Vikan


Vikan - 28.08.1986, Page 5

Vikan - 28.08.1986, Page 5
Úr annarri svitunni, þetta er efri hæöin. Hinn glæsilegi salatbar sem boóið er upp á. París. Þröng, vinaleg gatan, snotur innrétting garðstofunn- ar og frábær matur hefðu þessi áhrif á sig. Kokkamir á Hótel Óðinsvé- um leggja ríka áherslu á fjöl- breyttan matseðil. Boðið er jöíhum höndum upp á kjöt- og sjávarrétti ásamt miklu úrvali af for- og eftirréttum. Sérstaka athygli vekur gimilegur salat- bar. Salatið er innifalið í öllum aðalréttum en einnig má kaupa það eitt sér. Þess má geta til gamans að einn af sérréttum staðarins er langreyð. Þetta er valin sneið, pönnusteikt í rauð- vínslagaðri sósu, bragðbættri með Madeiravíni, borin fram með reyktu fleski, perlulauk og kartöflugratíni. Matsalurinn hefur vínveit- ingaleyfi og er opinn frá 11.30 til 23.00 alla daga. Þá er fram- reiddur morgunverður frá 7.30 til 10.00. _ Hótel Óðinsvé er ungt hótel og stöðugt er verið að auka þjónustu þess. Fyrr á árinu var sett mjög fullkomin lyfta í hús- ið og nú á næstunni komast í gagnið smábarir á hverju her- bergi. Þar verður gestum meðal annars boðið upp á ávaxta- og gosdrykki og ýmiss konar góð- gæti. Um næstu áramót verður settur upp bar í kjallara húss- ins. Heiður Gunnarsdóttir er hót- elstjóri á Hótel Óðinsvéum. Hún sagði að í sumar hefðu flestir gesta komið frá Norður- löndum og nýting á herbergjum verið um 90%. Aðspurð kvað hún aðsóknina í vetur hafa far- ið fram úr öllum vonum, einkum gisti á hótelinu utan- bæjarfólk í ýmsum erindum hér sunnanlands. Heiður sagði ásókn í hótelið mikla, ekki síst vegna staðsetningar þess. Það- Úr garðstofunni, sannkölluð suðræn stemmning. an væri stutt í miðbæinn en hótelið væri fyllilega laust við þann eril og skarkala sem hon- um fylgir. Næturgisting í eins manns herbergi án sturtu kostar 1760 krónur og 2330 í herbergi með sturtu. Verð á tveggja manna herbergjum er þrískipt. Her- bergi án baðs kostar 2370, svokölluð „Twin“ herbergi kosta 3110 yfir nóttina og hjónaherbergi kostar 3600 krónur. Verð á svítu yfir nótt er4100. 35. TBL VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.