Vikan - 26.03.1987, Page 23
Myndbönd
Eitt vinsælasta leikrit, sem sett
hefur verið hér upp á síðari árum,
er vafalaust Litla hryllingsbúðin
sem Hitt leikhúsið sýndi í Is-
lensku óperunni við mikla hrifn-
ingu. Nú geta þeir sem hrifust
hlakkað til því búið er að kvik-
mynda leikritið og þykir hafa vel
tekist til.
Má segja að verkið sé nú kom-
ið í hring því leikritið var skrifað
upp úr handriti frekar ómerki-
legrar kvikmyndar sem kannski
er helst fræg fyrir að í henni lék
aðalhlutverkið leikari sem þá var
óþekktur, Jack Nicholson. Litla
hryllingsbúðin, eða Little Shop
of Horrors, eins og myndin heit-
ir á frummálinu, fjallar, eins og
flestir vita, um ungan mann sem
eignast blóm eitt, sakleysislegt í
byijun en sem vex ört og verður
ófreskja hin mesta.
Efnið er sett fram í farsa með
lögum sem flestir ættu að vera
famir að þekkja. Sú persóna, sem
vakti hvað mesta athygli hér, var
Tannsi, hlutverk sem Þórhallur
Sigurðsson skilaði af sinni al-
kunnu snilld. Ekki er minni
maður sem fer með þetta hlut-
verk í kvikmyndaútgáfunni eða
Steve Martin, einhver vinsælasti
gamanleikari vestanhafs. í enskri
útgáfu heitir Tannsi Doctor Scri-
vello. Þykir Martin fara á kostum
í hlutverkinu og atriðin, sem
hann kemur fram í, eru talin þau
bestu í myndinni. Annars em
aðalhlutverkin í höndum Ricks
Moranis og Ellenar Green og að
sjálfsögðu Audrey II en svo nefn-
ist plantan góða. Þá leikur Bill
Murray eitt aukahlutverkið. Af
þessu má sjá að Litla hryllings-
búðin er vel mönnuð. Bíóhöllin
mun mjög bráðlega taka Litlu
hryllingsbúðina til sýningar.
\AARNER HOME VIDEO
AFTER HOURS ★★★
Leikstjóri: Martin Scorsese.
Aðalleikarar: Griffin Dunne, Rosanna Arquette og Teri Garr.
Sýningartími: 93 min. - Útgefandi: Tefli hf.
Martin Scorsese hefur ekki oft reynt sig við gamanmyndir, enda eru þekkt-
ustu verk hans dramatískar myndir eins og Taxi Driver og Raging Bull.
After Hours er að vísu ekki hans fyrsta gamanmynd. Fyrir tveimur árum
gerði hann King of Comedy sem þrátt fyrir góða spretti var ekkert sér-
stök. Með After Hours hefur honum tekist að gera góða gamanmynd sem
byggist á gálgahúmor. Fjallar myndin um ungan mann sem eftirvæntingar-
fullur fer á stefnumót við unga stúlku í Soho í New Y ork. Allt fer þó
öðruvísi en ætlað var. Hann er varla lagður af stað þegar óhöppin byrja
og mestalla nóttina er hann að reyna að komast heim, en honum gengur
vægast sagt illa að komast út úr hverfmu. After Hours er svört kómedía,
mynd sem er grátbrosleg vegna þess að það sem aumingja maðurinn þarf
að ganga í gegnum er ekkert grín.
HLEKKURINN (LINK) ★ ★
Leikstjóri: Richard Franklin.
Aðalhlutverk: Elisabeth Shue og Terence Stamp.
Sýningartími: 96 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Að dómi flestra fræðimanna ganga apar næstir manninum að vitsmun-
um. Hlekkurinn fjallar um apann Link sem er meiri gáfum gæddur en
apar almennt. Eigandinn, sem er prófessor, telur meira að segja að það
eina sem Link hafi misst af sé sá menningargrundvöllur sem maðurinn á
að baki. í símtali segist prófessorinn þurfa að losa sig við Link sem sé orð-
inn gamall. Þetta heyrir Link og nú fara dularfullir atburðir að gerast. Ung
aðstoðarstúlka prófessorsins vaknar einn morguninn við að prófessorinn
er horfinn. Þrátt fyrir leit finnur hún hann ekki. Smám saman rennur upp
fyrir henni að Link er hættur að fara eftir skipunum... Hlekkurinn er ágæt
spennumynd, þar sem persónur eru fáar. Þess meiri áhersla er lögð á apana
og er ótrúlegt hversu vel hefur tekist að láta apana leika. Það liggur við
að Link geti leikið með augnaráðinu einu saman.
DESIRE INFATUATION OBSESSION
9 Vi WEEKS ★★
Leikstjóri: Adrian Lyne.
Aóalleikarar: Mickey Rourke og Kim Basinger.
Sýningartími: 90 mín. - Útgefandi: Steinar hf.
9 'A Weeks varein umtalaðasta og umdeildasta kvikmynd á síðasta ári.
Þótti mörgum sem þarna væri á ferðinni klámmynd í finum umbúðum. 9 'A
Weeks fjallar um tvo einstaklinga, konu og karlmann. Hún er fráskilinn
listaverkasali, hann er kaupsýslumaður í Wall Street. Fljótlega verður hún
fangi hugaróra hans sem varla geta talist heilbrigðir. Kemur þetta illa við
sálarlíf hennar. Réttileg finnst henni hún vera niðurlægð en ræður ekki við
sig. í raun er ósköp fátt sem gleður augað. Leikur þeirra Mickey Rourke
og Kim Basinger er samstilltur. í heild er myndin innantóm þótt reynt sé
að skýra sálarástand aðalpersónanna. Eitt atriði er virkilega gott, það er
þegar opnuð er málverkasýning aldraðs en virts listmálara. Við að horfast
í augu við hann finnur hún fyrir þeirri miklu niðurlægingu sem hún hefur
orðið að þola. í heild er 9 'A Weeks langdregin mynd sem skilur lítið eftir.
LITTLE FAUSS AND BIG HALSEY ★
Leikstjóri: Sidney J. Furie.
Aðalleikarar: Robert Redford, Michael J. Pollard og Laureen Hutton.
Sýningartími: 99 min. - Útgefandi: Háskólabió.
Sumar myndir eldast verr en aðrar og Little Fauss and Big Halsey, sem
gerð er 1970, hefur elst illa. Það sem áður var ágæt afþreyingarmynd er
nú aðeins svipur hjá sjón. Myndin er gerð þegar hippatímabilið var í algleym-
ingi og flottast þótti að vera svalur og kærulaus. Robert Redford leikur
Halsey, dæmigerðan töffara sem er sama um allt nema sjálfan sig og mótor-
hjólið sitt. Meira að segja vinskap við hin geðgóða Fauss, sem Michael J.
Pollard leikur, fórnar hann vegna eigin skinns. Og ekki fer ung flækings-
stúlka betur út úr viðskiptum sínum við hann. Umgjörð myndarinnar er
mótorhjólakappakstur um gervöll Bandaríkin en meginþema frjálst líf og
að best sé að vera óháður öllum. Robert Redford, ungur að árum, er ágætur
í hlutverki hins sjálfumglaða Halseys. Michael J. Pollard er aftur á móti
aumkunarverður enda varð leikferill hans ekki langur á toppnum.
13 TBL VIKAN 23