Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 28
Það hefur_ venð sívaxandi áhugi fyrir skíða-
mennsku á íslandi í nokkuð mörg ár. Mestra
vinsælda hafa svigskíðin notið þótt gönguskíði séu
líka að vinna sér sess.
Hin síðari ár hefur það gerst að margir íslend-
ingar leita út fyrir landsteinana til að stunda
skíðaíþróttina.
Það er misjafnt hvenær áhuginn vaknar. Skiða-
ferðalög eru fastur liður í skólum landsins en
algengt að þeir sem á annað borð stunda skíði
hafi komist í kynni við þau áður en þeir fara í
slíkar ferðir. Sumir virðast fæddir með skíðabakt-
eriuna í blóðinu en aðrir eru ónæmir.
Margir hafa unun af því að bruna niður snar-
brattar brekkur milli þess sem þeir bíða í löngum
biðröðum eftir að komast í lyftu. Aðrir hafa ekki
þolinmæði til þess að standa lengi í biðröð bara
til þess að renna sér svo niður brekku, sem oftast
tekur mun skemmri tíma.
Svig og ganga á skíðum eru afskaplega misjafn-
ar íþróttir. Þar reynir á svo mismunandi eiginleika
að sá sem er meistari á svigskíðum hefur enga
forsendu til að verða flinkur á gönguskíðum og
öfugt.
En það er ekki síður andinn sem fylgir skíðaiðk-
uninni en iðkunin sjálf sem er mikið atriði hjá
sumum. Það er sérstakt andrúmsleft sem fylgir
því' að fara á skíði. Margir hafa unun af þvi að
taka til skíðaklossana, skíðin, stafina, gallann og
svo framvegis. Menn pakka niður í bakpoka,
fleygja svo öllu draslinu upp á toppinn á bílnum
eða slengja því á öxlina og rölta af stað til að
taka rútu.
En eins og áður segir er það orðið afskaplega
vinsælt að bregða sér til útlanda til þess að fara
á skíði. Þar er sjálfsagt mikill áhrifavaldur hinn
áðumefndi andi. Það er sérstök tilfinning sem
fylgir þvi umhverfi sem ferðamönnum er boðið
upp á. Þar em allar aðstæður til skíðaiðkana að
sjálfsögðu hinar ákjósanlegustu og gildir það í
mörgum tilvikum jafnt fyrir byrjendur sem vana.
En það er ekki síður stemmning sem fylgir þvi
að setjast niður eftir skemmtilegan skíðadag og
fá sér að éta og drekka í góðu umhveríi, labba
um sölusvæðin eða slappa af á hótelinu.
íslendingum hefur líkað rnjög vel að vera í
austurrísku Ölpunum og hefur aðsókn þangað
verið mjög mikil. Þótt færri hafi farið í frönsku
Alpana hafa samt sem áður margir lagt leið sína
þangað.
A þeim stöðum, sem mikið hafa verið sóttir,
hefur verið áberandi hversu misjöfn geta þeirra
sem stunda svæðin er. í skíðabrekkunum má sjá
byijendur á öllum aldri því sagt er að aldrei sé
of seint að læra á skíðum. Skíðakennsla er mjög
auðfengin og viðast hvar góð. Sums staðar er
hægt að læra allt frá skíðafimi (trick skiing), sem
er eins konar listhlaup á skíðum og krefst mikillar
fimi, til þess að renna sér á skíðum í lausamjöll.
Vinsælt hefur verið að fara til Mayrhofen í
Tíról. Tíról er þekkt fyrir náttúrufegurð og þang-
að fara margir til þess að eyða vetrdrfríi. Það er
mjög vinsælt að fara í febrúar. Þá er farið að
hlýna en snjórinn er samt sem áður ekki orðinn
slæmur.
Skiðasvæðin í Zillertal (Mayrhofen), sem er fræg
skiðamiðstöð, eru einmitt góð fyrir fólk á misjöfn-
...
mm
%