Vikan - 28.08.1986, Blaðsíða 23
Nýjar kvikmyndir
i
Háskólabíó er þessa dagana
að taka til sýningar alveg
glænýja bandaríska kvik-
mynd, Top Gun, sem eftir
öllum sólarmerkjum að dæma
ætlar að verða vinsælasta
kvikmyndin vestanhafs þetta
árið. Á aðeins þrjátíu dögum
náði hún að hala inn fimmtíu
milljónir dollara sem eru rúm-
ar tvö hundruð milljónir
íslenskra króna.
Hvað gerir Top Gun svo vin-
sæla sem raun ber vitni er
erfítt að útskýra. Þótt myndin
höfði kannski fyrst og fremst
til yngri kynslóðar áhorfenda
er ekki hægt að kalla hana
táningamynd. Hún fjallar að
vísu um ungan ofurhuga sem
er herflugmaður að atvinnu,
þótt starf hans sé að sýna list-
flug á þar til gerðum þotum.
Víst er tilkomumikil sjón að
sjá orrustuþotur í hópflugi
gera hina ótrúlegustu hluti
eins og íslendingar hafa feng-
ið að kynnast. Það þarf þó
meira tiþog má þar nefna val
leikara. í aðalhlutverkið,
hlutverk flugkafteinsins Pete
„Maverick“ Mitchell, hefur
valist vinsæll ungur leikari,
Tom Cruise, sem við sáum
nýlega í Risky Business. Þykir
hann standa sig vel í Top Gun
og víst er það að ný stór-
stjarna er fædd ef marka má
umsagnir erlendra blaða.
Mótleikari hans í Top Gun
er hin athyglisverða leikkona
Kelly McGillis sem fyrst vakti
athygli í Reuben Reuben og
sló svo eftirminnilega í gegn í
Witness. Það má telja víst að
Top Gun muni njóta vinsælda
hér sem erlendis enda myndin
hin skemmtilegasta
Hetjan íTopGunerá
jöröu niöri jafnmikið fyrir
hraðann og í háloftunum.
Aöalhlutverkin i Top Gun
leika Tom Cruise og Kelly
McGillis.
35. TBL VIKAN 23