Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 4
lit á
Hér má sjá eitt af hinum vistlegu herbergjum hótelsins.
1 hjarta borgarinnar, á mótum
Þórsgötu og Týsgötu, stendur
Hótel Óðinsvé. Það er einungis
tveggja ára gamalt, var opnað
þann 18. maí 1984.1 húsinu var
áður rekin smurbrauðsstofan
Brauðbær, ásamt annarri starf-
semi. Bjami Arnason, eigandi
Brauðbæjar, ákvað að söðla
um, flutti smurbrauðsstofuna
að Þórsgötu 17 og setti á lagg-
imar gistihús. Utliti og inn-
réttingu hússins var gjörbreytt
og Rúnar Gunnarsson arkitekt
hannaði nýja skipan þess.
Á Hótel Óðinsvéum em 20
nimgóð tveggja manna her-
bergi, 6 einstaklingsherbergi og
tvær svítur. Ymis þægindi
fylgja öllum herbergjum, svo
sem sími, ísskápur, útvarp og
sjónvarp. Hótelið á móttöku-
disk og nær ýmsum vinsælum
sjónvarpsrásum, meðal annars
Teleglobe, Film net og Music
Box. Svítumar em á tveimur
hæðum. Neðri hæð þeirra er
með svipuðu sniði og önnur
herbergi hússins en á efri hæð
er smekkleg setustofa. I setu-
stofunni er meðal annars sófi
sem hentar vel sem legubekkur.
Herbergin em mjög stílhrein
og vinaleg. Húsgögn eru í ljós-
um litum og gluggatjöld og
ábreiður í rómantískum sveita-
stíl.
Á annarri hæð hótelsins er
nimgóð setustofa. Þar geta
gestir setið í hópum og spjallað
og þar er sjónvarpstæki. Frá
setustofunni liggur verönd sem
vísar út í friðsælan húsagarð. Á
næsta ári verður veröndin
stækkuð töluvert, komið þar
upp gróðurhúsi og trjám. Sér-
staka athygli vekja myndir á
veggjum og aðrir munir sem
prýða staðinn.
Hin skemmtilega uppbygging
hótelsins kemur einna best í
ljós í matsalnum. Uppistaða
hans er veitingastaðurinn
Brauðbær en með tilkomu hót-
elsins var hann stækkaður. Var
það gert með því að byggja
garðstofu við hliðina. Vísar
hún að Þórsgötu, vistgötunni
nýju. Suðrænn blær leikur um
gesti í garðstofunni, einn við-
mælenda minna sagðist fyllast
sömu tilfinningu og á ferð í
4 VIKAN 35. TBL