Vikan


Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 25

Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 25
Séö inn fjörðinn. Húsin lúra notalega utan i brekkunni. Á veitingastaðnum Fiðlaranum hangir þetta pianó í loftinu, ásamt fiðlum, flautum, trompet- um og fleiri tegundum hljóðfæra. Það var Bjarni Hafþór Helgason, sá er samdi Reykjavik- urlagið, sem átti hugmyndina að nafni staðar- ins. Viöa um bæinn má sjá söngleikinn Kabarett auglýstan. Heyrðu, taktu mynd af okkur, kölluðu þesslr strákar sem voru i sundlauginni. Meðfram Eyjafirði rísa tiltölulega há fjöll, 1000-1500 metrar á hæð. Mörg þessara fjalla eru til að sjá eggslétt að ofan og eru leifar hásléttu sem dalir og firðir hafa síð- an grafist í. Helstu bergtegundir eru basalt og líparít. Dökkt basaltið, einkennisberg ís- lands, myndar skarpa umgjörð um fjörðinn en líparítið sker sig úr, ljósbleikt. Við austan- verðan fjörðinn eru fjöllin nokkru lægri, lægst er Vaðlaheiði, um 500 metrar á hæð. Lengd fjarðarins, bergtegundir og hæð fjallahringsins ráða miklu um veðurfarið. En Eyfirðingar guma oft af því að hvergi á ís- landi sé jafnmikil veðursæld og þar. Ráðandi vindáttir eru sunnan- og norðanátt. Áhrif fjallgarðanna og lengd fjarðarins stuðla einna mest að því að staðviðri og jafnviðri er meira í Eyjafirði en víðast hvar annars staðar á landinu. Akureyri hefur breyst mikið á undanförn- um árum þó svo margt af því sem áður undirstrikaði sérstöðu bæjarins sé enn í fullu gildi. Akureyringar segjast halda stíft í þá þjóðsögu að taka utanbæjarmönnum illa, taka þá ekki inn í samfélagið fyrr en þeir hafa sannað kosti sína ótvírætt. Að vísu glotta þeir gjarnan við tönn þegar þetta berst í tal. Einn innfæddur sagði mér raunar að þeir hefðu á undanförnum árum verið svo harðir að þeir hefðu rekið úr bænum alla þá Akur- eyringa sem þeim hefðu ekki þótt nógu sicemmtilegir, hefðu flutt þá suður. Viðurnefni hafa lengi verið vinsæl á Akur- eyri og það hefur loðað við að enginn væri maður með mönnum nema hann hefði eitt- hvert viðurnefni, síðan eru menn uppnefndir eftir því hvar þeir búa í bænum, þeir sem búa á eyrinni eru kallaðir eyrarpúkar, þeir sem búa í brekkunni brekkusniglar og þorparar búa, eins og nafnið gefur til kynna, í Glerár- þorpi. r AAkureyri eru mörg sögufræg hús sem vert er að gefa gaum. Má þar nefna Lax- dalshús, Davíðshús, Nonnahús og í innbænum minna nöfn eins og Schiöthshús, Höepfners- og Tuliniushús á dönsku yfirstétt- ina sem forðum mótaði bæjarlífið. Út frá byggingarsögulegu sjónarmiði er gaman að skreppa i gönguferð um bæinn, byrja á því að fara inn í fjöru og líta á smá timburhús í dönskum stíl sem settu mikinn svip á bæinn undir síðustu aldamót, nokkur þeirra standa enn og er Nonnahús eitt þeirra. Upp úr alda- mótum hófst tímabil norsks byggingarstíls, hús Matthíasar Jochumssonar, Sigurhæðir, og Menntaskólahúsið eru gildir fulltrúar þessa stíls. Upp úr 1920 verður enn ein sveiflan í byggingarstílnum þegar steinsteypan verður aðalbyggingarefnið. Þá eru byggð í brekkunni á Akureyri allmörg hús í eins konar nýklass- ískum stíl, þar sem með steinsteypu er líkt eftir byggingum úr tilhöggnum steini. Svona er hægt að feta sig áfram í byggingarsögunni 13. TBL VIKAN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.