Vikan


Vikan - 26.03.1987, Page 30

Vikan - 26.03.1987, Page 30
Irska hljómsveitin U2 hefur ótvíræða sérstöðu í tónlistar- heiminum um þessar mundir. Hún er ein sú vinsælasta og um leið sú virtasta. Hún hafði ekki gefið út plötu síðan árið 1984 en nú um miðjan mars kom út sjötta breiðskifa sveitarinnar og hennar hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Paul Hewson var ungur dreng- ur. Faðir hans var húsamálari en móðir hans dó þegar hann var ungur að árum. Hann sinnti nám- inu lítið en aðaláhugamál hans var skák! Hann tók upp á mörgu undarlegu á þessum árum, þar á meðai tóku hann og nokkrir vinir hans upp á því að búa sér til ímyndaðan stað sem þeir kölluðu Lypton Village. Það var í tengsl- um við þetta sem þeir gáfu hver öðrum ný nöfn. Paul Hewson fékk nafnið Bono Vox, sem útleggst víst góð rödd, vinur hans, Dave Evans, fékk nafnið The Edge, Richard bróðir Daves var kallað- ur Dik og ýmis fleiri nöfn komu upp. Hljómsveit var einungis draum- ur hjá þeim þar til ungur og feiminn trommari, sem hafði verið í hljómsveit sem kallaðist The Artane Boys band, setti upp aug- lýsingu í skólanum sem Bono og vinir hans voru í. Þar óskaði hann eftir einhverjum til að vera með sér í hljómsveit. Þeir sem gengu til liðs við hann voru Bono, The Edge, Dik og strákur sem hét Neil McCormick. Dik og Neil hættu fljótlega og sá sem kom í staðinn nefndist Adam Clayton en hann hafði verið í hljómsveit sem kallaðist Max Quad band. A þessum dögum kölluðu þeir sig fyrst The Hype (dópistinn) en þeir skiptu um nafn til að forðast fordóma og ranghugmyndir. í stuttan tíma kölluðu þeir sig Feedback Það varsvo náunga sem heitir Steve Rapid - þeim hinum sama og hannar umslögin á breiðskífum þeirra - sem datt í hug nafnið U2. Þeir tóku þátt í tónlistarsam- keppni sem Guinness fyrirtækið stóð fyrir og sigruðu. Launin þar voru fimm hundruð pund og reynslutaka hjá CBS fyrirtækinu. Hún heppnaðist ekki nógu vel en fljótlega gáfu þeir þó út fyrstu smáskífu sína, Out of Control. Hún kom út á írlandi ogfórá toppinn þar. Lagið Another Day fylgdi svo á eftir og þeir voru orðnir nokkuð vinsælir í heima- landi sínu. Sögur af þessari írsku rokksveit bárust fljótt til Bretlands og ekki löngu seinna hélt hún sína fyrstu tónleika í London, áhorfendur voru níu. í apríl I980skrifuðuþeirfélag- ar undir hljómplötusamning við Island útgáfufyrirtækið. Ekki löngu seinna kom út fyrsta breið- skífan þeirra sem nefndist Boy. Bæði gagnrýnendur og almenn- ingur tóku plötunni vel. U2 var að verða nokkuð þekkt nafn. Helsta gagnrýnin, sem félagarnir fengu, var að þeir skyldu vera svona venjulegir. Bono segir að þeir komi bara fyrir eins og þeir séu, þeir sem komi fram með ein- hverjum látum og með banana í eyrunum eða eitthvað álíka séu ekkert öðruvísi, þeir séu bara að reyna það. Arið 1981 kom útsmáskífan Fire sem náði nokkrum vinsæld- um. Þá kom líka út breiðskífan October en hugmyndina að nafn- inu á plötunni má víst rekja til þess er Bono var að skoða alman- ak ársins 1981. Platan kom líka út í október 1981. Almenningur tók þessari plötu vel en gagnrýn- endur illa. Þessi plata er almennt álitin það lélegasta á ferli U2 en hún inniheldur þó tvö feikigóð lög, Gloria (in the Domine) og Rejoice. Stjarna U2 fór hækkandi. Árið 1983, nánar tiltekið 28. febrúar, kom út þriðja breiðskífan, War. Almenningur var stórhrifinn en gagnrýnendur hökkuðu hana í sig. Platan fór beint á toppinn og fyrsta smáskífan af henni, New Year’s Day, klifraði nokkuð á vinsældalistum. Þessi plata þykir „hrárri“ en fyrri plötur U2 og á hennierað finna mikla ádeiluá stríð. Meðlimirnir höfðu líka elst og þroskast. Bono giftist kær- ustunni sinni, Alison, árið 1982, The Edge giftist Aislin sinni ári áður og þegar þetta var áttu þau von á barni - sem varð stúlka og nefnist Holly. I laginu New Year’s Day er Ijallað um ástandið í Póllandi. í laginu Seconds er sungið um sprengjuna miklu og í Sunday Bloody Sunday er fjallað um ástandiðá írlandi. Þegar hér er komið sögu eru þeir kappar orðnir nokkuð þekkt- ir á Bretlandseyjum og í Evrópu en nær óþekktir í Bandaríkjunum. Það var svo tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen sem „uppgötv- aði" þessa írsku sveit en hún er í miklu uppáhaldi hjá honum. Þegar henni var komið á framf; ri var ekki að spyrja að viðtökunum. U2 fór í stóra tónleikaferð vítt og breitt um Bandaríkin og var hvar- vetna vel tekið. Einir þessara tónleika voru teknir upp og gefnir út á plasti undir nafninu Under a Blood Red Sky. Sú plata er orðin ein mest selda tónleikaplatan í Bretlandi og mun vera ein vinsæl- asta partíplatan hérlendis. Eftir þetta tónleikaferðalag 30 VI KAN 13. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.