Vikan


Vikan - 22.01.1987, Side 51

Vikan - 22.01.1987, Side 51
P 0 S T U R ÞUNGLYNT BARN Kæri Póstur. Ég á átta ára dóttur sem mér hefur alla tíð fundist afskaplega fýlugjarnt barn. Okkur mæðgunum hefur af þessum sökum samið frekar illa. Síðan dóttir mín var þriggja mán- aða hef ég unnið úti allan daginn. Stundum hef ég velt því fyrir mér hvort það sé orsök- in fyrir hegðunarvanda hennar eða hvort börn geti á unga aldri hneigsttil þunglyndis. Móðir. Svarið við siðari spurningu þinni er já- kvætt. Yfirleitt verða börn fyrir enn meiri streitu en fullorðnir. Börn eru undir stöðugri pressu af því þau eru sífellt að breyta eðli sinu og náttúrlegri hegðun til að reyna að falla inn I samfélagsmynstur sem þau hvorki skilja né kæra sig um. Með öðrum orðum eru þau að gangast undir hið svokallaða uppeldi. Börn verða einnig að tileinka sér ósköpin öll af þekkingu og færni á stuttum tíma. Mörg börn komast yfir þetta tímaskeið vandræðalaust en önnur verða þunglynd. Barnaþunglyndi birtist sjaldan á sama hátt og hjá fullorðnum. Á bernskuskeiðinu kemur þunglyndi einnig fram á annan veg en hjá fullorðnum. það er líklegt að þung- lyndið birtist sem brek. árásarhneigð eða svefnleysi. Barnið getur orðið ósannsögult og farið að hnupla. Þú minnist ekki á i hvers konar pössun dóttir þín hefur verið á umliðnum árum né við hvers konar heimilisaðstæður þú býrð. Þvi er afskaplega erfitt fyrir Póstinn að ráð- leggja þér eitthvað I þessum efnum. En ef þér finnst stefna í óefni skaltu ekki hika við að leita með dóttur þina til sálfræðings. EPLIÍ MORGUNMAT Hæ, hæ, kæri Póstur. Vandamál mitt er spik. Ég er fjórtán ára, 170 cm og 65 kg. Mig langar að losa mig við 10 kíló. Ég er að hugsa um að borða á hverjum degi eitthvað í líkingu við þetta: Epli í morgunmat. Appelsína klukkan tvö. Banani, epli og jógúrt á kvöldin. Hvað heldur þú að það tæki mig langan tíma að losna við þessi kíló? Er mjólk fit- andi? Ef þetta er ekki rétt fæði, geturðu þá bent mér á megrunarfæði og góða aðferð. Viltu hjálpa mér, ég er alveg ráðalaus. BS. Það er svo sannarlega ekki rétt fæði sem þú hefur hugsað þér að eta I þessari megrun þinni. Einhæft fæði I megrun leiðir til nær- ingarskorts og ekki nóg með~ það heldur leiðirþað á endanum til ógeðs á þeim fæðu- tegundum sem neytt er í óhófi á stuttum tíma. Að ætla sér að grennast mikið á stuttum tíma er röng aðferð við að ná utan af sér holdunum. Þar að auki er ekki hægt að ná afsér nema í mesta lagi einu til tveimur kíló- um á viku. Fyrstu vikuna er að visu hægt að ná af sér fleiri kilóum en það er ekki spik sem fer heldur vatn. Um leið og farið er að borða aftur koma kilóin. Hollur og næringar- ríkur matur ásamt góðri hreyfingu, sundi. skokki eða leikfimi, er besta ráðið. En puls- ur, hamborgarar. ís og önnur sætindi í bland við hreyfingarleysi er öruggt ráð til að halda holdum og bæta utan á sig. Það eina sem Pósturinn getur ráðlagt þér er að borða gróft brauð. egg. magra osta. léttmjólk, undan- rennu. grillað eða soðið kjöt. fisk, kartöflur, mikið af grænmeti og ávöxtum - og fara i leikf/mi, út að skokka eða i sund. Þú spyrð hvort mjólk sé fitandi. Það er afstætt hvort hún er fitandi. Nýmjólk er mjög holl en nokkuð h/taeiningarík en léttmjólk eða undanrenna geta sem best komið í stað- inn fyrir hana. LÆRAPOKAR Kæri Póstur. Ég er fjórtán ára og mig langar að biðja þig um að svara nokkrum spurningum. 1. Hvernig er hægt að losna við poka á lærunum? 2. Er ég of þung ef ég er 1 64 cm á hæð og 51 kíló? 3. Er eitthvað hægt að gera við því ef mað- ur er lítilsháttar kiðfættur? Kæri Póstur, ég vona að þú viljir birta þetta bréf því ég þori ekki að spyrja neinn annan. Ég þakka frábær blöð. Sigga. Lærapokar eru venjulega taldir sjálfskap- arviti og byrja oft að koma i Ijós þegarstúlkur eru á aldrinum 12-14 ára. Orsökin er oft hreyfingarleysi og rangt mataræði. Þú skalt athuga hvort þetta er í lagi hjá þér þvi læra- pokar geta versnað með árunum ef ekkert er að gert. Þú gætir annaðhvort gert æfingar heima eða leitað til líkamsræktarstöðvar og fengið ráðleggingar þar. Það er talað um að mjög gott sé i þessu sambandi að drekka mikið vatn, jafnvel 6-8 glös á sólarhring. Ert þú ekk/ bara ánægð með sjálfa þig og þessa þyngd? En þú skalt ekki vera að þyngj- ast miklu meira ef þú vilt halda þér grannri og spengilegri. Pósturinn veit til þess að fólk hefur reynt að ráða bót á því ef það er k/ðfætt með því að fara í fótaæfingar. Þú skalt endilega tala við heimilislækninn þinn og biðja hann um að benda þér á eða fá fyrir þig tíma hjá ein- hverjum góðum aðilum í þessu sambandi. PENNAVINIR Magdalena Wrzosek ul. Kochanowskiego 50 m. 30 01-864 Warszawa Poland Magdalena er sautján ára og langar til að eignast pennavini á svipuðum aldri. Hún hefur áhuga á tónlist, líffræði, siglingum og dansi. Magdalena skrifar á ensku. Peter Buraczewski ul. Dyminska 9 m. 18 01-51 9 Warszawa Poland Peter er sautján ára. Hann hefur áhuga á islandi, geimvísindum. klassískri tónlist. kvikmyndum, sundi og fleiru. Peter skrifar á ensku og þýsku. 4. TBL VIKAN 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.