Vikan


Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 9

Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 9
NAFN VIKUNNAR: ÁGÚSTA FRÁ REFSSTAÐ • • Orlagarigningin Á Búnaðarþingi því er haldið var fyrir skömmu voru í fyrsta skipti i sögunni konur sem aðalfulltrúar. Þær voru tvær. Önnur þeirra er Ágústa Þorkelsdóttir frá Refsstað. Hún er vel þekkt fyrir störf sín í fjölmiðlum. Margir minnast hennar í þáttunum Borg bernsku minnar og í morgunútvarpinu. Hún hefur einnig skrifað í blöðin um ýmis málefni. Félagsstörfin hafa alltaf verið henni hugleikin og hún er baráttu- maður fyrir hagsmunum bænda: - Ég er fædd og alin upp í vesturbænum og flutti ekki á Austurland fyrr en ég var komin yfir tvítugt. En ég var alltaf mikill dreif- býlingur í mér. Eg var í sveit sem krakki, svo fór ég í Samvinnuskólann og hafði auk þess unnið úti á landi. Svo flutti ég austur á Egils- staði þegar ég var tuttugu og eins árs gömul. Mér fannst alltaf skemmtilegra að vera uppi í sveit. Það vildi þannig til að ég var í sveit hjá systur minni, sem er miklu eldri en ég. Og mér leist strax mjög vel á sveitina. Eg reiknaði þó ekki með þeim möguleika að verða bóndakona, af því ég var ekki sjálf úr sveit. Til þess að geta orðið bóndakona þurfti auðvitað að giftast bónda. Þegar ég flutti á Egilsstaði var það hins vegar ekki á stefnu- skránni hjá mér að ná í bónda. Mér bauðst vinna í kaupfélaginu þar. Þegar mér bauðst þessi vinna og fóstur fyrir soninn hjá systur minni fannst mér það einstakt því ég bjó í vesturbænum og vann í Ármúla og mér fannst erfitt að þurfa að þeytast með strákinn á barnaheimili og sjálf í vinnu. Svo ég ákvað að fara til Egilsstaða. Það var hræðileg rigning þetta haust sem ég fór. Það var einmitt veðrið sem varð ör- lagavaldur í lífi mínu. Ég hafði ráðið mig til eins árs í kaupfélagið og þegar ég stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort ég ætti að fara eða vera á Egilsstöðum þá fannst mér skelfileg tilhugsun að þurfa að fara aftur í þessa rign- ingu í Reykjavík svo ég er enn á Austurlandi. Ég var á Egilsstöðum í fimm ár. Ég skrapp reyndar til Svíþjóðar í sex mánuði. Eg gerði það til þess að prófa hvernig væri að vera alein í útlöndum þar sem enginn er til þess að bjarga manni. Svo kynntist ég eiginmanni mínum, á hér- aðsmóti. Og þegar komið var fram undir haust fannst okkur ótækt að hafa svo langt á milli okkar svo ég flutti til Vopnafjarðar þar sem hann bjó og fór þá að kenna. Ég settist að heima hjá honum og við giftum okkur. Síðan 1971 hef ég verið bóndakona. Ég hef reyndar kennt í grunnskóla annað slag- ið. Ef ég hefði vitað hvað er skemmtilegt að kenna þegar ég var um tvítugt þá hefði ég eflaust farið í Kennaraháskólann. Við hjónin búum félagsbúi með mági mínum og konu hans. Við erum með kýr, kindur og refi. Þetta er sennilega á við tvö vísitölubú, þar sem við erum tvær fjölskyldur. Bóndakonan nýtur einhverrar sérstakrar virðingar hjá mörgum. Það fylgir eitthvað frá gamalli tíð, það er kannski komið frá sveita- rómantíkinni. Ég hef orðið vör við að við erum álitnar sérstaklega stjómsamar og myndarlegar konur. Ég hef tekið meira eftir þessu heldur en virðingu fyrir bændunum. Það er auðvitað misjafnt hvort bændakonur standa undir þessari virðingu. Við erum heimavinnandi húsmæður en við þurfum alltaf að vera á bakvakt. Við erum alltaf og höfum alltaf verið verkstjórar ef bóndinn hverfur af vettvangi.“ Næst víkur talinu að setu Agústu á Búnaðar- þinginu: „Nú eru hundrað og fimmtíu ár síðan fyrstu búnaðarsamtökin voru stofnuð svo það tók þennan tíma fyrir konur að komast inn. Þeg- ar ég var kosin á Búnaðarþing í sumar sem leið, af Búnaðarsambandi Áusturlands, gerð- ist það þann 19. júní, sjötíu og einu ári eftir að konur fengu kosningarétt. Þetta er saga jafnréttiskvenna í félagsmálum. Og kannski er hún ekkert verri en í öðrum málum. Auk þess að vera bóndakona hef ég alltaf stundað félagsstörf og haft gaman af því. Það er væntanlega þess vegna sem ég var kosin sem búnaðarþingsfulltrúi. Auk þess hefur þátttaka mín í fjölmiðlum haft áhrif þar á. Ég býst við að ég haldi áfram að skipta mér af félagsmálum og ég hef mikinn áhuga á að halda áfram að skipta mér af félagsmál- um bænda vegna þess að ég held að bænda- stéttin þurfi á því að halda að þeir sem hafa áhuga taki þátt í baráttunni. Við bændur erum hreinlega í varnarstöðu og það er einmitt mikilvægt að hafa konur í þessari baráttu. Það er viðurkennd staðreynd að það er ekki almennilegur búskapur nema þar sé kona líka, og flestar konur taka þátt í allri ákvarðana- töku á búinu. En það er þar eins og annars staðar að það er talið sjálfsagðara að karla- raddirnar heyrist út á við. Það er nauðsynlegt að það heyrist í konum út á við líka. I raun og veru finnst mér að það eigi að vera jafnt hlutfall karla og kvenna á Búnaðarþingi og líka í Stéttarsambandi bænda. Þar hefur að vísu verið kona í nokkuð mörg ár og fáir tek- ið eftir því. Hún hefur verið ágætur félagi í þeim samtökum. Ég er nú ekki svo bjartsýn að halda að ég lifi það að sjá jafnt hlutfall kvenna og karla á Búnaðarþingi en það hefur verið mjög gam- an að vera með þessum mönnum sem sátu þingið. Ég hef auðvitað oft lent í því í gegnum mín félagsstörf að vera ein í stórum hópi karla. Ég man ekki eftir að hafa verið á svona karlasamkomu þar sem ég hef ekki orðið vör við neinn karlrembutón. Ég hef setið meira á mér eftir því sem ég hef elst, ekki viljað tefja fundarstörf og annað til þess að koma með athugasemdir, þar sem það hefur ekki svo mikið að segja. En ég minnist þess ekki að þessir menn á Búnaðarþinginu hafi talað framhjá mér, yfir mig eða sniðgengið mig í einu eða neinu. Ég held að bændur hafi verið famir að skammast sín fyrir að hafa ekki konur á þinginu. Og þeir eru, eins og ég sagði, vanir þvi að konan hafi töluvert að segja og það eigi að taka mark á henni. Mér fannst þeir koma fram við okkur á þessu þingi eins vel og gerist á bestu bæjum. Ég er ánægð með veru mína á þinginu. Mér hefur fundist mjög gaman að vinna í þessari allsherjamefnd sem ég lenti í. Ég hef fengið fjölbreytt mál til að fást við og fræðst heil ósköp. Hins vegar finnst mér sniðið á þinginu vera of þunglamalegt. Allt starf fer fram í nefndum. Mér finnst þetta svolítið stirt og það hvarflar að manni sú hugsun hvort ekki væri hægt að ná meiri árangri með öðmvísi sniði. Þetta ber mikinn keim af Alþingi. Ástæðan er auðvitað sú að margir sem sátu á þessu þingi voru þingmenn á Alþingi líka. Mér fmnst allt í lagi að breyta þessu. nú þeg- ar við erum á leið inn í tuttugustu og fyrstu öldina. En það virðist vera rikt í bændum að halda í ýmsar hefðir. Það er alltaf ákveðin íhaldssemi sem rikir hjá bændum. Það er ekki fyrr en virkilega bjátar á sem þeir geta orðið byjtingarafl. Þeireru seinþreyttir til vandræða. Ég held ég lifi það að sjá breytingar á sniði bændaþingsins. Mér fínnst ég vera of mikill græningi í bili til þess að fara að gera ein- hverjar breytingartillögur á kerfi sem ég þekki kannski ekki alveg til hlítar. En mér þykir lík- legt, ef ég staðna ekki algjörlega, að ég muni á hverju ári hugsa um leið til breytinga. Viðtal: Hlynur Örn Þórisson Mynd: Valdís Óskarsdóttir 11 TBL VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.