Vikan - 28.08.1986, Page 56
VIK A
S T J Ö R N U S P Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
28. ÁGÚST - 3. SEPTEMBER
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Reyndu að láta af sjálfselskunni
þótt það kosti nokkrar fórnir. Þér
hættir til að gleyma að í kringum
þig er fólk sem treystir þér og vænt-
ir liðveislu þinnar. Gættu þess að
eyða ekki um efni fram, að því kem-
ur fyrr en þig grunar að þú þarft
nauðsynlega á peningum að halda.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Ertu svolítið einmana? Þú þarft að
læra að njóta einverunnar og bera
þig eftir félagsskap þegar við á.
Varastu að vorkenna sjálfum þér,
það leiðir ævinlega til ills eins.
Líttu í kringum þig og þú munt
finna þann sem þarf á félagsskap
þínum og uppörvun að halda.
LJÓNIÐ 24. júlí-24. ágúst
Þú verður í skapi til að gera ýmis-
legt sem þú nennir ekki að öðru
jöfnu og dugnaðurinn í þér gengur
fram af fólkinu í kringum þig. Þú
skalt heldur ekki reikna með að
allir verði fúsir að fylgja þér eftir
og svo lengi sem þú lætur það ekki
ergja þig kemur það ekkert að sök.
VOGIN 25. sept.-23. okt.
Þér lánast fjárfestingar venju frem-
ur vel í vikunni og sé eitthvað slíkt
á döfinni hjá þér ættirðu að notfæra
þér þennan byr. Þú getur jafnvel
átt von á ágóða sem byggist á
heppni eða slembilukku. Helgin
verður ánægjuleg hvort sem þú kýst
rólegheit eða ferð út á milli manna.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Þú verður önnum kafmn og hætt
við að þú vanrækir það sem meira
er um vert en að vinna sér inn pen-
inga. Sannleikanum verður hver
sárreiðastur en þú skalt reyna að
taka ekki illa upp þegar þú verður
minntur á þetta - þótt þú vitir upp
á þig skömmina.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Þú verður beðinn um viðvik sem
sumum finnst aðeins smágreiði en
er í þínum augum töluvert meira
mál. Sínum augum lítur hver á silfr-
ið og þú skalt útskýra þín sjónarmið
til að komast hjá eftirmálum og
misskilningi. Mismunandi skoðanir
eiga fyllilega rétt á sér.
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Veikindi eða ófyrirsjáanlegir við-
burðir setja strik í reikninginn hjá
þér. Við þessu er ekkert að gera og
sá kostur vænstur að taka því sem
að höndum ber með þolinmæði. Eft-
ir helgina breytist staðan og þá fer
að hilla undir að þú getir látið gaml-
an draum rætast.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Það verður líf og fjör í kringum þig
og þú hefur tæplega tíma til að
sinna daglegu amstri. Þú mátt þó
til með að koma því nauðsynlegasta
af og verður að meta hvað helst
má sitja á hakanum. Þetta stúss
kann að baka þér óvinsældir um
skeið en það lagast fljótt.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Láttu ekki trúgirnina leiða þig í
ógöngur. Þér verður sennilega lofað
einhverju sem sá hinn sami hugsar
sér ekki að standa við og því varleg-
ast fyrir þig að treysta því mátulega.
Þetta þarf ekki að koma að sök ef
þú lætur krók koma á móti bragði
og launar honum lambið gráa.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Maður, sem þú hefur þekkt lengi
en haft fremur lítið samneyti við
upp á síðkastið, kemur þér mjög á
óvart og í ljós kemur að hann er
ekki allur þar sem hann er séður.
Þú verður í fyrstu í vafa um hvern-
ig bregðast skuli við en heilbrigð
skynsemi þín verður þér til bjargar.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Málin snúast heldur betur í hönd-
unum á þér og til að byrja með
veldur það þér gremju. Fljótlega
kemstu að raun um að þú hagnast
á breytingunum og losnar að auki
við ýmislegt sem þú hafðir kviðið.
Leitaðu ráða sértu í vafa um að þú
standir rétt að málum.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Gamalt deilumál rifjast upp við
endurfundi. Segðu sem minnst því
að svo virðist sem ýmsum sé þetta
ennþá viðkvæmt og heillavænleg-
ast mun að láta kyrrt liggja.
Staðhæfing stendur hvort sem er
gegn staðhæfingu og tilgangslaust
að karpa um löngu liðna atburði.
Hjá meyjum er framundan tímabil meiri umbrota og sveiflna
en þeim dæmigerðu fellur. Mjög er komið undir umhverfi
og ýmsum ytri aðstæðum hversu til tekst við að standa af
sér veðrin og sé allt í föstum skorðum fyrir má vera að lít-
illa sem engra breytinga verði vart. í október er mikils um
vert að gæta vel að fjárhagnum og skyldu meyjar forðast að
taka á sig fjárhagsskuldbindingar í þeim mánuði. Með að-
gæslu og sparsemi, sem meyjum er lagin, tekst þeim trúlega
að varast ágjöf af þessu tagi þótt það kynni að standa í fólki
úr öðrum stjörnumerkjum. Nóvember er aftur á móti hag-
stæður mánuður og þá munu meyjar verða í essinu sínu.
Hyggi þær á meiri háttar breytingar er síðari hluti þess
mánaðar trúlega heppilegur timi til að láta til skarar skríða.
Undir lok ársins fer að komast meira jafnvægi á hlutina og
í janúar á næsta ári er ekki útlit fyrir annað en að friður
og kyrrð ríki í kringum meyjar.
56 VI KAN 35. TBL