Vikan - 21.05.1987, Blaðsíða 44
Krydd úti í giugga
Á hverju sumri eru krakkar
í skólagörðunum og víðar að
stinga upp, sá og setja niður,
reyta arfa og vökva. Og loks
er hægt að njóta blómanna
og borða grænmetið sem er
auðvitað miklu betra en það
sem er keypt i búð. En það
er líka hægt að rækta heima
hjá sér, úti í garði og úti í
glugga.
Það er auðvelt að rækta
kryddjurtir úti í glugga og fint
að geta klippt þær ferskar í
matinn. Það er kannski orðið
of áliðið fyrir sáningu margra
tegunda en allt í lagi að prófa
og vera svo tilbúinn snemma
næsta vor.
Þær kryddjurtir, sem við
getum til dæmis sáð fyrir, eru
steinselja og graslaukur.
Steinseljan verður 10-20 cm
há og er bæði notuð fersk og
þurrkuð með mat og er mjög
falleg fersk sem skraut. Stein-
seljan er einær en það þýðir
að hún lifir ekki og vex aftur
ár eftir ár eins og graslaukur-
inn sem er fjölær. Hann
verður 25-30 cm hár og er
líka notaður á ýmsan mat, er
til dæmis góður klipptur yfir
eggjabrauð eða kartöflur.
Sama aðferð er notuð við
sáningu kryddfræja og
blómafræja. Á fræpokunum
eru yfirleitt leiðbeiningar um
hvenær á að sá og hvenær
vænta megi uppskeru. Svo er
afgreiðslufólkið í blómabúð-
unum örugglega tilbúið að
veita ykkur upplýsingar. En
hér ætlum við að líta aðeins
á aðferðina.
Best er að sá í ílát sem ekki
eru of djúp og passa að þau
séu vel hrein áður en moldin
er sett í. Það verður að nota
góða mold sem er laus við
sveppagró og skordýr. Setjið
moldina í ilátið, þjappið létt
og sléttið yfirborðið. Bleytið
moldina örlítið og dreifið
fræjunum á yfirborðið en ekki
of þétt. Þjappið síðan aðeins
ofan á moldina. Látið þetta
standa í skugga en góðum
hita á meðan fræin spíra. Á
meðan þarf að vera jafn raki
í moldinni. Þegar þið sjáið að
fræin hafa spírað færið þið
ílátið út í glugga í góða birtu.
að rækta úti í glugga. Það
má meira að segja rækta hana
í bómull í stað moldar. Legg-
ið bómull á undirskál og
rennbleytið. Stráið fræjunum
yfir og eftir um það bil tvc
daga fer jurtin að vaxa og vex
hratt sé hún í góðri birtu og
vökvuð daglega því bómullin
þarf alltaf að vera blaut.
Passið upp á að moldin þorni
ekki. Vökvið oft en litið í
einu.
Ef þið passið vel upp á birt-
una og vökvunina ættu
kryddjurtirnar að dafna vel
og þá verður hægt að klippa
þær þegar fer að líða á sumar-
ið.
1 Garðperla heitir ein krydd-
jurt sem er ótrúlega auðvelt
Garðperlu er líka hægt að
rækta á sérstökum bökkum
eingöngu með vatni. Líklega
fellur ekki öllum krökkum
við bragðið sem er svolítið
beiskt en það er samt gaman
að rækta garðperluna og þið
getið þá bara gefið hana.
Athugið að þegar þið kaup-
ið fræ eru erlend nöfn á
pokunum. Garðperla heitir til
dæmis karsi og steinseljan
persil.
Vonandi gengur ræktunin
vel hjá ykkur, þó ekki eins
vel og hjá Baldri og Auði í
Hryllingsbúðinni en þar óx
plantan endalaust og vildi
ekkert nema mannablóð. En
hér kemur loks texti úr Hryll-
ingsbúðinni sem þið getið
sungið fyrir plönturnar ykk-
ar:
Liíla búó, litla hryllingsbúðin.
Litki búð, litla ógnarbúðin.
LJndir súð, litla hryllingsbúðin.
Vá vá vá vá va-á.
Litla búó, litla hryllingsholan.
Vil og vol, litla ógnarholan.
Þrek og þol,
litla hryllingsholan.
Vá vá vá vá-vá.
Flóahró, hvaða ósköp ógurleg
er ’ að ske?
Lítt’ á, lítt’ á, lítt’ á, lítt’ á
auðn og tóm.
Annarlegan róm
heyri ég.
Je je je je.
Agðajlagð, stansaðu aó bragði
í sporunum! Pœld' í 'ðí!
Pœldu bara í ’ðí, segðu kellu
aó hœtta allridellu, pœkl' í 'ðí.
Allir Já að lokum sinn skell!
Komon komon komon.
Búðin min - litli sceti hrollur -
vindur hvín!
Það verður ekkert lát á
kvöl og pín.
Litla hryllingsbúðin!
Ó nónó nóhó nónó nóhó ó.
Umsjón:
Hólmfríður
Benediktsdóttir
44 VI KAN 21. TBL