að þau léku aftur sam-
an þrjátíu og fjórum árum síðar í Againat
Ail Odda. Átta ára gamall fékk hann sitt
fyrsta talaða hlutverk. Var það í einum
þætti í sjónvarpsmyndaflokknum Sea
Hunt. Faðir hans lék aðalhlutverkið í þess-
um sjónvarpsmyndaflokki. Svo var það
ekki fyrr en 1970 að hann kom aftur fram á
hvíta tjaldinu. Lék hann þá í mynd sem
flestum er gleymd nú. Hét hún Haiis of
Anger og var stæling á hinni vinsælu mynd
To Slr with Love. Siðan kom The Last
Picture Show og frami hans var tryggður.
Það sem hefur einkennt feril Jeff Bridg-
es er hversu óútreiknanlegar kvikmyndir
þær sem hann hefur leikiö í eru þegar litið
er á vinsældir þeirra. Þær kvikmyndir,
sem áttu að tryggja hann í sessi sem stór-
stjörnu í Hollywood, urðu margar hverjar
fyrir þeim örlögum að vera teknar af
markaðinum fljótlega vegna lélegrar að-
sóknar. Má nefna King Kong, Somebody
Killed Her Husband, Heaven's Gate, Tron,
Against All Odds Og Winter Kills. Þeirri
síðastnefndu hefur að vísu verið dreift aft-
ur og er núna af mörgum talin hin merki-
legasta kvikmynd.
Aftur á móti hafa þær kvikmyndir, sem
litlu var búist við af í upphafi, orðið til þess
að halda nafni hans á lofti. Má nefna The
Last American Hero, Rancho De Luxe, Stay
Hungry, Cutters Way Og The Last Picture
Show.
Þegar tökur hófust á The Last Picture
Show voru fáir sem höfðu trú á þessu
fyrirtæki. Til að mynda var myndin tekin í
svart-hvitu, sem flestir héldu að yrði
dauöadómur yfir henni. Og þar aö auki var
enginn þekktur leikari meðal leikenda og
leikstjórinn, Peter Bogdanowich, var þá
óþekkt stærð. Og ekki var söguþráðurinn
til að auka eftirvæntinguna. Myndin
fjallar um fólk sem er aö drepast úr
leiðindum í smábæ í Texas. En það var
ekki nóg með það aö myndin hlyti góða að-
sókn. Gagnrýnendur hófu hana til skýj-
anna Og í dag er The Last Picture Show
talin meðal helstu listaverka áttunda ára-
tugarins.
Jeff Bridges hefur drengjalegt andlit
sem mörgum finnst þó minna á gömlu
stjörnurnar sem voru upp á sitt besta í
byrjun talmyndanna. Hann þykir innileg-
ur í leik sínum og geðjast áhorfendum að
honum, sama hvaða hlutverki hann er í.
Þess vegna var hlutverk hinnar geðþekku
geimveru sem varð strandaglópur á jörð-
inni í starman eins og samið fyrir hann.
starman er fyrsta stórmyndin á mæli-
kvarða Hollywood sem Jeff Bridges leikur
í og heppnast fullkomlega.
Jeff Bridges er kvæntur og á tvö börn.
Hann býr með fjölskyldu sinni í Santa
Monica í Kaliforníu. I frítímum sínum fæst
hann aðallega við tónsmíöar. Þeir sem
muna eftir John and Mary muna kannski
einnig að hann samdi og söng titillag kvik-
myndarinnar. Nýjasta kvikmynd hans er
The Jagged Edge þar sem hann leikur á
móti Glenn Close.
Jeff Bridges i Starman.
Nokkrar myndir sem fá-
anlegar eru með Jeff Bridges á
videóleigum:
The Last Picture Show
The Last American Hero
Thunderbolt and Lightfoot
Hearts of the West
King Kong
Stay Hungry
Winter Kills
Somebody Killed Her Hus-
band
Heaven's Gate
Cutters Way
Tron
Kiss Me Goodbye
Against All Odds.
Umsjón: Hilmar Karlsson
42 Vikan 4. tbl.