Vikan

Tölublað

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 51

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 51
P 0 S T U R IÐJUÞJÁLFUN Ágæti Póstur. Mig langartil þess að spyrja þig nokkurra spurninga varðandi iðjuþjálfun. Ég hef haft áhuga fyrir slíku námi um nokkurt skeið en er í hálfgerðum vandræðum með að fá ein- hverjar upplýsingar um þetta. Mér er reyndar kunnugt um að iðjuþjálfun verði maður að læra erlendis. Hér koma svo spurningarnar: 1. Hvaða menntun þarf maður að hafa til þess að komast I þetta nám? 2. Út á hvað gengur námið? 3. Hvaða starfsmöguleikar eru fyrir hendí eftir að námi lýkur? Jæja, ég læt þetta duga að sinni. Og bíð bara og vonast eftir svari frá þér, Póstur góður. Iðjuþjálfunaráhugamaður. Eins og þú nefnir í bréfi þínu fer nám í iðjuþjálfun fram erlendis, annaðhvort við iðjuþjálfaskóla eða háskóladeildir. Námið tekur þrjú til fjögur ár og samsvarar það BS-gráðu. i Bandaríkjunum ersíðan mögu- leiki á viðbótarnámi sem gefur mastergráðu og doktorsgráðu. Þú verður að hafa stúdentspróf eða hlið- stæða menntun til þess að komast í þetta nám. Auk þess kemur ýmis verkleg reynsla að gagni. Nám í iðjuþjálfun skiptist í þrjá þætti. læknisfræðilegan hluta. athafnanám og verklega þjálfun. I læknisfræðilega hlut- anum er til dæmis lögð stund á líffærafræði, lífeðlisfræði. sálarfræði. iðjuþjálfafræði svo eitthvað sé nefnt. Athafnanámið byggist á kennslu I notkun athafna, til dæmis leik- rænnar tjáningar. vefnaðar. leirmótunar. tré- og málmsmíða Einnig er kennt hvernig megi greina athafnir í frumparta sina þannig að þær komi til móts við meðferðarþörf sjúkl- ings. / verklegu þjálfuninni þurfa nemendur að meðhöndla sjúklinga undir handleiðslu reynds iðjuþjálfa. Auk þess fer verknám fram á verkstæðum þar sem prófaðar eru ýmsar atvinnugreinar. Iðjuþjálfar vinna fyrirþyggjandi starf. end- urhæfa og veita eftirmeðferð fyrir fólk með líkamleg, andleg og félagsleg vandamál þannig að starfsvettvangur iðjuþjálfa er viða. má til dæmis nefna sjúkrahús. félagsmála- stofnanir. heimili. dagvistunarstofnanir. elliheimili. skóla. stofnanir fyrir þroskahefta og fatlaða auk margra annarra stofnana. PENNAVINIR Bolzoni Gina Via Carduccí 9 43035 Felino (Parma) Italy Gina safnar póstkortum en auk þess hefur hún áhuga á tónlist. Anjum Zafar Dr. Zafar Ghauri Building Sultan Ahmed Road Rehmanpura-LAHORE 16 Pakistan Anjum er 17 ára gamall námsmaður. Hann skrifar á ensku. Richard Lethbridge 55 Oriel Road Portsmouth Hants Great Britain Richard er 25 ára gamall og óskar eftir pennavinum á aldrinum 17-28 ára. Hann skrifar á ensku. Lisa Natterer Messerschmidtgasse 31/4 A-1180 VIENNA Austria Lisa er 39 ára gömul og hefur margvísleg áhugamál. Hazel Houldey 37 Holly Road Cardiff CF 5, 3HH South Wales England Hazel er 25 ára gömul. Áhugamál hennar eru dýr, gönguferðir, tónlist og bréfaskriftir. Barbara Nottingham 3120 E. Palm Lane House Phoenix, Arizona 85008 U.S.A. Barbara er 47 ára gömul. Áhugamál henn- ar eru pennavinir, lestur, sjónvarp og ferða- lög. Einnig safnar hún póstkortum, skeiðum og dúkkum. VINKONA OG STRÁKAR Komdu sæll, kæri Póstur! Mér datt í hug að skrifa þér eftir að ég las Póstinn fyrir skömmu. Þar sagði fjórtán ára stelpa frá vandamálum sínum en mín eru mjög svipuð en samt ekki eins. Ég er sextán ára gömul og ég átti vinkonu sem er einu ári yngri en ég. Mér fannst hún á tímabili vera orðin svo leiðinleg og komin með svo mikla stæla að ég hætti að vera með henni. Eftir það hefur hún ekkert talað við mig og það sem meira er, hún lætur þetta líka bitna á systur minni. Þegar systir mín heilsar henni þá heilsar hún henni ekki og vill ekki tala við hana. Rétt eftir að við hættum að vera vinkonur flutti önnur stelpa hingað og við urðum strax mjög góðar vin- konur. Við fórum eitt sinn saman á ball og þar kynntist hún strák sem ég var hrifin af. Þau byrjuðu saman og eru svo hamingjusöm að það er alveg vonlaust fyrir mig að reyna að ná í hann. Málið er líka það að þegar ég verð hrifin af einhverjum strák þá er hann annaðhvort með stelpu eða þá að hann er ekki hrifinn af mér. Þó ég hafi ekki mikla trú á hjónabandinu get ég ekki hugsað mér að verða piparkerling. Ég hef reynt að gleyma strákum en þeir koma alltaf upp I huga mér. Bæ, bæ, í von um að þú hjálpir mér. Ein sem bíður eftir svari. Viðbrögð fyrrverandi vinkonu þinnar koma Póstinum ekkert mjög mikið á óvart. Það er ekkert óeðlilegt að vinkonan neiti að tala við þig eða systur þína ef þú hefur allt I einu hætt að vera með henni sisvona. Ef þú hefur gert henni grein fyrir af hverju þú hættir að vera með henni, sem Pósturinn vonar að þú hafir gert. hefur vinkona þín haft tvo kosti. annars vegar að reyna að hætta að vera leiöinleg og með stæla og halda vinskapnum við þig og hins vegar að móðgast og hætta að tala við þig. Ef þú hefur gert henni grein fyrir af hverju þú hættir að vera með henni hefur hún ein- faldlega móðgast. Ef þú hefur hins vegar ekki gert henni grein fyrir af hverju þú hætt- ir að vera með henni skaltu gera það því það er mjög óréttlátt að hætta allt í einu að tala við fólk án þess það viti ástæðuna. Á þínum aldriermjög algengtað ástamál- in gangi upp og niður hjá fólki. Pósturinn sér þó ekki að þú hafir neina ástæðu til að fara að örvænta strax, aðeins sextán ára gömul. Það er heldur engin skynsemi í þv, að reyna að gleyma strákum. Þvert á móti ættir þú að reyna að hugsa um sem flesta stráka áður en þú velur draumaprinsinn - sem kemur svo ríðandi á hesti sínum áður en þú veist af. 35. TBL VI KAN 51 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.