Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 50
D R A U
A R
r
INDÍÁNA-
HÖFÐINGII
SÓLINNI
Mig dreymdi fyrir nokkrum
árum draum sem ég man enn vel.
Hann var á þessa leið: Mér fannst
ég vera stödd í vinkillaga húsi að
hengja upp þvott. I garði í skjóli
við húsið voru óskaplega margar
dýrategundir i sátt og samlyndi,
mjög kyrrar, dýr sem undir venju-
legum kringumstæðum ættu ekki
að geta verið saman því þau
myndu éta hvert annað. Á austur-
himninum var sólin, stór og rauð,
og inni í henni mynd indíánahöfð-
ingja. Hann var mikilúðlegur með
mikið fjaðraskraut. í þeim enda
hússins, sem ég var ekki í, sá ég
risastóra kanínu.
Fyrir hverju er þessi draumur?
Með fyrirfram þökk.
V.
Þessi draumur er greinilega lífs-
hlaupsdraumur en ekki fyrirboði
um atburði naestu viku þannig að
hann er enn i fullu gildi þó ein-
hver ár séu liðin. I draumnum eru
sígild tákn, biblíuleg, þar sem
garðurinn er á vissan hátt eins og
ósnortin Eden. Allar dýrategund-
irnar í sátt og samlyndi eru
ákveðin tilvísun í skepnurnar um
þorð í örkinni fyrir syndaflóðið
(eða eftir). Indíánahöfðinginn I
sólinni er lika sterk tilvísun i sól-
dýrkun og ýmis heiðin trúarbrögð
og sýnir eða stórmerki á lofti.
Draumtákn afþessu tagi gefa ekki
merki um hversdagslegan æviferil
og benda til þess að I lifi þínu
gerist mjög óvenjulegir atburðir
sem eiga kannski meira skylt við
lif hugsjónamanns en venjulegs
hversdagsjóns. Efnishyggjan er
langt undan I þessum draumi en
einhvers konar leit að sönnum
gildum nær.
Þessi formáli er nauðsynlegur
til að gefa þessum draumi rétta
vídd þvi táknræn ráðning hans
kann að vera nokkuð veraldleg að
sjá, en með þessum athugasemd-
um ætti hún þó að skiljast. Efni
draumsins er barátta og strit eftir
þvl marki sem þú virðist keppa að,
tvisýn barátta þar sem ekki eru
allir viðhlæjendur vinir. Þú þarft
greinilega oft að hafa andvara á
þér gagnvart fólki sem þykist já-
kvætt. Samkeppni virðist hörð i
þvi sem þú ert að gera og þú virð-
ist vera reiðubúin að leggja mikið
I sölurnar, einmitt vegna þess sem
hér á undan kemur fram. Það sem
þú ert að fást við er ekki á hvers-
dagslegu plani, tæpast jarðnesku.
Kannski gerir þú ómanneskjulegar
kröfur til sjálfrar þín og i einhverju
efni áttu þér mjög háleit markmið.
Þessi óvenjulega afstaða, sem
kemur fram i draumnum, ergreini-
iega ekkert auðveld að lifa með
og þú munt oft lenda i harðvít-
ugri baráttu en ef eitthvað leiðir
þig til sigurs er það visst efaleysi
og óttaleysi og ótrúleg staðfesta
á einhverju afmörkuðu sviði.
Draumurinn lofar ekki fullum sigri
en miklum árangri. Hvað sem
þetta er mun þessi barátta fyrir þvi
sem þú telur þig verða að gera
setja svip á líf þitt án þess þó að
yfirskyggja allt annað.
DURAN
DURAN
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig um
að ráða draum sem mig dreymdi
fyrir stuttu.
Hann byrjaði allt í einu þannig
að mér var sagt að Duran Duran
ætti að koma í heimsókn til íslands
og það sem meira er, í smáþorpið
þar sem ég á heima. Þótt undar-
legt sé voru aðeins örfáir krakkar
sem biðu eftirokkarstjörnum. Vin-
kona mín, X, sem er með algjöra
dellu fyrir Duran Duran, var að
sjálfsögðu búin að troða sér og
þegar ég ætlaði að finna Simon
Le Bon æddi ég inn í herbergið
hjá honum og þá voru þau bara
að kyssast í rúminu hans. Stelpa,
sem við skulum nefna Y, klúðraði
þarna einhverju sem ég man ekki
hvað var.
Ég spurði X hvort hún ætlaði
ekki að finna John Taylor (hún
heldur mest upp á hann) en hún
ansaði: Ekki fyrr en ég er búin að
finna Andy! Þegar við vorum að
leita að honum hringdum við hjá
honum. Var opnaði og svo var
bara farið aftur frá dyrunum. Við
gengum inn en þá sat þar bara
einhver fimm manna fjölskylda og
þá vaknaði ég.
4410-4180
Ástæðan fyrir því að þessi
draumur hefur beðið hér lengi er
einfaldlega sú að hann er ekkert
táknrænn. Hins vegar bendir hann
til þess að þú mættir vera umburð-
arlyndari gagnvart öðrum. En
Duran Duran kemur allavega ekki
hingað út á þennan draum.
SMYRSLTIL
AÐ SYFJA
EKKI
Kæri draumráðandi!
Ég hef aldrei sent þér draum til
ráðningar áður. En um siðustu
helgi dreymdi mig draum sem mér
þætti fróðlegt að vita hvort boðar
eitthvað sérstakt.
Tónlistarkennarinn minn, A,
fylgdi mér og vinkonu minni, B, á
skipi yfir einhvern fjörð eða eitt-
hvað svoleiðis. Ferðin tók mjög
stuttan tíma og ég man ekkert frá
henni nema að það var mjög gott
í sjóinn. Um leið og við snertum
bakkann hinum megin við fjörð-
inn vorum við komin á skemmti-
stað. Þar átti að fara fram leikrit
og ball á eftir fyrir alla þá sem
voru í tónlistarskólum og kórum á
landinu. Það kostaði eitthvað inn-
an við 100 krónur inn og C var
að afgreiða. B tók fram 100 krón-
ur, stakk í möppu hjá C og gaf C
B til baka það sem á vantaði. Ég
gerði eins og B en þegar C ætlaði
að fara að gefa mér til baka baó A
C um það ná í eitthvað fyrir sig. C
skrapp frá en kom stuttu seinna
með smyrsl í dollu. A sagði okkur
B að bera þetta á augnlok og und-
ir augun til þess að okkur myndi
ekki syfja. Svo sneri ég mér að C
og sagðist eiga eftir að fá til baka
af 100 krónum sem ég borgaði
mig inn með. En C var ekki á sama
máli svo við fórum að rífast. Við
rifumst og rifumst og mér leið
mjög illa á meðan rifrildið stóð
yfir. C hafði betur og ég fór inn á
salerni til að jafna mig betur. Ég
veit ekki hvað ég var þar lengi eða
hvort ég grét en ég var að ráfa um
þar inni á stóru svæði. Þegar ég
kom fram var mjög hljótt í salnum
þar sem átti að vera fullt af fólki
að horfa á leikritið, en þetta leikrit
var aldrei sýnt vegna okkar C. Mér
fannst mjög fáir vera í salnum og
þar þekkti ég aðeins D. Svo sagði
einhver: Skyldi hún þora að segja
frá hvað gerðist? Við þessi orð
labbaði ég ákveðin upp á svið og
byrjaði að segja frá. Ekkert gerðist
þar til ég kom að því þegar við C
fórum að rífast. Þá sá ég C hlaupa
út og allt í einu var salurinn fullur
af fólki sem dansaði eftir einhverri
rólegri músík. Ég hélt aðeins áfram
að tala, hækkaði ekki einu sinni
róminn og heyrði ágætlega í sjálfri
mér. Stuttu seinna þakkaði ég fyr-
ir og fór að reíka um salinn. Ég
dansaði ekkert því mér leið svo
einkennilega, eins og ég væri tóm.
Ég þekkti þarna E og heilsaði. Ég
varð að heilsa aftur áður en E tók
eftir mér, heilsaði og vinist einn
og undrandi. Svo hitti ég A sem
sagði að við þyrftum að fara. Úrið
mitt sýndi 0:50. Ég fór og fann B
að dansa við F og G. B fór til A
en ég dokaði við því ég sá C sitja
skammt undan með krosslagða
fætur, rauða í framan og nagandi
á sér neglurnar. Ég sagði við C:
Vegna þessa atviks hér áðan, á
milli okkar, þá get ég ekki haldið
áfram i tónlistarskólanum. Ég er
hætt!
Ég.
Þessi draumur er afskaplega
góðs viti, bendir til þroska og far-
sældar í náinni framtið, en þessi
þroski og þessi jákvæðu atvik,
sem þig munu henda, munu skilja
þig eftir nokkuð hugsi um framtíð-
ina og ekki lausa við angurværð.
Þetta hljómar ef til vill hjákátlega
en skýrist vonum fyrr. Sennilega
mun velgengni af einhverju tagi
boða jákvæðar breytingar i lifi
þinu og það ef til vill fyrr en þú
ert reiðubúin að breyta þvi sem
þarf til að nýta þér þau tækifæri
sem þér berast. En þessi draumur
er engu að siður fyrirboði góðra
tiðinda, eftil vill tengjast þau námi
þínu, i tónlist eða öðru. Þú gerðir
vel i því að eiga þér trúnaðarmann
til að ræða tilfinningar þínar á erf-
iðum stundum þvi þrátt fyrir
velgengnina er hætt við að á
stundum þurfirþú á þviað halda.
FLUG
Kæri draumráðandi.
Mig dreymir oft að ég sé fljúg-
andi út um allt. Það er mjög
skemmtilegt og ég flýg mjög létti-
lega yfir hús og er ekkert hrædd
við það. Mér finnast þetta mjög
raunverulegir draumar og ég vona
að þeir séu fyrir góðu því mér líð-
ur alveg óskaplega vel þegar mig
dreymir svona drauma. Mig
dreymir líka stundum strák sem
heitir O og ég er mjög hrifin af í
raunveruleikanum.
Kæri draumráðandi, viltu svara
bréfinu fljótt.
OO.
Flugdraumar eru mjög farsælir
ef vel gengur. Þeir eru oft merki
um mikla frelsisþrá og geta gefið
visbendingu um að þig langi að
gera meira en þú hættir þér út i.
Strákanafnið skiptir litlu máli fyrst
þú ert skotin i honum. Þig dreym-
ir hann einfaldlega þess vegna.
50 VIKAN 35. TBL