Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 26
Akureyri
Ekki var margt um manninn í göngugötunni árla á laugardagsmorgni. En á virkum dögum er þar aú öllu jöfnu margt um manninn, sérstak
lega síðdegis á föstudögum.
því bærinn er talandi dæmi um mismunandi
stíl og mismunandi byggingartíma.
Akureyrarkirkja er eins konar tákn bæjar-
ins. Hún var byggð í upphafi síðari heimsstyrj-
aldarinnar og vígð árið 1940. Það sama ár
hófu Þjóðverjar loftárásir á ensku borgina
Coventry í Englandi. Dómkirkja borgarinnar
var að mestu lögð í rúst en steindum gluggum
kirkjunnar hafði verið komið undan. Þrír
þessara glugga voru keyptir á fornsölu í Eng-
landi og fluttir til íslands. Einn þeirra var
gefinn Akureyrarkirkju. Síðar voru gerðir
fleiri gluggar í sama stíl.
Á Minjasafni Akureyrar er mikið af alls
kyns munum sem varpa ljósi á verkmenningu
og atvinnusögu liðinna ára. í bænum er einn-
ig náttúrugripasafn sem gaman er að bregða
sér á.
r
AAkureyri hefur á undanförnum árum ris-
ið mikið Ijölmiðlaveldi. Þar er DV með
útibú, Morgunblaðið sömuleiðis. Þar er
gefið út eina landsbyggðardagblaðið, Dagur,
og í hann er sjálfsagt að kíkja til að sjá hvað
er að gerast í bænum og nágrenni hans. Sömu-
leiðis er ágætt að kveikja á svæðisútvarpi
Akureyrar og nágrennis þegar fólk fær sér
eftirmiðdagshvíldina og fá fréttir. Talandi um
fjölmiðla er heldur ekki úr vegi að skoða
dagskrá Eyfnska sjónvarpsfélagsins.
Akureyringar hafa á undanförnum árum
byggt upp góða aðstöðu fyrir ferðamenn.
Þar eru starfandi tvær bílaleigur, Bila-
leiga Akureyrar og Bílaleigan Örn. Báðar
hafa á sínum snærum margar tegundir bíla,
stórra jafnt sem smárra, en áður en haldið
er norður er sjálfsagt að hringja á flugvöllinn
og tryggja sér bíl. Þá er ekki annað að gera
er. halda í bæinn. Á Akureyri eru fjögur hót-
el. Skal þar fyrst nefnt Hótel K.EÁ sem er í
hjarta bæjarins, Hafnarstræti, afskaplega
huggulegt enda nýuppgert. í Hafnarstræti er
og Hótel Stefanía, hlýlegt hótel sem býður
af sér góðan þokka. Hótel Akureyri er í
göngugötu þeirra Akureyringa, eitt sinn hét
nú göngugatan raunar Hafnarstræti en eftir
að hluta þess var breytt í göngugötu varð
mönnum tamara að kalla þennan hluta Hafn-
arstrætisins Göngugötu með stórum staf.
Hótel Akureyri er í gömlu húsi sem smám
saman er verið að endurnýja. Að lokum má
minnast á Hótel Varðborg, sem templara-
hreyfmgin á og rekur í Geislagötu 7, steinsnar
frá Sjallanum.
Göngugatan er helsta verslunargata bæjar-
ins og þar er oft mikið líf og fjör, sérstaklega
síðdegis á föstudögum. Þá er líka gaman að
rölta niður á Ráðhústorg og skoða umferðina
í kringum torgið. Hún er sérstök að því leyti
að þar stoppa menn og rabba saman í gegnum
bílgluggana án þess að nokkur sé að æsa sig.
Slíkt tilheyrir ekki á Akureyri.
Matsölustaðir á Akureyri eru nokkrir og
bjóða upp á fjölbreyttan mat í öllum
verðflokkum. Þeir sem vilja borða með
glæsibrag eiga um þrjá staði að velja, Smiðj-
una, Kaupvangsstræti 3, Fiðlarann sem er á
fimmtu hæð í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 15,
og matsal KEA hótelsins. Að hinum tveimur
stöðunum ólöstuðum er Fiðlarinn skemmti-
legastur því þaðan er útsýnið yfir bæinn með
ólíkindum fagurt. Á Hótel Akureyri er á
matmálstímum hægt að velja um fjóra hrað-
rétti. Kaffiteria Hótel KEA, Stuðlaberg, og
Bautinn hafa á boðstólum allan algengan
grillmat, salatbar, súpur og ýmsa hraðrétti.
Síðan er um einn kjúklingabitastað að ræða
og nokkrar sjoppur sem selja hamborgara,
franskar og pylsur en þess skal getið sérstak-
lega að ein með öllu á Akureyri er með
kokkteilsósu auk alls annars.
26 VIKAN 13. TBL