Vikan - 26.03.1987, Qupperneq 14
STJÖRNUSPA
Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
29. MARS—4. APRÍL
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Þú skalt vera undir það búinn að
vera á ferð og flugi í næstu viku og
ólíklegt að mikið verði um rólegar
stundir. Ekki skaltu treysta því að
háttemi þitt veki óblandinn fögnuð
enda telja vafalaust einhverjir tíma
þínum betur varið öðruvísi. Láttu
hverjum degi nægja sína þjáningu.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Þú þykist sennilega hafa lært af
reynslunni að betra sé að hafa vaðið
fyrir neðan sig í peningamálunum.
Að því kemur þó fyrr eða síðar að
þú neyðist til að taka áhættu. Þér
ætti líka að vera óhætt að slaka
nokkuð til varðandi þær kröfur sem
þú hefur gert að undanfömu.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Meira los virðist vera í kringum þig
en þér líkar. Ekki skaltu láta núver-
andi ástand þjaka þig heldur gripa
upplagt tækifæri til að koma reglu á
hiutina. Þegar lausir endar hafa ver-
ið hnýttir og þú getur farið að slaka
á máttu búast við að verða tiltölu-
lega sáttur við sjálfan þig.
NAUTIÐ 21. apríL21. maí
Enginn getur vænst þess að fá ætíð
sitt fram. Nú verður þú að fara að
óskum annarra, það virðist óhjá-
kvæmlegt. Ekki er þó leikurinn til
þess gerður að þú þurfir að lúta í
Íægra haldi, málin æxlast einfaldlega
stundum þannig að ekki er nema ein
leið fær. Taktu þessu með stillingu.
KRABBINN 22. júní—23. júlí
Láttu þína eigin heilbrigðu skynsemi
vísa þér veginn. Sitthvað nýstárlegt
er á döfinni og ófært að láta það
framhjá sér fara af eintómum rolu-
skap. Veldu það sem hugurinn
stendur til og sýndu þann manndóm
að standa við valið þótt ekki verði
um eintóman dans á rósum að ræða.
MEYJAN 24. ágúst—23. sept.
Ekki verður endalaust undan því
vikist að horfast í augu við stað-
reyndir. Ekki stinga höfðinu í
sandinn þótt sú aðferð sé mun þægi-
legri. Þú mátt til með að gera þér
grein fyrir hvernig þú ert og hvernig
þú vilt vera og reyna síðan að gera
það besta úr þessu tvennu.
VOGIN24.sept.-23.okt.
Varastu sjálfsmeðaumkun. Hún ger-
ir þér ekkert gott og gæti þar að
auki orðið til þess að fólk sniðgengi
þig og þú misstir þar með af ýmsu
sem þú vildir síður vera án. Það er
ósiður, sem þú ættir að leggja af hið
snarasta, að kenna öðrum í sífellu
um hvaðeina sem aflaga fer hjá þér.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Þú hefur ákveðnar hugmyndir um
hvemig bæta megi andrúmsloftið í
kringum þig. Hvort sem þú hefur
nú þegar hafist handa við að sanna
þessar kenningar eða ert í starthol-
unum máttu vita að þér verður
töluvert ágengt og sannarlega betur
af stað farið en heima setið.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Það er að renna upp fyrir þér að
ýmsir af kunningjunum eru ekki
verðir vináttu þinnar. Nú stendur
fyrir dymm að velja og hafna og
varla við því að búast að það gangi
sársaukalaust fyrir sig. Vertu við því
búinn að kanna ókunna stigu áður
en þú kemst á áfangastað.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Þú átt von á ýmsu skemmtilegu,
jafnvel ævintýralegu. Engu að síður
þarftu að gera þér glögga grein fyrir
hvað þú vilt í raun og veru, ella get-
urðu lent í einhverju sem þú sérð
eftir seinna. Slíkir bakþankar gætu
reynst þér erfiðir og þvi um að gera
að reyna að forðast að til slíks komi.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Viðburðir næstu viku verða líklega
til þess að þú takir sitthvað til endur-
skoðunar. Á það einkum við um
fjölskyldumálin og vera má að þú
gerir þér grein fyrir að ekki kemur
allt af sjálfu sér. Þótt þú leggir ef til
vill ekki sérlega hart að þér sleppa
ekki allir svo vel.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Nú skaltu safna í sarpinn. Þér gefst
færi á að hagræða fyrir þér með til-
liti til framtíðarinnar og það væri
óðs manns æði að láta slíkt happ
úr hendi sleppa. Ennfremur geturðu
átt von á að gamall kunningi birtist
og sameiginlegar minningar verði
ykkur til óblandinnar ánægju.
Aprílmánuður gengur í garð í næstu viku. Því er ekki úr vegi
að skyggnast örlítið fram á við og athuga hvað líklegt er að
drífi á daga hrúta núna með vorinu. Fremur er ólíklegt að
allt gangi sinn vanagang og varla við því að búast að hver
hlutur verði á sínum stað á næstunni. Ekki þarf það þó að
vera af hinu illa heldur er mjög undir því komið hvernig hver
og einn bregst við hvað úr verður. Hrútarnir þurfa að treysta
sem mest á mátt sinn og megin og varast að ætla öðrum að
taka á sig þær byrðar sem þeim eru ætlaðar. Þetta fellur þeim
sennilega ágætlega og njóta sín því vel. Ekki skyldu menn þó
ganga of langt í því að ráðskast með málefni annarra því að
affarasælast virðist að hver sjái um sitt. Mikilvægt er að meta
staðreyndir af raunsæi, ætla sér ekki of en hika ekki sýnist
aðgerða þörf. Hrútar kunna að þurfa að færa fórnir,jafnvel
að sjá af einhverju sem þeim er óljúft að missa en standi þeir
að sínu með þeirri reisn og djörfung sem þeim er eiginleg fá
þeir margfalt endurgjald er fram líða stundir. í maí má reikna
með árekstrum þar sem þeirra er síst að vænta og koma þeir
til með að undirstrika enn frekar að hver er sinnar gæfu smið-
ur. Nauðsynlegt getur verið að ganga hart eftir að loforð séu
efnd ef allt á að fara sem til stendur. Hrútar harðna af átök-
um og koma sterkari út úr þeirri viðureign sem fram undan
virðist vera. Sýni þeir sanngirni og gleymi ekki að taka tillit
til eigin breyskleika og annarra munu þeir ráða við þetta.
Trúlega hlotnast þeim þrátt fyrir allt álitsauki með vorinu og
hann munu þeir svo sannarlega kunna að meta. Þið vitið vel
hvað ykkur er fyrir bestu, hrútar. Sýnið nú sjálfum ykkur og
öðrum hvað í ykkur býr og ykkur mun vel farnast.
14 VIKAN 13. TBL