Vikan - 26.03.1987, Blaðsíða 37
„Ég horfi dálitiö spenntur fram á viö og biö eftir því sem kemur."
grillur um ýmsa hluti: af hverju þetta gerist
ekki eða hitt, af hverju ég sé ekki búinn að
framkvæma hitt og þetta, því ef mann langar
til að gera eitthvað en kemur sér ekki að því
þá er það oft vegna þess að maður er ekki
tilbúinn til þess. Eg er ekki að segja að við
göngum öll nákvæmlega eftir einhverri ákveð-
inni línu heldur tel ég líklegra að líkja megi
línunni við það þegar maður teiknar ákveðinn
hlut, segjum frá tölustafnum 1 upp í 10, og
getur tekið frjálslegar sveiflur á milli tölu-
stafa. Það fer eftir manni sjálfum hvernig
maður fer á staðinn og hvað maður gerir í
leiðinni en á staðinn kemst maður fyrr eða
síðar.
Svo er ég líka dálítið hjátrúarfullur í
laumi." Helgi lítur á mig pínulítið feimnislega
og við skellum upp úr. „Já, alveg satt, ti!
dæmis forðast ég að labba undir stiga og svo-
leiðis, ef ég mögulega get, og svo eru líka
ýmis svona bönn í leikhúsi, eins og það að
ekki má blístra baksviðs. En annars reyni ég
að taka þessa hluti ekki of alvarlega. Eg hef
til dæmis líka mjög gaman af stjörnuspeki en
forðast að hella mér út í hana sem einhver
trúarbrögð. Eg viðurkenni fræðin sem slík,
þar er svo margt sem gengur upp. Ég finn vel
hvað passar hjá sjálfum mér og mörgum sem
ég þekki; ýmislegt í sambandi við karakterlýs-
ingu, þau element sem hver og einn hefur í
sér vegna þess að hann er fæddur á þessum
,,Eftir hálft ár
mundu einhverjir
kannski segja:
Djöfull, nú verð ég
að komast i leikhús!
- en láta sig svo
hafaþað að fara í
bíó eða fá sér vídeó-
spólu.“
stað á þessari stundu. Ég lét einu sinni gera
fyrir mig afstöðukort sem var þrjú ár aftur í
tímann og þrjú ár fram og það stóðst alveg
merkilega vel. Þetta er enginn spádómur um
skemmtilegheitauppákomur í lífinu heldur um
rnanns andlega ástand, með tilliti til afstöðu
stjarnanna og hvernig maður er upplagður
fyrir hina og þessa hluti. Þegar ég rakti þessi
þrjú ár til baka kom í ljós að einmitt í þessum
mánuði eða hinum, þegar allt hafði gengið
vel og ég verið í góðu jafnvægi eða þá öfugt,
voru himintunglin alveg sammála. Það hafa
líka örugglega allir fundið hvað fólk á misvel
saman; ekki bara almennt heldur líka frá ein-
um tíma til annars. í síðasta mánuði þoldirðu
ekki Sigga, til dæmis, en nú filarðu hann í
botn. Það eru margir sem láta gera svona
kort fyrir sig reglulega, notfæra sér það sem
þau segja og eru sannfærðir urn að þannig
nái þeir betri árangri. Ég hef þó hingað til
mest látið mér nægja að spá í Tarotspil, fyrir
sjálfan mig. Mér finnst það oft hjálpa mér
að leysa flækjur og taka réttar ákvarðanir.
Það auðveldar manni að lesa lífið en spilin
segja auðvitað ekkert sem ekki er til staðar:
þau segja þér ekki að á næsta horni bíði
maður með hníf eða þúsundkall. Það eru þín-
ar eigin hugsanir sem leggjast á borðið og svo
geturðu lesið í og greint á milli aðalatriða og
aukaatriða. Annars er þetta bara dútl hjá
mér, ég hef ekkert stúderað þetta sérstaklega.
En það fer ekkert á milli mála að orkan er
ókannað fyrirbæri, hvort sem hún heitir hug-
arorka eða eitthvað annað. Ég get til dæmis
vel trúað að hægt sé með ákveðnum aðferðum
að stjórna þessari orku og beina inn á vissar
brautir. Eins er það merkilegt með þessa
ákveðnu punkta í heiminum, eða orkustöðv-
ar, samanber Snæfellsjökul hér. Þarna er á
sveimi ómæld orka sem fæstir kunna enn að
nýta sér.“
Það er greinilegt að Helgi er í essinu sínu
meðan hann talar um þessa hluti og andi
13. TBL VIKAN 37