Vikan


Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 36

Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 36
„Ef listamaður á að gera virkilega góða hluti og skapa listaverk er frumskilyrði að hann hafi aðstöðuna til þess.“ vinnu. Kjartan gaf okkur mjög frjálsar hendur við að nýta okkur rýmið, þá hluti, sem fyrir voru á staðnum, og þreifa fyrir okkur með persónusköpun. Ýmsir hlutir í sýningunni eru látnir gegna allt öðru hlutverki en þeir eru gerðir fyrir; stigi er til dæmis notaður sem flug- vél. Þetta hefur mér alltaf fundist spennandi við leiklistina. Og leiklistin er kannski ein af fáum listgreinum sem bjóða upp á að nota hluti abstrakt en samt þannig að fólk trúi á þá, eins og til dæmis í sýningunni Miðjarðar- förinni sem við vorum með í Nemendaleik- húsinu. Þar var ein steypuhrærivél á sviðinu og hún var notuð sem bar, hárþurrka, þvotta- vél og hvað sem var. En þetta frelsi í Djöflaeyj- unni til að brjóta upp hefðbundnar leiðir var mjög skemmtilegt. Það er viss ögrun að fást við hluti sem maður veit ekki hvort maður ræður við eða hvert leiða mann. Ég er ein- hvern veginn þannig gerður að um leið og ég er búinn að ná valdi á einhverju þá fer ég að eyðileggja það. Ef ég næ til dæmis að syngja lag alveg pottþétt fer ég fljótlega að reyna að syngja það öðruvísi, og kannski verr, af því ég er orðinn leiður á að syngja það hinsegin. En það var mjög skemmtilegt að vinna Danna. Ég prófaði ýmsar leiðir og var á tíma- bili kominn langt frá honum en þá stoppaði Kjartan mig auðvitað af. Það er mjög hollt að prófa ólíkar leiðir áður en maður kemst í endanlegt mark. Þó er maður aldrei fullkom- lega ánægður með sig. Það sem mér gremst samt kannski mest í sambandi við frumsýn- ingar er að geta þá ekki haldið áfram að móta persónuna. Auðvitað heldur maður áfram að slípa hana til og dýpka meðan sýn- ingar ganga en prófar ekkert nýtt að ráði. Ég las bækurnar fyrst eftir að mér bauðst hlutverkið og þótti strax ógurlega vænt um Danna en um leið fékk ég mjög ákveðna og sterka mynd af honum - sem reyndar er hluti af mér. Hérna á táningsárunum, þegar maður var eitthvað sálarlega þungt haldinn, sat ég oft við gluggann heima í stofu með kíki og ,,Ég hafði bara aldrei lyst á þeirri deildinni. Helv. . . slorið fór eitthvað í taugarnar á mér svo ég einbeitti mér bara að fágaðri störfum. . . “ horfði á mávana fljúga yfir sjónum. Svona gat ég setið tímum og jafnvel dögum saman. Síðan hefur mig alltaf langað til að fljúga, eins og Danna reyndar líka, en þó helst á eig- in vængjum. Þannig upplifði ég strax svolítið af sjálfum mér í Danna. Hann er mjög þung- lyndur og inn í sig en er haldinn mikilli sköpunarþrá og miklum innri krafti sem hann nær ekki að fá útrás fyrir. Það var spennandi að æfa þetta hlutverk og ég held ég hafi gefið af mér ýmislegt sem ég hef ekki viljað viður- kenna fyrir öðrum að byggi í mér en það er auðvitað mjög gott að geta miðlað því sanna frá sjálfum sér. Það var reyndar svolítið sér- kennilegt að fyrir fyrsta samlestur á leikritinu fór ég inn í bókabúð til að kaupa mér stíla- bók. Helst vildi ég bláa og sú fyrsta sem ég tók upp var með mynd framan á af húsi með vængjum - og ekki aðeins það því aftan á bókinni var tilvitnun, á þýsku reyndar, og hljóðar þannig: Ef ég ætti þrjár óskir þá ósk- aði ég mér frelsis, einskis og þess að geta flogið, þó ekki væri nema einu sinni. Þetta ver nánast eins og þemasetning Danna í leik- ritinu. Ég hálfhrökk við af þessari tilviljun - eða hvað átti að kalla þetta... ?“ Það kemur glettnislegt blik í bláu augun og svo segir hann snögglega að raunar trúi hann heilmikið á svona hluti og eiginlega sé hann forlagatrúar. „Ég hef til dærnis aldrei gert mér neinar ____________________________I 36 VIKAN 13. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.