Vikan


Vikan - 22.01.1987, Qupperneq 56

Vikan - 22.01.1987, Qupperneq 56
HIH stjör'nuspá A SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA 25.-31. JANÚAR HRÚTURINN 21. mars-20. apríl Þér finnst þú einum of upptekinn og að til þín séu gerðar meiri kröfur en sanngjarnt geti talist. Svo rammt gæti kveðið að þessu að þig langi til að slá öllu upp í kæruleysi. Vænlegri leið virðist að reyna að komast að samkomulagi en fyrirhafnarlaust verðurþaðtæplega. TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní Fyrri hluta vikunnar hvarflar oftar en einu sinni að þér hvort verið sé að koma þér í klípu. Það sem fyrir þig ber er þó tilviljunum háð. Um miðja vikuna haga atvikin því svo að staða þín breytist mjög til hins betra og upp úr því geturðu reiknað með að örlögin verði þér hliðholl. LJÓNIÐ 24. júlí—23. ágúst Á skiptast skin og skúrir og ein- vörðungu undir hugarfari þínu komið hvort þér þykir næsta vika hagstæð eðurei. Heillavænlegt er fyrir þig að láta ekki undir höfuð leggjast að sinna hagnýtum og hversdagslegum málum, einnig þeim sem ekki láta mikið yfir sér. VOGIN24.sept.-23.okt. Þér fínnst framkoma annarra bera vott um skilningsleysi og vanmat á mönnum og málefnum. Trúlega ertu fómarlamb aðstæðna sem þú getur lítil sem engin áhrif haft á. Minnstu þess að verst er fyrir þig sjálfan að taka slíkt of nærri þér og að í viku- lokin opnast nýir möguleikar. BOGMAÐURINN 24. nóv.-21.des. Þú átt von á hugarfarsbreytingu sem verður þér til góðs og skilar sér í léttara skapi og bættum samskiptum við þá sem mestu varðar og komast hjá árekstrum við. Ekki verður þetta þó með öllu fyrirhafnarlaust en málamiðlanir og samningar hvers konar ganga með betra móti. VATNSBERINN21.jan.-19.febr. Þú veist að líkindum nú þegar að þótt góður vilji dragi drjúgt dugar hann ekki alltaf. Hugmyndir þínar og áætlanir eru góðra gjalda verðar en sínum augum lítur hver á silfrið ogekkert við þvi að segja. Þú neyð- ist sennilega til að leggja einhver áform á hilluna í bili. NAUTIÐ 21. apríl—21. maí Þú getur búist við togstreitu og árekstrum. Þú hefur um sinn lagt þig fram um að átta þig á hvað ligg- ur að baki gerðum annarra og sýnt umtalsverða þolinmæði. Nú getur því varla talist ósanngjarnt að þú farir að viðra þínar eigin skoðanir og kanna hvaða hljómgrunn þær fá. KRABBINN 22. júní—23. júlí Fjármálin kunna að reynast venju fremur strembin þessa vikuna og i þeim efnum er eins gott að hafa varann á. Þetta kemur þér sennilega ekki á óvart þar sem það hefur átt sér nokkum aðdraganda og nú er mál til komið að hver geri hreint fyrirsínum dyrum. MEYJAN 24. ágúst-23. sept. Eitthvað verður þess valdandi að þú ferð að hugleiða hvort þú sért á réttri braut og hvort það sem þú leggur mest kapp á sé þér svo mikils virði sem þú hingað til hefur álitið. Það er gott að meta stöðuna en ekki skaltu umsvifalaust kasta því frá þér sem þú hefur lagt mikla vinnu í. SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv. Athygli þín mun mjög beinast að öðrum þessa vikuna og satt að segja sýnist þér fólk ekki ígrunda sérlega vel það sem það segir og gerir. Þetta tengist því að þér finnst að þér vegið og fyllist mjög líklega sjálfsvorkunn. Gættu þess bara að gangast ekki um of upp í hlutverkinu. STEINGEITIN22.des.-20.jan. Mjög reynir á þolinmæði þína þessa vikuna og það svo að þú ættir að einsetja þér að telja upp að tíu áður en þú lætur eftir þér að sleppa því sem þér finnst fólk eiga skilið. Reyndu að sigla sem mest á milli skers og báru, það verður affarasæl- ast til lengri tíma litið. FISKARNIR 20. febr.-20. mars Ekki kemstu hjá því að gera upp hug þinn um þátttöku í starfi eða verkefni sem i aðra röndina freistar þín en þig óar á hinn bóginn við að hella þér út í. Aflaðu þér sem ná- kvæmastra upplýsinga og leggðu sjálfstætt mat á staðreyndir áður en þú tekurákvörðun. Vatnsberar eru yfirleitt umgengnisgott fólk, góðlegt, hæglátt og kurteist. Fróðleiksfýsn einkennir þá enda eru þeir manna forvitnastir, hafa áhuga á öllu milli himins og jarðar og láta sér ekkert óviðkomandi. Þessi eðlislæga forvitni vatnsberans er iðulega túlkuð sem hnýsni, fólki erekki meira en svo um hve áhugasamur hann er um einkahagi annarra en það stafar af fróðleiksfýsn og á ekkert skylt við illgirni. Margir vatns- berar eru þekktir fyrir að neita að taka viðteknar venjur góðar og gildar, þeir vilja sífellt endurmat, hafa gott auga fyrir því sem til framfara horfir og eru ætíð reiðubúnir að betrumbæta það sem flestum kynni að þykja harla gott. Vatnsberinn á það til að brjóta það sem flestir telja grundvallarreglur og hefur þannig lúmskt gaman af að ganga fram af samborgurunum. Hann vill tilheyra hópi, sækir þangað öryggi en er gjarn á að skipta um stöðu innan hópsins, kemur sér jafnvel fyrirvara- laust í allt annan félagsskap. Þessu veldur síferskur áhugi á öðru fólki og þannig eignast vatnsberinn marga kunningja en fáa vini. Hann er þó næmur á tilfinningar annarra ogfáum er betur lagið að létta þeim lífið sem erfitt eiga. Vatnsberanum er þvert um geð að hafa allt rígskorðað, vill halda sem flestu opnu og forðast að taka mjög bindandi ákvarðanir. Það sem hann afræður stendur þó eins og stafur á bók. Hann þolir illa óstundvisi.er hreinskilinn ogafdráttarlaus en treðurekki skoðunum sínum upp á aðra. Sjálfur kýs hann að fara sínar eigin leiðir. Hann er ekki barátlumaður í venjulegum skilningi en lendir oft í erjum vegna þess hve erfitl fólk á með að átta sig þægar hann missir allt í einu áhugann á því sem er á döf- inni og snýr sér að öðru. Vatnsberinn er viðkvæmur fyrir veðri, þolir illa kulda og vosbúð en þarf hreyfingu og hreint loft til að halda góðri heilsu. Hann hefurgott minni, man ólíklegustu hluti ogekki alltaf hagnýta.á sömuleiðisgott með einbeitingu. Honum er illa við að vera upp á aðra kominn og leggur kapp á að hafa silt á þurru. Rétt er rétt gætu verið einkunnarorð hins dæmigerða vatnsbera. 56 VI KAN 4. TBL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.