Vikan

Tölublað

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 38

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 38
Skiptar skoðanir Á að raða bömum í bekki eftir námsgetu? Er grunnskólalög gengu í gildi var í allflestum skólum horfið frá því fyrirkomulagi að raða börnum í bekki eftir getu. Þótti það brjóta í bága við markmið laganna. Þessi lausn hefur þó alla tíð verið umdeild og hér sannast að margar hliðar eru á máli hverju. Að þessu sinni munu sex einstaklingar, sem allir hafa starfað að fræðslu- og skólamálum um langt árabil, greina frá skoðun sinni í þess- um efnum. Etoo.ówsdótt* stjömuflokkur eða úrkast Hver raan ekki eftir eða hefur heyrt af skeiðklukkuaðferðinni sem heitt var í sumum skólum hér fyrr á árum til að meta námshæfi- leika 7 ára barna sem voru að byrja í skóla? Það hversu hratt þau gátu lesið texta um: sól í heiði og hann Óla litla á Hóli að leika sér við heim- alning milli þúfnakolla eða eitt- Bekkjaröðun þessi helst síðan oftast án tillits til þess hvaða náms- grein er verið að kenna, svo fáránlegt sem það er, og það sem verra er, röðunin reynist oft svo lífseig að nær ómögulegt er fyrir nemendur að fá henni hnikað þrátt fyrir góða ástundun. í sveitum og þar sem fámenni kom í veg fyrir bekkjarmyndun eft- nú á tímum finnst stórhættuleg, einkum fyrir gáfuðu hörnin, hefur á seinni árum verið að ryðja sér til rúms víða um heim sem sérstök ráðstöfun í framsæknum skólum. Þar er nemendum á misjöfnum aldri vísvitandi blandað saman, en auðvitað eru jafnframt gerðar við- eigandi ráðstafanir í kennsluhátt- um. Þessar ráðstafanir, svokallaðir sveigjanlegir kennsluhættir, eru í framkvæmd þær að reynt er eftir mætti að laga kennsluna að nem- andanum en ekki öfugt. Dregið er úr kennslu þar sem sama lexían er þulin fyrir alla jafnt. í staðinn er reynt að skapa þeim sem eru á svip- uðu róli í hverri námsgrein aðstæð- ur til að vinna saman í hópum eða að hver fer með sínum hraða, sem auðvitað er það æskilegasta. Umhverfi og aðstæður eru löguð að starfinu þannig að verkefni eru aðgengileg og auðvelt fyrir nem- endur að vinna í litlum hópum eða hver fyrir sig. Kennarinn hefur eft- ir sem áður á hendi verkstjórn en er minni tíma en áður í hlutverki fræðaþularins. Ástæður þessara breytinga eru margar en fyrst og fremst þær að uppeldisfrömuðir, stjórnmálamenn og kennarar víða um heim hafa nú á síðustu 20 árum gagnrýnt mjög Umsjon: Sigrún Ása Markúsdóttir hæfileikaröðun í bekki og beitt sér fyrir blönduðum bekkjum. Helstu rökin fyrir hæfileikaröð- un voru alltaf þau að með slíkri röðun væri hægt að skipa í náms- hópa í samræmi við greind og ná þannig betri námsárangri. Þegar betur var að gáð komu margir gallar á þessum kenningum í ljós. Það athyglisverðasta er að þrátt fyrir viðamiklar rannsóknir gekk erfiðlega að sýna fram á að árangur nemenda, sem var raðað á þennan máta í bekki, væri betri en hinna. Þvert á móti virðist margt benda til að greindir nemendur nái álíka góðum árangri í báðum kerf- um, meðalgreindir nemendur standi sig einnig álíka vel en þeir sem minna mega sín í námi standi sig betur í blönduðum bekkjum. Það kemur nefnilega víða i ljós að þegar raðað er á þennan hátt í bekki lenda þeir sem lakast eru settir í lökustu bekkjunum og eftir því sem lengra líður á námið dreg- ur stöðugt í sundur. Röðunin virðist því magna muninn sem fyrir er, andstætt því sem haldið var fram. Félagsleg og tilfinningaleg áhrif þessa er ekki síður mikilvægt að hafa í huga þegar verið er að vega og meta kennslufyrirkomulag sem á samkvæmt grunnskólalögum „ .. .að mótast af kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi" og „ .. .temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjörum og umhverfi...“ Fyrir mér og mörgum fleiri, sem kennt hafa á ýmsum aldursstigum í áraraðir, er það fullkomlega ljóst að ekki er sæmandi að viðhalda kerfi sem að öllum líkindum magn- ar mismun, eykur ójöfnuð og getur haft óbætanlegar félagslegar af- leiðingar fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið. Elin G. Ólafsdóttir kennari. hvað álíka illskiljanlegt gat ráðið úrslitum um hvort þau lentu í besta bekk, „stjörnuflokki“, eða „úrkast- -inu“, tossabekk. Þetta er á fagmáli kallað röðun eða hæfileikaröðun og felur í sér að fyrirfram er ákveðið að bekkir séu misjafnir til náms eftir tilteknu mati, til dæmis á lestrargetu nem- enda eða greindarprófi í upphafi námsárs. ir aldri var þessi háttur auðvitað ekki hafður á. Þar var nemendum með misjafna námsgetu og á mis- munandi aldri skipað saman í námshópa og gekk vel. Þannig er þetta reyndar víða enn bæði hér á landi og erlendis. Og það sem meira er, þessi aðferð, sem mörgum til sveita fannst hallæris- lausn fyrr á árum og ýmsum öðrum 38 VIKAN 35. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.