Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 47
Vísindamolar um fitu
Tengsl milli krabbameins
og líkamsfitu
t>að fylgir því refsing að vera of feitur...
meiri hætta á sykursýki, of háum blóðþrýstingi
og hjartasjúkdómum. Nú hefur það og sýnt sig
að tengsl eru á milli brjóstakrabbameins og lík-
amsfitu - því feitara sem fólk er þeim mun
meiri hætta.
Nýlega kom út skýrsla í ísrael um rannsókn-
ir á yfir 1000 brjóstakrabbameinssjúklingum.
Þar kom fram að því feitari sem konur eru
þeim mun meiri hætta er á myndun krabba-
meinsins hjá þeim sem komnar eru yfir breyt-
ingaskeiðið, þannig að svo virðist sem áhrif
offitu komi fram á löngum tíma. Einnig kom
fram að ef konur grenntust þegar þær voru
komnar yfir breytingaskeiðið þá minnkuðu lík-
urnar á sjúkdómnum - jafnvel þó konan hafi
verið of feit lengst af.
Sælleg - en auðveld brðð fyrir brjóstakrabba?
Ávextir og grænmeti - trefjarík og fitusnauð;
æskileg fæða.
Hvers vegna eru tengsl á milli líkamsfitu og
brjóstakrabbameins? Fitvivefir hafa afgerandi
áhrif á starfsemi kvenhormóna en þeir hormón-
ar hafa margoft verið bendlaðir við brjósta-
krabba. Það virðist svo að því meiri sem fitan
er því hærri verður stuðull kvenhormóna og
þannig verður hættan meiri. Israelsku vísinda-
mennirnir drógu þá ályktun af niðurstöðum
rannsóknanna að þar sem helmingur vestrænna
kvenna, sem komnar eru yfir breytingaskeiðið,
eru um eða yfir 20% of feitar þá mætti búast
við því að tíðni dauðsfalla af völdum brjósta-
krabbameins mætti lækka um um það bil 30%
ef konurnar grenntust.
Mataræði fólks nú á dögum er fituríkt og
trefjasnautt; tvö einkenni sem stuðla beinlínis
að offitu og óbeinlínis að brjóstakrabbameini.
Fjölmargar rannsóknir á mönnum hafa sýnt
þessi tengsl. Sams konar rannsóknir á dýrum
benda til þess sama.
Síðan á fyrstu árum þessarar aldar hefur
treflainnihald amerísks mataræðis fallið úr 60
grömmum á dag í 20 grömm nú. Ávextir inni-
halda trefjar en ekki ávaxtasafi, heilt kornmeti
en ekki unnið og malað og einnig eru trefjar í
grænmeti. Þessi matur er mettandi en ekki fit-
andi og það er því ekki óhugsandi að þannig
matur geti komið í veg fyrir brjóstakrabbamein.
Blaðra í magann - og kílóln hverfa!
Nýjasta
megrunar-
aðferðin í USA
Nýlega var sú megrunaraðferð tekin upp í Banda-
ríkjunum að agnarlítilh blöðru er komið fyrir á
slöngu sem sjúklingurinn siðan kyngir þannig
að hún hafnar í maga hans. Þá er blaðran blásin
upp og síðan fyllt með vökva. Slangan er því
næst tekin burt og um leið lokast blaðran. Hún
fyllir nærri upp í magann þannig að viðkomandi
þarf aðeins að borða örlítið þar til hann er mett-
ur og grennist því mjög fljótlega. Blaðran leysist
upp að vissum tíma liðnum og ef viðkomandi
vill grennast enn frekar lætur hann setja aðra
blöðru. Aðgerðin er framkvæmd af læknum á
stofu svo ekki þarf að leggjast inn á sjúkrahús.
Og nú er bara að bíða og vona að þessi aðferð
verði bráðlega tekin upp á íslandi...
Leiðrétting vegna greinarinnar
um garðinn að Grundarlandi 9
Að Grundarlandi 9 búa tveir bræður, þeir
Sigurgeir Gíslason og Pétur Gíslason. í grein-
inni um garðinn fallega sem er við húsið, urðu
þau leiðu mistök að nöfn bræðranna víxluðust.
Það er Pétur sem er eiginmaður Fanneyjar
Samsonardóttur og það eru þau hjónin sem
hafa ræktað garðinn. Velvirðingar er beðist á
þessum mistökum.