Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 53
Sveitabýlið Akurhóll er fallegt og dæmigert
breskt hús með hvítmálaða gluggakarma.
Umhverfis það er lítill og vel hirtur garður
þar sem fjöldi söngfugla flögrar grein af grein.
Það hlýtur að vera draumur allra að búa í
einu sliku og ekki síst vegna þess að Akur-
hóll er í Sherbourne, einu fegursta héraði
Englands.
Kav Newton var á höttunum eftir svona
húsi. í þrjátíu ár hafði Kay unnið sem hjúkr-
unarkona hjá Konunglega breska flotanum
og þegar hún lét af störfum og komst á eftir-
laun leitaði hún að kyrrum, vinalegum og
þægilegum stað þar sem hún gæti búið í friði
og notið eftirlauna sinna laus við brauðstrit-
ið. Hún gældi við hugmynd um garðinn þar
sem hún gæti hlúð að blómum og ræktað
grænmeti, nú og svo gæti hún horft á sjón-
varpið þegar hana langaði til eða skroppið í
te til nágrannanna. Ef rigningin lemdi glugg-
«ana gæti hún setið við arininn og heklað.
Svona hugsaði Kay með eftirvæntingu og til-
hlökkun til framtíðarinnar.
Það var um miðjan júlímánuð 1985 sem
Kay skoðaði bæinn Akurhól í Sherbourne
og hún fann að nú hafði hún fundið það sem
hún leitaði að. Sólin skein í gegnum rúðurnar
og falleg blúndugluggatjöldin náðu ekki að
hefta geislana sern báru birtu um allt hús-
ið.
Til hægri við forstofuna var falleg dagstofa
og herbergi sem fyrrum hafði verið svefnher-
bergi en var nú notað sem eldiviðargeymsla.
Eldhúsið og borðstofan voru a/tur á móti til
vinstri þegar inn var koinið. Á efri hæðinni
var baðherbergi og tvö svefnherbergi. Kay
ákvað að kaupa húsið. Það var alveg tilvalið
fyrir hana að henni fannst. Og það sem ýtti
enn frekar undir kaupin var að rétt hjá um-
ræddu húsi bjó góð vinkona hennar, Madlina
Samers. Fyrsti mánuðurinn fór í alls konar
tiltektir og málningarvinnu hjá Kay.
Hún gerði sér far um að setja persónulegan
svip sinn á híbýlin. Henni hafði auðnast að
eignast heimili, raunverulegt heimili, ná-
kvæmlega eins og hún óskaði - úti í miðri
sveit. Hún var í náinni snertingu við náttúr-
una og gat farið í langar gönguferðir i hreina
loftinu þegar henni sýndist. Fuglarnir vöktu
hana á morgnana með Qörlegum söng og hún
naut þess sannarlega að vera til. í grenndinni
voru sams konar hús og hennar eigið þar sem
vinsamlegir nágrannar bjuggu og Kay fann
ekki til einmanaleika, enda gat hún líka
35. TBL VI KAN 53