Vikan - 23.01.1986, Page 52
Barna-Vikan
Af andlega sviðinu
Guð vildi tala við einn af þjónum sínum á jörðinni og hvísl-
aði: Friðrik!
Friðrik rumskaði ekki.
Guð sagði ögn hærra: Friðrik!
Friðrik sneri sér á hina hliðina.
Þá hrópaði guð: Doktortheol. Friðrikfrá Mosbergi.
Friðrik þaut á fætur: Flerra, tala þú. Þjónn þinn heyrir.
Diddi var meðal kirkjuræknustu sóknarbarnanna en hafði
því miður þann leiða vana að sofna alltaf þegar tíu mínútur
voru liðnar af guðsþjónustunni. Presturinn ráðfærði sig við
meðhjálparann og ætlaði að reyna að fá hann til að leiða sókn-
arbarninu fyrir sjónir að maður ætti ekki að sofna undir predik-
un.
Næsta sunnudag, þegar Diddi var á leið inn kirkjugólfið,
hrópaði meðhjálparinn yfir kirkjuna:
— Sigfröður, má bjóða þér efri koju eða neðri koju í dag?
Það var heima hjá baptistanum. Söfnuðurinn var nýbúinn
aðfá nýjan prest.
— Hvers vegna létuð þið þann gamla fara?
— Hann var alltaf að predika að ef við höguðum okkur ekki
vel myndum við stikna í helvíti.
— Já, en gerirsá nýi þaðekki lika?
— Jú, en hann er þó að minnsta kosti leiður á svipinn. Sá
gamli var alltaf svo kátur yfir þessu.
Horfumst í augu
Það væri best fyrir refinn á myndinni að láta sig hverfa — mennirn-
ir eru á refaveiðum. Litaðu myndina: 1 — rauður. 2 — svartur. 3 —
gulur. 4 — ljósbrúnn. 5 — húðlitur. 6 — ljósgrænn. 7 — dökkvínrauð-
ur.
Spilagaldur
Fjölskyldan var á leið úr kirkju. Á heimleiðinni var faðirinn
að nöldra yfir predikuninni, móðirin var óhress með orgel-
leikarann og litli bróðir sagði að meðhjálparinn skrollaði. En
stóru systur þótti þá nóg komið af gagnrýni og sagði:
— Ég held að þetta hafi nú bara verið ágætt fyrir þennan
tíkall sem þið settuð í samskotabaukinn.
Leggðu spilabunka á borðið og
biddu einhvern að velja sér eitt
spil úr bunkanum og setja það
neðst í bunkann.
Taktu spilabunkann og haltu
honum fyrir aftan bak. Reyndu
svo að líma upprúllað, gegnsætt
limband á neðsta spiliö án þess
að nokkur sjái. Hentu svo öllum
bunkanum í næsta vegg.
Kraftaverk! Spilið sem valið
var límist við vegginn en hin
spilin detta öll á gólfiö.
Sýning hafin
Hvað vantar til að sýningin geti hafist? Dragðu línu frá 1 til 14 til að
komast að því hver er stjarna sýningarinnar.
52 Vikan4. tbl.