Vikan - 21.05.1987, Síða 5
30
Alla Pugatjova er rauðhærð og
rússnesk. Hún er kraftmikil, hefur
hása og hljómmikla rödd og er afar
vinsæl dægurlagasöngkona í
heimalandiisínu.
32
Þórður Ásgeirsson er kunnur í ís-
lensku atvinnulífi. Hann hætti
nýlega sem forstjóri Olís og er að
hasla sér völl á nýju sviði. Þórður
kem u r yiðayiðí Viku yiðtalin u.
43
Mömmu þykir ekki vænt um mig,
segir ein þrettán ára sem hefur
skrifað póstmeistaranum okkar.
Hvernig bregst hann við? Hvaða
ráð fær angistarfull stúlkan?
44
Fiskur og meiri fiskur er til umræðu
I Barna-Vikunni. Eitthvað fleira
flýturmeð.
46
Nokkrir ungir, upprennandi fram-
tíðarveiðimenn eru í veiðiþættin-
um, Varðstuvar?
52
Ný framhaldssaga eftir hinn kunna
spennusagnahöfund Raymond
Chandler hefur nú göngu sína í
Vikunni. Sagan heitir Maðurinn
semkunniyel yiðhunda.
57
i Lífi og lyst kynnumst við þjóðar-
íþrótt Spánverja undir öruggri
leiðsögn Sigurdórs Sigurdórsson-
ar, blaðamanns og leiðsögumanns.
LYKKJU-
VANDAMÁI
eþltí þunclynt
Jvroil barn
?GDl^r\
- "fP'Vfoe,
0 í Ítt* 413 Oóltur seiri nióf I
nð;” •'sknploga fýioa>,„ t
««A>unu.n hrtur «• [*s»um s.
INGI BJÖRN ALBERTSSON, einn hinna nýju
þingmanna, verður viðmælandi okkar í næsta Viku-
viðtali. Ingi Björn er þekktur knattspyrnumaður,
hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækis föður síns,
Heildverslunar Alberts Guðmundssonar, sem frægt
er orðið. Hann hefur um margt gengið sama veg
og faðir hans, til dæmis hefur hann verið á kafi í
fótbolta, rekið heildverslun og er nú á leið til þing-
starfa. Við kynnumst Inga Birni nánar í næsta
Vikuviðtali.
ANNA CONCETTA FUGARO er listamaður sem á
fáa ef nokkra sína líka hér á landi. Móðir hennar
var íslensk en faðirinn ítalskur Kanadamaður. Hún
býr við Laugaveginn og þar býr hún til listaverkin
sín. Við segjum frá lífi og list Önnu Concetta Fug-
aro í næstu Viku.
LESENDUR SKRIFA; sá þáttur heldur striki sínu
enda lesendur iðnir við að skrifa okkur. Frá einum
herramanni barst smásagan Þegar konan vildi
skilja og hana birtum við í næstu Viku.
YERMA eftir Federico Carcia Lorca var frumsýnt
í Þjóðleikhúsinu í byrjun mánaðarins. Vikan brá
sér á sýningu nýlega og greinir frá hvað bar fyrir
augu.
21. TBL VIKAN 5