Vikan


Vikan - 22.01.1987, Síða 62

Vikan - 22.01.1987, Síða 62
Keilir er líklega það fjall á Reykjanesskaga sem allir þekkja. Þessi mynd er tekin frá kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni. Reykjanesfólkvangur - útivistarparadís í Kapelluhrauni. Nú er sól farin að hækka á lofti og daginn tekið að lengja. í fögru vetrarveðri, eins og alltaf kemur af og til, nota margir tækifærið til útivistar. Oft hættir mönnum til að leita langt yfir skammt. Því er eflaust svo farið með marga íbúa höfuðborgar- svæðisins að þeir átta sig ekki á að við bæjardyrnar hafa þeir Reykjanesfólkvang, eitthvert skemmtilegasta útivistar- svæði landsins að margra mati. Reykjanesfólkvangur býður upp á ótal útivistarmöguleika. Þar er skiðaland Reykvíkinga í Bláfjöllum, gróðurvinin Heiðmörk, Kleifarvatn, Krýsuvikin og jarðhitasvæðin, Kapelluhraunið og svo mætti lengi telja. Jarð- fræðilega séð er Reykjanesskaginn yngsti hluti landsins, eldbrunninn og gróðurvana. Eldfjöll eru þar mörg og mismun- andi, flest lág. Hér á síðunni birtum við myndir sem Helgi Ijósmyndari tók á fögrum vetrardegi í Kapelluhrauni. I hrauninu rétt hjá álverinu i Straumsvik var mjög sérstakt eldvarp sem varð eyðileggingunni að bráð þegar álverið var byggt. Myndir: Helgi Friðjónsson Texti: Unnur Ulfarsdóttir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.