Vikan


Vikan - 26.03.1987, Qupperneq 43

Vikan - 26.03.1987, Qupperneq 43
Pósturinn EG RUGLUÐ? Hæ, elsku Póstur! Ég hef skrifað þér áður en ekki fengið svar. Því vonast égeftirsvari núna. Þettaerkannski fáránlegt en gerðu það, svaraðu mér. Ég er fjórtán ára og er með fimmtán ára strák. Hann hefur fjórum sinnum beðið mig um að sofa hjá sér en ég er svo hrædd um að hann komi honunt ekki inn. Er ég rugluð? Er vont að láta afmeyja sig? Ég hef alltaf log- ið einhverju að honum, að ég geti ekki komið til hans út af hinu og þessu. Eg þarfnast hjálp- ar en ég get ekki talað við neinn nema þig. Vonast eftir hjálp. Grámygla. Þú mirmist ekki á þad hvort þig sjálfa kmgi til að sofa hjá stráhmm. Ut úr bréfinu má auðveldlegá lesa að þú ætlir að sofa hjá strákn- um fyrir hann en ekki fyrir sjálfa þig. Þaó er röng afstaða. Fyrsta kynlífsréynslan getur verið afskaplega viðkvœm og hún getur, ef hún er ekki ánœjuleg, mótað afstöðu fólks til kynlífs um alla framtið. Þú minnist á að þú sért hrœdd við að sofa hjá ífyrsta skipti, það er mjög eðli- legt, en strákurinn, sem þú ert með, er það ef til vill líka. Þið hafið greinilega ekki rætt þessi mál ykkar á milli en þaó ættuð þió skilyrðis- laust aó gera. Að vísu getur verið erfitt að brydda upp á svona málum, það er best að g°fa sér tíma og gott næði og vera viss um að enginn trufli. Með því aó ræða málin er hægt aó komast að því hvaóa væntingar þið liafið hvort um sig gagnvart kynlíft og við hverju þió búist ef þió hafið samfarir. Það þarf líka aó ræða mál eins og getnaðarvarnir því ef þið stefnið ekki að því að eignast barn, sem Póstur- inn telur raunar ólíklegt, þurfið þið að verða ykkur úti um þær. Þegar stúlka eða kona hefur samfarir opnast leggöngin en að öllu jöfnu liggja gangaveggirn- ir þétt saman. Leggöngin geta þanist geysilega út (til aó mynda við barnsburð) og eru þess vegna aldrei of þröng fyrir samfarir. Ef koitu Jinnast samfarir sársaukafullar stafar það ekki afþröngum leggöngum heldur dragast vöðvarn- ir í kringum þau saman og tippið kemst ekki inn. Þetta getur stafað af því að konan sé hrædd, kvíðafull eða blygðist sín á einhvern hátt. Sársauki við samfarir getur líka stafað af því aó leggöng konunnar séu ekki orðin nógu rök þegar samfarir hefjast. Hægt er að koma í veg fyrir þetta ef karlmaðurinn fylgist nógu vel með þvi hvernig konunni líður áður en sam- farir hefjast. Þú spyró að því hvort það sé sárt að láta afmeyja sig. Það er mjög einstaklingsbundið og því ekki hægt að gefa einhlítt svar við því. Meyjarhaftið liggur utan um leggangaopið og er þunn húðfelling. Það er mjög mismunandi að stærð og teygjanleika og á því eru eitt eða Jleiri göt. Þegar stúlka hefur samfarir i fyrsta skipti teygist meyjarhaftið eða rifnar dálítið. Við það getur blætt dálítió en það er ekki neitt liættulegt. Það er dálítið erfitt aó gefa einhlít svör við vandamálum þínum en þú verður fyrst ogfremst að gera þér grein fyrir því að þú berð ábyrgð á sjálfri þér og áður en þú ferð að stunda kyn- líf ættir þú aö verða þér úti um fræðslurit um þau efni. Hér á landi hafa þónokkur rit verið gefin út af sliku tagi. Það er ekki annað en labba á bókasafnió og fá þau lánuð. FER HANN ILLA MEÐ MIG? Heill og sæll, kæri Póstur! Ég er með strák sem ég er mjög hrifin af, við erum hálfvegis á föstu. Við erum saman á böllum en stundun hittumst við þó ekki fyrr en langt er liðið á ballið. Hann segir mér að hann sé hrifinn af mér en vinkona mín segir að hann fari illa með mig. Hann dansar stundum við aðrar stelpur á böllum, áður en hann fer að tala við mig. Stundum lætur hann raunar eins og ég sé ekki til. Vinkona mín segir líka að það tali allir um það hversu illa, hann fari með mig og ég ætti að hætta að spá í hann. Ég get ekki lifað án hans og hann segir að hann láti svona af því hann sé feiminn og þegar hann sé fullur. Þegar hann er mjög full- ur er hann alltaf með stæla svo ég þori ekki að tala við hann. Ég hef ekki hleypt honurn upp á mig því ég vil ekki gera það strax. Heldur þú að hann láti svona af því? Ég hef ekki séð hann með öðrum stelpum og held að hann hafi ekki verið með neinni síðan við fórum að vera saman. Vinkona mín veit held- ur ekkert fyrir víst. Elsku Póstur, segðu mér hvað ég á að gera? Hvað heldur þú að ég sé gömul? Ein illa farin. Það er erfitt að ráða það af bréfi þínu hvern- ig raunverulega liggur í málunum. Þú veist það í rauninni langbest sjálf. Spyrðu sjálfa þig hrein- skilnislega hvort þér finnist hann fara illa með þig. Ef þér finnst það ekki skaltu hætta að hlusta á hana vinkonu þína. Það getur vel ver- ió að hann sé feiminn og feimni hjá strákum lýsir sér í ýmsu af því sem þú sérð hjá honum. Þaó eitt að hann skuli hafa sagt þér að hann sé feiminn bendir til þess að hann treysti þér vel. Það er fátt i bréfinu sem bendir til þess aö hann hafi áhuga á annarri stelpu en þér og þú átt ekki að hafa áhyggjur þó svo þú hafir ekki ,,hleypt honum upp á þig“ eins og þú seg- ir. Þið virðist bæði vera ung og þaó er bæði kjánalegt og óþarft af unglingum að byrja kyn- lif áður en þeir eru tilbúnir til þess. Pósturinn skilur vel aó þér leiðist þegar hann er mjög fullur, fæstir verða skemmtilegir meó mikilli vindrykkju. Þú ert varla meira en þrettán eða fjórtán ára gömul og liklegast er strákurinn á sama aldri, eða það sýnist Póstinum á bréfinu þínu. Fólk breytist ört á þessum aldri og áhugamálin með en ef þú ert mjög skotin í stráknum ættir þú að segja honum aó það sé altalað að hann fari illa með þig. Þú tapar engu á því ef eitthvað er varið í strákinn, en þú ert sú eina sem getur dæmt um það. PENNAVINIR í DANMÖRKU Kæri Póstur! Getur þú nokkuð bent mér á leið til að eign- ast danska pennavini. Kveðjur. Rósa. Þú getur prófað aó skrifa til unglingablaðsins Vi Unge. Heimilisfang þess er: VI UNGE, Redaktion Ravnsborgsgade 14 2200 Kobenhavn N Danmark 13. TBL VIKAN 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.