Vikan

Tölublað

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 58

Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 58
Bifhjólasamtök lýðveldisins Þú ert á ferð eitt fimmtudagskvöld. Kemur af Breiðholtsbrautinni á leið í Kópavog og rökkvað úti við. Þá sérðu eineygt farartæki aka á móti þér ofan Smiðjuveginn. I rauninni sérðu aðeins ljósið, hvítt ljós á hraðri ferð niður brekkuna, ljós sem beygir af leið og þýtur inn í einn botnlangann. Þetta var bifhjól en ökumaðurinn sást naumast, rétt glampaði á hjálminn en hann hlýtur að hafa verið svartklæddur. Það var auðvitað. Einn af þessum leðurtöffurum. Og þú spyrð í hljóði: Ætti ég að elta? Undir niðri dáistu að þessum farartækjum og því sem þeim fylgir, en þú ert hræddur. „Hjá okkur er árið 3. Sniglar, bif- hjólasamtök lýðveldisins voru stofnuð 1. apríl 1984, félagar eru nú um 220 og fjölga sér mjög hratt. Markmið samtakanna er að sameina bifhjólafólk og vinna að hagsmuna- málum þess og fara í ferðalög innanlands sem utan. Við höldum auk þess árshátíð og mýmargar aðrar samkomur og gefum svo út blað mánaðarlega í brotinu A5 sem heitir Sniglafréttir. Það er málgagnið okk- ar. Samtökin eru öllum opin sem eru orðnir 17 ára, það er ekkert skilyrði að menn eigi hjól. Þú mátt þess vegna eiga Trabant. Og það eru eng- in stærðarlágmörk á hjólum. Þau koma hins vegar af sjálfu sér. Hjólin verða að vera það stór að menn drag- ist ekki aftur úr á ferðum. Yfirleitt byrja menn á minni hjólum og stækka síðan við sig. Mikið vill meira. Það er líka til í dæminu að menn komi inn í samtökin á drullu- möllurum, eins og við köllum þá, það eru hjól til að ausa upp drullu, en þeir eru komnir á götuhjól innan tíð- ar; þeir sjá að það er hamingjan. Við leggjum ekki í vana okkar að spæna upp nýgræðinginn á örfoka landinu. Við keyrum á malbiki." A malbikuðu planinu fyrir framan veitingastaðinn standa þessi stóru gljáfægðu hjól í röðum en fyrir innan er félagsfundur hjá Sniglum að hefj- ast. Þið ljósmyndarinn reynið að vera kúl þar sem þið klofið milli fé- lagsmanna og komið ykkur fyrir við borð úti í horni. Ykkar maður er ekki kominn og þið bíðið, horfið út um gluggann þar sem ný hjól bætast stöðugt í hóp þeirra sem fyrir eru og svo brosið þið í kampinn þegar tveir naggar á Hondu 50 dóla nokkra hringi, virða tryllitækin fyrir sér úr hæfilegri fjarlægð en gefa síðan í botn í burtu. Flestir í kringum ykkur innandyra eru íklæddir svörtum leð- urjökkum og margir aðsniðnum buxum úr sama efni. Á sumum jökk- unum eru merki samtakanna og á örfáum blárauður borði en að klæðn- aðinum slepptum er þetta mis- litur hópur. Allir bíðandi og líka þið. „Það er engin ástæða fyrir hinn almenna borgara að óttast þetta svartklædda leðraða fólk því þetta eru öðlingar upp til hópa. Meðlimir samtakanna eru á aldrinum frá því að vera ekki farin að spretta grön upp í að vera sköllóttir. Sá elsti fer að komast á sextugsaldur. Svo má ekki gleyma því að hér eru þónokkr- ar píur, eða það er nær að tala um glæsikvendi, sem keyra um á stórum, kraftmiklum hjólum. Þær eru fleiri en ein og íleiri en tvær og þar fyrir utan eru margar í samtökunum sem eru ekki komnar á hjól, ennþá. Þetta er fólk úr öllum starfsstéttum; hár- greiðslufólk, skemmtikraftar, sjó- menn, í raun þverskurður af þjóðfélaginu. Til dæmis höfum við okkar eigin hljómsveit, Sniglaband- ið. Það æfir af krafti og hefur haldið nokkra dansleiki, meðal annars á Þórshöfn um áramótin og spilar á Þjóðhátíð í Eyjum. Svo má heldur ekki gleyma því að þetta eru lands- samtök. I þeim er fólk hvaðanæva af landinu. Þetta er ekki klúbbur heldur ein samtök og engar deildir. Og starfsemi okkar er vel skipulögð. Fimrn manna stjórn fer með öll mál en hún er kosin ásamt fimm vara- mönnum á árlegum aðalfundi. Eitt af langtímamarkmiðum Snigla er að koma íslensku þjóðinni á mótor hjól fyrir aldamót." 58 VIKAN 35. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.