Vikan - 21.05.1987, Blaðsíða 22
KVI-KMYNDIR
Y N D B Ö N D
á
Nýjar kvikmyndir
TVÆR NYJAR KMKMWDIR MEÐ MICHAEL CAINE
Einhver afkastamesti kvikmyndaleikar-
inn er Michael Caine. Virðist sem hann
taki sér aldrei frí. Hver myndin eftir aðra
kemur á markaðinn með honum og senn
nálgast hundraðið þær myndir sem hann
hefur leikið i. Michael Caine er vinsæll
leikari og einnig er hann mjög vinsæll
meðal starfsbræðra sinna.
Fimmtíu og fjögurra ára gamall er hann
á hátindi ferils síns, nýbúinn að fá óskars-
verðlaunin og getur valið úr hlutverkum.
Hann lék sitt fyrsta hlutverk 1956 í
ómerkilegri stríðsmynd er ber nafnið A
Hill in Korea. En það var í hlutverki
njósnarans Harry Palmer í The Ipcress
File 1964 sem hann hlaut fyrst frægð.
Hann hefur oftar en einu sinni verið til-
nefndur til óskarsverðlauna og fékk þau
loks fyrir leik sinn í Hanna og systur henn-
ar.
Hér á síðunni verða aðeins kynntar tvær
nýjustu kvikmyndir Michaels Caine sem
frumsýndar voru fyrir stuttu. Sameiginlegt
er með þessum myndum að þær eru báð-
ar gerðar eftir skáldsögum þekktra rithöf-
unda. Tlie Fourth Protocol er gerð eftir
samnefndri sögu eftir Frederic Forsyth
og Half Moon Street er gerð eftir skáld-
sögu Pauls Theroux.
Lávaröurinn og læknirinn verða
óvart ástfangin. Michael Caine og
Sigourney Weaver í hlutverkum
sinum í Half Moon Street.
Half Moon Street
í Half Moon Street fær Michael Caine
sem mótleikara Sigourney Weaver.
Feikur hún lækni einn, dr. Laureen
Slaughter, sem getur ekki lifað af tekjum
sínum og fer út í vændi. Allt gengur vel
hjá henni þangað til hún verður hrifin
af einum viðskiptavini sínum, Lord
Bulbeck (Michael Caine). Eitt skiptið
þegar hún er að skemmta ríkum araba
kemst hún á snoðir um samsæri gegn
Lord Bulbeck. Lendir hún í miklum
vandræðum og áður en hún veit af er
hún flækt í milliríkjamál sem henni veit-
ist erfitt að glíma við.
Half Moon Slreet er gerð eftir skáld-
sögu Pauls Theroux, en eflir hann er
einnig Moskítóströndin sem nýlega var
filmuð. Leikstjóri Half Moon Street er
Bob Swain er gerl hefur ágæta franska
sakamálamynd, La Balance. Þykir hon-
um ekki takast eins vel upp hér og er
Half Moon Street frekar langdregin
kvikmynd.
The Fourth Protocol
John Preston (Michael Caine) er á verði gagnvart rússneskum njósn-
ara í The Fourth Protocol.
í The Fourth Protocol er
Michael Caine á heimaslóð-
um ef svo má að orði komast.
Myndin gerist í kalda stríðinu
í byrjun sjöunda áratugarins
og leikur Caine njósnara. Og
eins og vitað er leika fáir bet-
ur slæga njósnara en hann.
Fjallar myndin um rúss-
neskan njósnara er Pierce
Brosnan leikur. Hann fær það
verkefni að planta sprengju
innan hersvæðis Bandaríkja-
manna í Bretlandi. Breska
leyniþjónustan kemst að ætl-
un Rússa og er John Preston
(Michael Caine) settur rúss-
neska njósnaranum til
höfuðs.. .
The Fourlh Prolocol er
dæmigerð njósnamynd og
þótl Frederic Forsyth hafi
sjálfur gert kvikmyndahand-
rit el'tir bók sinni nær hann
ekki að gæða myndina sama
lífi og bókina svo úr verður
enn ein njósnamyndin þar
sem Bretar og Bandaríkja-
menn eru góðu mennirnir en
Rússar þeir vondu. Leikstjóri
er John MacKen/ie en hann
er þekktastur fyrir að hafa
stjórnað hinni ágælu saka-
málamynd The Long Good
Friday.
Major Petrovsky (Pierce Brosnan),
rússneski njósnarinn í The Fourth
Protocol, á hér eitthvað vantalað
við Irenu (Joanna Cassidy).
iSLENSKUR TEXTI
iMyndbönd
rr
INSIDE STORY
★ ★ ★
Leikstjóri: Moira Armstrong.
Aðalleikarar: Roy Marsden, Francesca Annis og Harry Andrews.
Sýningartími: 270 mín. (2 spólur). - Útgefandi: Arnar-Video.
Margir þekkja Roy Marsden. Hann hefur gert garðinn frægan í hinum
ágætu lögregluþáttum urn Dalglish lögregluforingja sem hann leikur og
sýndir hafa verið í sjónvarpinu. í Inside Story, virkilega góðri sjónvarps-
mynd sem fjallar um baráttu um eignarhald á blaði og baráttu innan
ritstjórnar þess, fer Roy Marsden á kostum sem hinn harðsvífni kaupsýslu-
maður og milljónamæringur. John Bennett, sem svífst einskis til að komast
yfir The Sunday Register. Til að auðvelda þetta lofar hann Paulu Croxley
(Francesca Annis) ritstjórastöðu hjálpi hún honum. Ætlunarverk þeirra
tekst. Fljótlega kemst þó Paula að því að hún er aðeins eitt tæki í valda-
tafli Bennetts... Inside Story er spennandi og skemmtileg mynd og hjálpar
til frábær leikur Marsdens og Annis. Inside Story sýnir að þegar breskum
tekst vel upp stenst enginn þeim snúning í gerð sjónvarpsmynda.
INVIDERS FROM MARS
★ ★
Leikstjóri: Tobe Hooper.
Aðalleikarar: Karen Black, Hunter Carson og Timothy Bottoms.
Sýningartími: 92 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Invaders from Mars er gerð eftir eldri mynd sem ekki þótti neitt sérstök
I á sínum tíma og þrátt fyrir mikið fjármagn og ágæta tæknivinnu hefur
ekki tekist mikfu betur í þetta skiptið. Fyrst og fremst er það söguþræðin-
I um að kenna. Það vita allir nú til dags að ekkert líf leynist á Mars og í
i ljósi þess er furðulegt að bjóða fólki upp á annað. Aðalhlutverk myndarinn-
ar er í höndum drengs, Hunter Carson. Hann verður vitni að komu Marsbúa
j og því hvernig þeir laða fólk til sín og breyta hugsanagangi þess sér í hag.
! Foreldrar hans verða fórnarlömb Marsbúa og enginn trúir drengnum nema
kennari hans... Leikstjóri Invaders fronr MarserTobe Hooper sem á að
baki hina ágætu Poitergeist. Hér tekst honum ekki eins vel upp enda með
mun verri efnivið í höndunum. Það má samt hafa gaman af myndinni,
| sérstaklega fyrirþá sem á annað borð hafa gaman af ævintýramyndunr_______________________________
NIGHTMARE ON ELM STREET - PART 2 ★
Leikstjóri: Jack Sholder.
Aðalleikarar: Mark Patton, Clu Gulager og Robert Englund.
Sýningartimi: 82 min. - Útgefandi: Tefli hf.
Freddy Krueger er að verða einhver frægasta hryllingspersóna kvikmynd-
anna þótt ótrúlegt sé. Þegar hafa verið gerðar þrjár kvikmyndir um þessa
persónu sem hrjáir fólk sem býr við Elm Street og er sú þriðja meðal vinsæl-
ustu kvikmynda vestanhafs þessa dagana. Krueger er persóna sem svífur á
milli draums og veruleika. Eins og í fyrstu myndinni birtist Freddy fyrst í
draumi unglings sem býr við Elmstræti og „sýgur“ hann lífskraft úr ungl-
ingnum til ódæðisverka. Og svo sannarlega er þarna verið að velta sér upp
úr blóði og óþverra og virðist ekkert geta stöðvað þennan ógnarkraft... I
heild er Nightmare on Elm Street - part 2 ómerkileg kvikmynd sem nærist
á ótta áhorfenda og skiptir þá litlu máli hvort einhver botnar í söguþræðin-
um. Að koma á óvart og að morðin séu nógu ógnvekjandi skiptir öllu máli
og því eru viðkvæmir varaðir við.
THE FLYING MISFITS *
Leikstjóri: Russ Mayberry.
Aðalleikarar: Robert Conrad, Simon Oakland og Dana Elcar.
Sýningartimi: 93 mín. - Útgefandi: Laugarásbíó.
The Flying Misfits er bandarísk sjónvarpsmynd sem gerist í seinni heims-
styrjöldinni. Á spólukápu segir að myndin segi sanna sögu flugsveitar 214.
Hræddur er ég um að sannleikanum sé eitthvað snúið því varla hef ég séð
ótrúlegri mynd úr þessari annars mikið kvikmynduðu heimsstyrjöld. For-
ingi sveitarinnar er Pappy Boyington sem Robert Conrad leikur. Safnar
hann saman hermönnum sem allir eiga yfir höfði sér dóm vegna agabrota
og gerir flugsveitina með hjálp frjálslynds hershöfingja að bardagasveit sem
heiðruð er. Hópurinn, sem samanstendur af fyllibyttum, slagsmálahundum
og ónytjungum, fær nær enga þjálfun, samt nær hann í fyrstu orrustunni
að fella sautján japanskar flugvélar án þess að missa eina einustu. Það er
fátt gott hægt að segja um mynd þessa. Leikur og handrit slappt. Það sem
helst er hróss vert eru atriði þar sem flugvélar eru í aðalhlutverki.
22 VIKAN 21. TBL
21. TBL VIKAN 23